"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
sunnudagur, september 02, 2012
Blogg um frábæra barnið mitt :o)
Ég var búin að hóta að ég myndi mögulega blogga um það hversu frábært barn ég á, og ég ætla að standa við hótunina!!
Bjarni Lár er s.s orðinn 18 daga gamall og er ennþá algjört ljós! Drekkur eins og herforingi og sefur þess á milli! Hann er líka að verða algjör feitabolla! Fórum í 5 daga skoðunina, þegar hann var, eðli málsins samkvæmt, 5 daga gamall, og ljósmóðirin var búin að segja við mig að það væri mjög gott ef hann væri að nálgast fæðingarþyngdina sína aftur, þar sem þau léttast yfirleitt fyrstu vikuna. Minn maður, sem var 3700 grömm við fæðingu, var orðinn 3905 gr. í 5 daga skoðuninni! Fór svo með hann 2 vikna í ungbarnaeftirlit og þá var hann kominn í 4355 grömm! Þannig að hann er mikill matmaður litli gaurinn, og greinilegt að kellan er með gæðarjóma í spenunum!
Hef verið að reyna að mana mig uppí að smakka mjólkina, ég bara kem mér ekki í það! Eða er það ekki annars alveg eðlilegt að smakka þetta? Ef þið hafið smakkað þetta, er hún ógeðsleg??
Annars skellti ég mér með hann í myndatöku um daginn, ætlaði að fá svona ungbarnamyndir, svona þar sem þau eru uppstillt í voða krúttlegum stellingum, en hann var orðinn 12 daga gamall og ekkert á því að láta stilla sér eitthvað upp! En við fengum samt voða sætar myndir, set inn hérna nokkrar. En hann er alveg ótrúlega sterkur krakkinn, nokkrir dagar síðan hann fór að lyfta höfði og halda því í smá tíma, bara að skoða heiminn í kringum sig. Kannski er það alveg eðlilegt og ég bara mamma sem sér barnið sitt ekki í réttu ljósi, held hann sé eitthvað ofurbarn á meðan hann er mjög sennilega bara í meðallagi! En mér finnst hann allavega rosa duglegur :o)
Uh hvað meira, svo sem ekki mikið að gerast, er bara að chilla í fæðingarorlofi, hann er svo ótrúlega vær að ég hef endalausan tíma! (fyrir utan að sjálfsögðu kvöðina sem fylgir því að vera mjólkurbú) en ég er svo heppin að mamma er eiginlega farin að reka mig út úr húsi, hún passar guttann á meðan ég skelli mér t.d aðeins í ræktina. Hef að sjálfsögðu farið varlega af stað, en vá hvað er gott að hreyfa sig aðeins! Skrýtið álag á bak og axlir að sjá um ungabarn þannig að mér fannst nauðsynlegt að halda þessum vöðvum í standi! Og svo líka bara að hitta fólk og hafa tjáskipti við einhvern sem er eldri en 2 vikna! En ég er ekkert í stórátökum, vil ekki missa mjólkina og svo hefur maður takmarkaða orku, brjóstagjöfin tekur ekkert smá úr manni! Er samt ekki að kvarta, kílóin leka af manni í staðinn :o) Er svona við það að fara að detta í fyrra horf, fyrir utan nottla pínu linan maga, en vona að hann skreppi tilbaka, ég slapp allavega alveg við að slitna (ég er óþolandi er það ekki??) þannig hann verður vonandi ekki jellybelly alltaf..!
Annars fæ ég nú alltaf pínu samviskubit yfir að tala um óléttuna mína, hversu ljúflega ég hef runnið í gegnum þetta allt (fyrir utan nottla sjokkið að verða ólétt og svo átta mig á að ég myndi standa ein í þessu), en ég var að kenna spinning fram á 33.viku (hætti bara að kenna því ég flutti heim), var í ræktinni daginn áður en ég átti, bakið og grindin í fínu standi (pínu þreyta í bakinu undir lokin, en ekkert til að kvarta yfir), fékk aldrei neinar cravings í óhollan mat, þannig að ég bætti ekkert rosa miklu á mig og slitnaði ekkert (og svo nánast komin í fyrra horf á 2 vikum, fyrir utan jellybelly) svo átti ég nokkrum dögum fyrir settan dag (allir búnir að segja við mig að ég myndi POTTÞÉTT ganga framyfir! Þannig að það var óvænt ánægja) og fá svo þetta draumbarn í hendurnar! Ég veit að það getur svo sem breyst, hann fái einhverja magakveisu eða eitthvað, en er á meðan er!
Byrjaði svo í skólanum á föstudag, eða fór á kynningarfund. Hefði ekki þurft að fara þar sem ég er í fjarnámi og þetta kemur allt á netið, en ég ákvað að drulla mér, veit hvað hefði gerst ef ég hefði ekki farið, hefði bara ýtt þessu á undan mér og alltaf orðið erfiðara og erfiðara að byrja! Svo má ég mæta í alla tíma ef ég hef tök á því (og get tekið barnið með mér) þannig að ég ætla að fara sem mest í þessari viku og koma mér í gang, verður þá auðveldara að halda því áfram sjálf. En þetta leggst rosa vel í mig (er að fara í ensku í háskólanum, fyrir þá sem vita það ekki) og ég hlakka til að byrja. Ætla svo að að byrja að þjálfa í Sporthúsinu eftir ca. 2 vikur. Bara 1-2 tíma á dag, seinnipartinn, þannig að ef einhverjum vantar spark í rassinn þá er bara að hafa samband ;o) (ætla að reyna að hafa 2-4 saman, ódýrara fyrir hvern og einn og ég get pínt fleiri á styttri tíma, win-win ;o))
Læt þetta duga í bili, later...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Innilegar hamingjuóskir med guttann. Hann er svo ótrúlega mannalegur á þessum tveim neðstu myndum...
Flottur strákur sem þú átt Bjarney mín.
Gangi ykkur sem allra allra best!
Og ... lestu bloggið hjá Olgu... hún er einkaþjálfari, tekur að sér nýbakaðar mæður... held að þið tvær eigið mikið sameiginlegt ;)
http://blogg.mama.nu/olgas-blogg/
http://www.mammafitness.se/
Ástarkveðja,
Dísa
Skrifa ummæli