föstudagur, september 14, 2012

bleh

Jæja get alveg eins hent í eins og eitt blogg :o) Ætla að byrja á mömmupartinum, þá er það frá! - Það eru nokkrir hlutir sem ég hef lært eftir að ég varð mamma, sumir eru praktískir, t.d að fara reglulega í gegnum fötin hjá barninu, hann er strax vaxinn upp úr sumu og maður á ekki að fara eftir merkinu, þó það seig 3-6 mánaða þá getur vel verið að það passi mun fyrr!(hann er t.d núna í náttbuxum fyrir 6-12 mánaða, þær eru samt pínulitlar sko, sé ekki að hann verði ennþá í þeim 12 mánaða!)
- Svo reyni ég að segja mér reglulega að svefn sé ofmetinn þegar hann ákveður að halda partýinu gangandi um hánótt! Hefur tvisvar ákveðið að vera bara sprellvakandi í rúma 2 tíma um hánótt, ekkert væl eða vesen, bara í engu stuði til að sofa! En ég er reyndar byrjuð með hann í svefnþjálfun, prófaði síðastliðna nótt að gefa honum, setja í vögguna og láta hann svo afskiptalausan, og það eina sem hann gerir er að hann rymur í ca. 10 mínútur og sofnar svo, þannig að svefnþjálfunin leggst bara vel í mig, hef trú á krakkanum! Reyndar hræðilegt að búa inná öðrum og þurfa að leyfa honum að orga (sem hann reyndar gerir ekki nema hann sé mjög svangur, en ég geri ráð fyrir einhverjum rokum þegar þjálfunin hefst!) - Svo er eitt crucial sem allar mömmur þurfa að hafa í huga, ALLTAF að kíkja í spegil áður en maður fer út úr húsi, ég lærði það af biturri reynslu þegar ég fór út með ælu í hárinu og fattaði það ekki fyrr en ég kom aftur heim, mjög töff! o_O
Fór með hann í 4 vikna skoðun á þriðjudag, hann er orðinn 5 kíló! (var 3700 grömm við fæðingu), algjör bolla! En hjúkrunarfræðingurinn hafði áhyggjur af því að hann væri ennþá soldið gulur þannig að við fórum uppá barnaspítala á miðvikudagsmorguninn í blóðprufu. Litli snillingurinn minn var svooooooo duglegur, þær gáfu honum smá sykurvatn áður en læknirinn stakk nálinni í hann, svo gaf ég honum bara duddu og hélt í höndina á honum, en hann kipptist ekki einu sinni við þegar hún stakk hann! Ekki eitt org! Mamman nottla ofurstolt af litla jaxlinum! En blóðprufurnar komu vel út og bara tímaspursmál hvenær gulan fer, þangað til ætla ég bara að njóta þess að eiga svona brúnan og sætan strák :o)
Ó guð, ég er mesti lúði í heimi!! Ætlaði ekki að blogga um þetta af því að þetta er svo lúðalegt, en ég hef svo sem engu að tapa, þeir sem lesa bloggið mitt vita hvort sem er hvað ég er misheppnuð stundum! o_O Allavega, ég sá þetta rosa flotta tilboð frá mbl að kaupa ipad og fá áskrift að mbl að auki. Ég spyr mömmu og pabba hvað þau séu að borga fyrir sína áskrift, sem er töluvert meira þannig að mér fannst bara frábær hugmynd að þau myndu segja upp áskriftinni, spara þannig pening og ég fengi ipad! win-win! Þannig að ég skelli mér á þetta og settið segir upp áskriftinni. Svo hringi ég niður á morgunblað og spyr hvenær ég byrji að fá blaðið sent og hún segir mér að þetta sé bara netáskrift!(*roðn*) ó mæ god, jæja mamma og pabbi ákváðu að hætta við að hætta í áskrift, en ég bíð bara spennt eftir ipadinum mínum! Hafði svo sem engin plön um að kaupa mér ipad, en mér er sagt að þetta sé alveg stórkostleg barnapía, þannig að við þurfum ekkert að réttlæta það neitt frekar ;o) Æi vá, ég roðna bara við að skrifa þetta, hvernig er hægt að misskilja sjálfan sig svona rosalega..! O_o
- Bjarni Lár er núna orðinn Bjarni Lár opinberlega, fór með nafnið hans niður í þjóðskrá í dag. Lenti reyndar í frekar skondnu atviki þar. Þar var lítil stelpa, mjög áhugasöm um Bjarna, sem sat í stólnum sínum, og mamma hennar, sem var dökk á hörund, byrjaði að spjalla við mig á ensku. Hún spyr hvað hann sé gamall, og svo hvort ég ætli að nefna hann íslensku nafni (sem mér fannst frekar spes spurning. Svo spyr hún mig hvaðan ég sé (!), ég segi að ég sé íslensk, þá kemur: "í alvöru? vá mér hefði aldrei dottið það í hug!" En hún er sjálf frá Jamaíka, þar sem er töluð enska, þannig að ég veit ekki hvort ég sé með svona furðulegan enskan hreim! Eða ég held ég sé alveg nokkuð íslensk í útliti. Humm, já góð saga! En jæja, mér fannst þetta allavega fyndið... - Annars er lítið annað að frétta, skólinn gengur, uh já, hann gengur! haha mun koma í ljós í fyrstu prófum og verkefnum vetrarins..! Læt þetta duga í bili, later...

Engin ummæli: