"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
fimmtudagur, október 18, 2012
Útlendingur í eigin landi o.fl...
Fyrst ég er í ham þá get ég alveg eins hent í annað blogg :o)(þið verðið ennþá að þola þessar myndir, koma ekki greinaskil annars!)..................
Enn heldur ævintýrið áfram, að vera send á milli staða með mín mál, en loksins lenti ég þó á konu niðrí Tryggingastofnun sem actually nennti að vinna vinnuna sína og grennslaðist fyrir um mín mál. Ég er sem sagt ekki ennþá komin inn í kerfið og mun ekki fá undanþáguna, þarf að bíða í fulla 6 mánuði. Það sem gerðist var að ég var of samviskusöm. Ég byrjaði að vinna í þessu frekar snemma, að koma mér inn í kerfið hér heima, svo að þetta væri allt klárt þegar ég kæmi heim, en af því að ég byrjaði svo snemma (í apríl) þá einhvern veginn datt ég út úr kerfinu í UK þá, og af því að liðu meira en 2 mánuðir frá því að ég datt úr kerfinu í UK og þar til ég flutti lögheimili heim þá get ég ekki fengið þessa undanþágu, lenti í einhverju svartholi þarna. En skítt með mig, það sem mér finnst verra er að Bjarni Lár er ekki sjúkratryggður heldur, þar sem börn eru tryggð í gegnum móður sína, við erum sem sagt bara eins og útlendingar í eigin landi. Eftir að hún sagði þetta þá fór ég að hugsa, mér finnst bara alveg fullkomlega fáránlegt að börn sem eiga lögheimili á Íslandi séu ekki sjúkratryggð! Börn útlendinga eða ekki, búin að vera hérna í 2 daga eða 5 mánuði! Mér finnst kannski sök sér að það taki fullorðinn einstakling 6 mánuði að komast inn í kerfið, en mér finnst að börn eigi alltaf að vera safe! Spáði í hvað er ömurlegt ef foreldri leitar ekki til læknis með barnið sitt sem er veikt, því það á kannski ekki fyrir læknakostnaðinum! Í velferðarríki eiga öll börn undir 18 ára að vera sjúkratryggð að mínu mati og ég ætti að vera á þingi..!
Annað sem ég myndi beita mér fyrir á þingi er að leyfa staðgöngumæðrun! Og ég myndi bera fyrsta barnið! Ég skil ekki vandamálið með þetta, ég væri t.d alveg til í að vera staðgöngumóðir, og það er alveg klárt að það væri enginn að notfæra sér neyð mína! Frekar að ég væri með samviskubit yfir að "notfæra mér neyð" pars (eða einstaklings) sem getur ekki átt barn með að þiggja borgun fyrir, en eðli málsins samkvæmt þá hefði ég ekki efni á að gera þetta frítt en væri sko alveg til í að vinna við að vera ólétt :o) Ég myndi þó ekki vilja gefa eigið egg í verkið, þar sem ég efast um að ég gæti látið frá mér mitt eigið barn, en ef maður er með frjóvgað egg frá öðrum þá er auðveldara að líta bara á sig sem hýsil sem þarf að hugsa vel um litla sníkilinn sem er að vaxa inní manni og mun að lokum veita einhverjum ómælda gleði og hamingju. Ég fæ illt í hjartað við að hugsa til fólks sem þráir ekkert heitar en barn, en getur það ekki einhverra hluta vegna, og sérstaklega finnst mér það ömurlegt eftir að ég eignaðist mitt eigið, svoooo ósanngjarnt að það séu einhverjir þarna úti sem geta ekki öðlast það sama (svo ég tali nú ekki um alla þá sem eru algjörlega óhæfir foreldrar en fjölga sér eins og kanínur!) En já, þegar ég verð búin að koma þessu í gegn á alþingi þá er ég laus ef einhver vill ráða mig í verkið ;o)
Annars er ég búin að vera einstæð, 3 barna móðir þessa vikuna. Er með systrabörnin mín tvö á meðan mín ástkæra systir og mágur lögðu land undir fót. Ekki það að það sé mjög mikil vinna, Óskar dagur er orðinn 12 ára og alveg ótrúlega vel heppnað eintak, hann bara vaknar sjálfur fyrir skólann og græjar sig til. Vorum reyndar að læra undir próf áðan, fyndið að fá smjörþefinn af þessu öllu sem koma skal. T.d að lesa sögur fyrir svefninn, Þórey María 5 ára, ótrúlega vel gefinn krakki og með minni á við fíl! (sem getur reyndar oft komið manni í koll!) En hún er algjör Lína Langsokkur! Þvílíkur kraftur í henni, vill alltaf vera úti að leika (nema ef hún fengi að vera ótakmarkað í iPadinum, þá myndi hún vera í honum 24/7), en ég veit ekki hvort ég hafi verið að gera of miklar væntingar til hennar um daginn. Við fórum út að hjóla, eða hún að hjóla og ég að labba með barnavagninn, svo kom nokkuð löng brekka og hún horfir á mig, og ég stappa í hana stálinu:"sko þú verður bara að hjóla standandi og ekki stoppa! Það er svo erfitt að taka af stað aftur" Svo leggur hún í hann og hjólar eins og vindurinn og ég kallandi á hana:" já koma ákveðin, alla leið! Ekki stoppa!" Og auðvitað kláraði hún brekkuna, en svo fékk ég nú smá móral, þetta hefur sennilega verið bara eins og góður standandi spinning sprettur fyrir krakkann! o_O Jæja hún kvartaði allavega ekkert undan harðsperrum þannig að þetta hlýtur að hafa sloppið..
Hún er líka gríðarlega spennt yfir að hafa Bjarna Lár heima hjá sér þessa vikuna, hún fær að vera stóra systir í heila viku! Og hún gjörsamlega dýrkar hann, alveg þar til hann annað hvort hreyfir sig eða lætur heyra í sér, þá lítur hún á mig og spyr svo "æi geturðu látið hann stoppa?" Þannig að ég held að hana langi eiginlega ekkert í lítið systkini, vill sennilega bara nýja dúkku..
Svo er greinilega mikið og gott starf unnið á leikskólum nú til dags, hún er snillingur í tímasparnaði, var t.d að segja mér brandara (reyndar búin að segja mér hann ca. 7 sinnum) "Bjarney, á ég að segja þér brandara" Ég (langar nottla ekki baun að heyra brandarann, en læt mig hafa það): "já endilega" hún:"kauptu þér brjóstahaldara og standara" Sko þegar ég var uppá mitt besta í uppistandinu, þá voru þetta tveir mismunandi brandarar! Þannig að ég hef verið að velta fyrir mér hvort þau séu farin að kenna tímastjórnun á leikskólunum, ah nei ég er búin að fatta þetta! Það hefur pottþétt verið leikskólakennari sem var komin með hundleið á að heyra sömu brandarana 10000 sinnum sem hefur kennt þeim að romsa þessu útúr sér bara öllu í einu! Sem ég skil fullvel! Nú þarf ég t.d að lesa fyrir litla gerpið á hverju kvöldi (sem er gott og blessað), nema að nú er ég búin að vera að passa í heila viku og hún velur ALLTAF SÖMU BÓKINA! Jesús, fá þau ekkert leið á þeim?? Reyndar skilst mér að hún velji þessa því hún sé orðin svo góð í henni (500 fyrstu orðin, ég les orðið og hún bendir á mynd af því) þannig að ég fann upp smá tækni, við ákveðum alltaf fyrirfram að lesa t.d 3 síður, svo segi ég við hana að ég ætli að sjá hvað hún sé góð í þessu og hversu fljótt hún geti fundið hlutina! Þannig komumst við ansi hratt í gegnum þetta, svo fer hún bara sátt að sofa og ég held geðheilsunni :o)
Svo var Óskar Dagur að keppa í körfubolta síðustu helgi og ég geðveikt æst í að koma og horfa og honum fannst hann knúinn til að leggja mér línurnar (skil ekki af hverju!)Æ "sko Bjarney, þú mátt ekki fara að kalla eitthvað "Áfram Óskar"! Ég bara:"nei,ég öskra bara "Áfram Ármann" þá kom:"æi Bjarney!" og svona alveg gelgjusvipur dauðans! En svo fór ég og horfði á einn leik, en lét að sjálfsögðu ekkert heyrast í mér, en honum fannst greinilega frekar óþægilegt að hafa mig (er frekar feiminn) þannig að ég lét það bara duga, ætla nú ekki að fara að kvelja barnið..!
Fór svo með Bjarna Lár í 9 vikna skoðunina í þessari viku, hann er orðinn 2 mánaða! Vá hvað tíminn er fljótur að líða! (set hérna 2 myndir af honum nýfæddum svo að þið sjáið havð hann er búinn að breytast mikið!) En hann er kominn upp í 5990 grömm (var soldið svekkt, var búin að giska á 6 kg, en hann ældi rétt áður en við fórum, er viss um að það voru 10 grömmin sem skeikaði!) og 61 sentimeter (var 3700 gr og 52 sm við fæðingu). Þannig að hann heldur áfram að dafna vel og fylgir alveg kúrfu. Enda ekkert skrýtið, hann hangir á spena! Ekkert smá duglegur að drekka, en ég hef verið að velta fyrir mér, ætli það geti gerst að geirvörturnar hreinlega detti af?? o_O Kæmi mér ekki á óvart þó að einn daginn vakni ég geirvörtulaus, þvílíkt álag á greyið vörturnar..!
Dísús, fór í Krónuna áðan að versla svona hitt og þetta, kem svo að kassanum þá segir starfsmaðurinn HÁTT OG SNJALLT:"Bara svo að þú vitir það þá er 50% afsláttur af nammi á föstudögum, laugardögum og sunnudögum."
ÉG:"já er það, frábært"
Kassastarfsmaður (aftur HÁTT OG SNJALLT):"Já þannig að það er ekki afsláttur af namminu hjá þér núna"
ég:"já það verður bara að hafa það"
KS:"já vildi bara láta þig vita, þannig að nammið hjá þér kostar núna 524 krónur" (maður fær sko ekkert rosa mikið fyrir 524 krónur bara svo þið vitið það! Var bara að kaupa smá sko..!)
ég (verð að játa að ég var sennilega farin að roðna aðeins, sagði bara já og brosti hálf skömmustulega. Dísús af hverju fór hann ekki bara í hátalarakerfið og tilkynnti öllum í búðinni þetta (sem hann var nú nánast búinn að nú þegar!):"hey feita beljan á kassa 1 er að kaupa NAMMI á FIMMTUDEGI fyrir 524 krónur!" Hann hefði þá jafnvel getað látið það fljóta með að ég sé einstæð móðir og bý í blokk í Breiðholtinu svona til að fullkomna þetta..!
Jæja nóg í bili, ætla að fara að dást að barninu mínu eða eitthvað :o)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Snillingur! Þú færð mitt atvkæði þegar þú bíður þig fram á alþingi:)
Er svooooo sammala ther i thessu! Thegar vid fluttum hingad ut forum vid øll beint inn i norska kerfid um leid og vid skradum løgheimilid okkar herna uti en thegar vid flytjum ut tha mun thad taka okkur 6 manudi ad komast inn i isl kerfi, thott ad vid seum (amk flest okkar) Islendingar, erum ad flytja innan NOrdurlandana OG dettum ut ur kerfinu herna i Noregi thegar vid skraum løgheimili heima. Mer hefur fundist thessar reglur faranlegar i mørg ar og styd thig til things :-). Einnig svooooo hjartanlega sammala ther vardandi stadgøngumædrun tho ad eg se ekki eins viss og thu ad eg myndi taka thad ad mer........
Skrifa ummæli