laugardagur, október 06, 2012

mjööööög laaaaaaangt blooooooogg....

Jæja ætli það sé ekki kominn tími á eins og eitt blogg! Ætla reyndar að byrja á smá tuði! Eitt sem er búið að vera ofarlega í huga mér síðan ég kom heim, og til að byrja með þá langaði mig að flytja strax af landi brott aftur! Síðan hef ég nú aðeins náð að sættast við Ísland en lagðist í staðinn í smá atferlisrannsóknir og hér er afraksturinn: Íslendingar eru almennt dónar! Umferðin ein og sér væri efni í heila BS ritgerð, og ég nenni ekki einu sinni að tuða yfir henni, ákvað bara "if you can´t beat them, join them" og er þess vegna byrjuð að keyra aftur eins og hálfviti sjálf :o) En það er allavega alveg klárt að Íslendingar munu ekki þjást af álagsmeiðslum í fingrum vinstri handar vegna stefnuljósanotkunar, það er alveg ljóst..! o_O
En svona að öðru leyti þá erum við bara almennt ekki kurteis þjóð, ætla að taka nokkur dæmi (að sjálfsögðu er þetta ekki algilt og fullt af fólki sem kann sig, en mér finnst þetta oftar en ekki tilfellið): - Maður heldur hurð opinni fyrir einhvern, það er ekki sagt takk - maður er að labba inn um hurð fyrir aftan einhvern og hurðinni er ekki haldið fyrir mann - Þegar afgreiðslumanneskja í búð býður góðan dag þá heyri ég sjaldnast kveðjuna endurgoldna - Þegar afgreiðslumanneskjan spyr hvort viðkomandi vilji kvittun/poka þá er yfirleitt svara "já/nei", hvað varð um "já takk" og "nei takk"? - einnig virðist einhver typpakeppni í gangi á gangstéttum, það á sko ekki að víkja fyrir manneskjunni sem kemur á móti (eins og maður sé minni maður ef maður er tillitsamur og tekur eitt skref til hliðar til að greiða fyrir leið hinns) - einnig hef ég tekið eftir, núna þegar ég er töluvert í göngutúrum með strákinn, að það er bara svona 50/50 hvort það sé stoppað fyrir manni á gangbrautum
og margt margt margt fleira! Hins vegar, eftir að ég byrjaði á þessari atferlisrannsókn í hausnum á mér þá hef ég tvisvar lent í því að fólk sem ég mæti býður mér góðan daginn alveg upp úr þurru, það endurvakti trú mína á íslenska mannkynið..!
Jæja tuð búið, væri samt gaman að sjá viðsnúning í þessari hegðun og við færum að tríta hvert annað með aðeins meiri virðingu og vinsemd :o) (sorry þarf ennþá að nota myndir sem greinaskil svo allur textinn renni ekki saman í eitt)
Annars gengur allt eins og í sögu með Bjarna Lár, hann er algjört draumabarn! Ég hreinlega sé ekki sólina fyrir honum! Eins og sést á facebook síðunni minni, er orðin full af myndum af honum! Ætli það sé ekki slatti búinn að eyða mér út af facebook, komin með nóg af barnamyndum! haha
Hann brosti í fyrsta skipti um daginn, mér fannst hann vera orðinn ansi seinn til, öll börnin í bumbuhópnum byrjuð að brosa, nema að litli kallinn minn var ekkert til í að vera að sprella neitt..! o_O En svo kom að því, hann sat í ömmustólnum sínum og ég kom til að taka hann upp og þá kom þetta líka sólskinsbros á hann og ég táraðist nottla (og setti svo status beint á facebook, en ekki hvað! :-þ)
En hann er svo sem ekkert að flagga brosunum neitt svona að óþörfu, notar það bara meira svona spari :o) En hann er alveg ótrúlega duglegur, er byrjaður að velta sér af maganum á bakið (sjá nánar hérna fyrir neðan) og kom rosa vel út úr 6 vikna skoðuninni, hann er reyndar ennþá frekar gul/brúnn og hjúkkan sagði að hann væri sennilega bara með svona frekar dökkan húðlit fyrst þetta er ekki ennþá farið (er auðsjáanlega með húðtýpuna mína, er nottla þekkt fyrir mitt dökka hörund, ok kannski ekki en ég er samt frekar brún miðað við að jaðra við að vera albínói..!) En hann er kominn upp í 5450 grömm (úr 3700 gr við fæðingu) og 59 sentimetra (úr 52), þannig að hann dafnar vel drengurinn. Þau eru samt svo ógeðslega sæt svona ungabörn, ég var í raun ekki búin að átta mig á hvað þau eru í yndislega asnalegum hlutföllum! T.d þegar verið er að teygja sig þá rétt ná hendurnar upp fyrir höfuð! Þau eru eiginlega ekkert nema hausinn og búkurinn, með smá útlimi..! o_O )sjá mynd hehe)
Reyndar átti ég fyrsta MAJOR FAILIÐ mitt sem mamma í gær :-( Var að fara í ræktina og dröslaði Bjarna Lár með mér (þau eru með barnagæslu fyrir svona lítil í Sporthúsinu) nema að þegar ég kem í gæsluna og tek teppið af honum þá sé ég að ég hafði gleymt að festa hann í bílstólnum! Hafði sett "axlaböndin" á hann en að öðru leyti var hann laus (hann var að sofna heima þannig að ég setti teppið yfir hann á meðan ég var að klára að taka mig til, og gleymdi svo bara að ég var ekki búin að festa hann og tók upp stólinn og fór af stað). Þegar ég uppgötvaði það og fór að hugsa um hvað hefði getað gerst þá fékk ég svo mikið taugaáfall að ég fór að hágráta! (t.d úr starfsmannaherberginu og niður er mjög langur og brattur stigi, fór að hugsa um ef hann hefði dottið úr stólnum þar :-/) Stóð bara grenjandi inn í barnagæslu á meðan þær voru að reyna að hugga mig! Allavega alveg klárt að ég mun ekki gleyma að festa hann aftur..! o_O
Jæja, svo þegar ég var búin að jafna mig þá ákvað ég að setja hann á gólfið og sit þarna eitthvað að dást að honum, segi svo við þær sem eru að vinna þarna: "oh mér finnst eins og hann sé alveg við það að ná að velta sér yfir á bakið" þá segir önnur:"það verður nú ekki alveg strax" (hann er 7 vikna og 2 daga) Nema hvað, að ca. 3 sekúndum síðar þá velti litla dýrið sér yfir á bakið! Ég ákvað að prófa aftur til að ná því á vídeó, í annað skiptið gerði hann það svo fljótt að ég náði því ekki, en þetta er sem sagt þegar hann velti sér í þriðja skiptið, ógeðslega fyndið, hann vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið!! (þurfið að vera með facebook til að sjá vídeóið :o)) https://www.facebook.com/photo.php?v=10151254900155041¬if_t=video_comment
Annars lítið annað að frétta, námið gengur hægt, fer í fyrsta prófið 18.okt, verður fróðlegt að sjá útkomuna! haha en ég er svo sem ekki að stressa mig um of, vil fyrst og fremst njóta tímans með Bjarna Lár, en ef ég næ að klára einhverjar einingar þá verð ég ógeðslega ánægð með mig. En ef ég næ því ekki þá er ég allavega orðin aðeins betri í ensku :o) Líka byrjuð að æfa nokkuð af krafti, fyndið hvað fólk er búið að vera að tuða mikið í mér, að ég þurfi að fara varlega og eitthvað, já ég fór fyrst í ræktina 10 dögum eftir fæðingu, en ég gerði 3 æfingar, sem reyna ekkert á grindina en hjálpaði mér aðeins að liðka mig og halda vöðvunum gangandi. Það er eins og fólk haldi alltaf að ég æfi eins og crossfittari á amfetamíni! Því fer sko fjarri, ég er löngu hætt einhverjum svona rembingi! Er bara að æfa til að halda skrokknum í standi og vera helbrigð, og ég vil allavega trúa því að ég viti svona nokkurn veginn hvað ég er að gera, þannig að áhyggjur af mér og grindinni minni eru með öllu óþarfar (set hérna inn eina mynd því til sönnunar ;o))
Jæja farin að sofa, til hamingju ef þið nenntuð að lesa þetta..!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert bara snillingurinn í skrifum ekkert smá gaman að lesa þetta.

kv Díana

Nafnlaus sagði...

þetta er ekki langt blogg .... bara svo mikið af myndum sem teygja það í 9 metra! ;)

Mvh, Arnar

Ps: (asnalega athugasemdakerfi ... fer mestur tíminn í að reyna að kvitta hérna!)

Nafnlaus sagði...

haha já, neyðist til að setja myndir þar sem það koma ekki greinaskil!! o_O

En takk fyrir kvittið bæði tvö :o)

BB

Inga Lilý sagði...

Alltaf gaman að lesa bloggin þín. Ég sá þig alveg í anda á amfetamín, sterum og æfandi eins og crossfittari, þú veldur mér miklum vonbrigðum!! :P

Rosalega gaman að sjá hvað gengur vel með Bjarna Lár og ég vona að þú haldir áfram með skemmtisögur af ykkur tveimur :)

Sol i Hjarta sagði...

Æ hvað hann er yndislegur hann sonur þinn.

Og þú ert sko alveg með hæfileikana til að skrifa... alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt ;)

Og það er bara ekki hægt að setja inn of margar myndir af drengnum ;)