föstudagur, nóvember 16, 2012

nóvemberblogg :o)

Jæja þetta blogg er búið að vera ansi lengi í smíðum, þannig að ég mun bara fara yfir víðan völl :o) Einnig hef ég ákveðið að hætta að setja myndir af syni mínum hérna inn þannig að ef ykkur langar að sjá myndir af honum þá er ég með þær á facebook síðunni minni :o) Fann upp aðra ansi háþróaða aðferð til að búa til greinaskil ;o)
Síðan síðast þá hefur gengið á ýmsu, skírði t.d drenginn, langar geðveikt að setja inn mynd af honum en þá væri ég í blússandi mótsögn við sjálfa mig strax í fyrstu málsgrein, en hann var svo ógeðslega sætur í hvítri skyrtu með slaufu og axlabönd :o) hérna eru myndir í albúminu á facebook, sem þið getið að sjálfsögðu séð ef þið eruð vinir mínir (þarf að copy/paste-a linkinn) https://www.facebook.com/media/set/?set=a.10151311091830041.522816.579915040&type=3 En þetta vara bara alveg yndislegur dagur, var bara allt mjög lítið og látlaust, var með heimaskírn, fékk prest að nafni Lena matthíasdóttir úr Grafarvogskirkju til að koma og hún var mjög góð, mætti með kassagítar og allt. En ég hefði ekki getað verið hamingjusamari með þetta, svo sem eins og bara allt sem viðkemur honum! hehe Set inn mynd af skírnartertunni og kertinu hans :o)
Svo hef ég ennþá verið að spá í öllu sem ég mun breyta þegar ég kemst á alþingi, en ég man samt ekkert í augnablikinu nema eitt (man reyndar ekki mjög margt í augnablikinu..!), en það kom upp í umræðunni þegar kíghóstaumræðan var sem mest, þá var ein sem bjó í Ástralíu að segja okkur að þar fá börn ekki að fara í leikskóla nema vera bólusett, en mér finnst það svo ótrúlega góð hugmynd! Var t.d að lesa um daginn að 9 kornabörn hafa dáið úr mislingum í USA, ekki af því að þau voru ekki bólusett heldur af því að þau voru of lítil til að hafa verið bólusett sjálf en þau smituðust af eldri börnum sem höfðu ekki verið bólusett af því að foreldrarnir völdu að gera það ekki, sem er með öllu óskiljanlegt! (veit ekki hvað það er sem þau trúa að gerist, allavega búið að sýna fram á að læknirinn sem sýndi fram á tengsla bólusetninga og einhverfu var að falsa niðurstöðurnar!) Vá hvað ég get orðið reið yfir þessu! En mér finnst þetta sniðug regla með leikskólana, þannig að ef foreldrar kjósa að bólusetja ekki börnin sín þá eru þau allavega ekki að leggja annarra manna börn í hættu í leiðinni...
Svo er ég nottla vangefin (ætli það sé hægt að bólusetja gegn því??) En ég var eitthvað svona að spá í hvort ég ætti að fjárfesta í kjól fyrir skírnina og fór inn í Zöru og fann einn krúttlegan, medium var greinilega of stór, en það var ekki til small þannig að ég ákvað að prófa extra small! Það var aaaaaaðeins of mikil bjartsýni þar sem ég festist í kvikindinu! Skil samt ekki hvað ég var að spá, smeygði honum yfir höfuðið og fyrst stoppaði hann á brjóstunum (sem eru nokkrum númerum stærri en vanalega í augnablikinu!) en ég hugsaði með mér að ef ég kæmi honum yfir brjóstin þá væri þetta komið. Jæja smokraði honum niður og svo stoppaði hann aftur á mjöðmunum (hef enga afsökun fyrir því!) þannig að ég ákvað að játa mig sigraða og klæða mig úr honum aftur. Það gekk þó ekki betur en svo að ég var pikkföst! Án djóks ég var hársbreidd frá því að kalla í afgreiðslustelpuna og biðja mig um að hjálpa mér úr, en ég skammaðist mín of mikið fyrir að hafa dottið það í hug að máta extra small kjól!! En einhvern vegin hafðist þetta að lokum þegar ég sneri mér á hvolf, greip um endann á kjólnum og smokraði mér úr honum á nokkrum mínútum! Dísús hvað ég get verið mikill lúði #skilsamtnúnaafhverjukarlmennviljaekkinotasmokk
Og já fyrst ég er byjuð að tala um lúðasögur af sjálfri mér þá get ég alveg eins haldið áfram...Var sem sagt á æfingu í Sporthúsinu og var eitthvað að spjalla þarna við einhverja gaura sem eru í þjálfun hjá einum, bara svona um daginn og veginn og svo byrja þeir að tala um að þeir séu að reyna að grennast. Þá segi ég að það sé kosturinn við að vera með barn á brjósti, þetta renni bara af manni. Þá segir annar þeirra:"ha ertu með kall á brjósti?" og ég, án þess að hugsa það neitt frekar:"nei BARN! En ef þú ert þyrstur þá máttu alveg fá sopa..." Vinir hans dóu úr hlátri en hann greyið bara roðnaði og blánaði! o_O En jæja, er búin að gefa upp alla von um að ég muni nokkurn tímann ná tökum á þeirri list að hugsa áður en ég tala... (og bara til að hafa það á hreinu þá var þetta augljóslega meint í djóki og á engan hátt kynferðislegan máta!)
Fór og spilaði handboltaleik í gærkvöldi, var búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að finna mér eitthvað b-lið í 2.deildinni til að sprella með og eiginlega bara fyrir tilviljun ákvað ég að spila með FH-b og spilaði fyrsta leikinn í gær gegn Víking-b. Var pínu stressuð þar sem ég er nottla tiltölulega nýbúin að eiga barn og hef ekki snert bolta í ca. ár. Enda var ég líka eins og flak eftir leikinn, var að drepast í hnénu allan leikinn(er yfirleitt með kinesiotape eða hitahlíf, en var með hvorugt í gær), svo er mér búið að vera illt í hægri öxlinni í töluverðan tíma, hélt samt að ég væri að lagast en svo var nú aldeilis ekki, gat ekki kastað boltanum almennilega fyrr en í seinni hálfleik, eða gat það ekkert almennilega, en það var ekki alveg jafn vont þá og í fyrri! Og svo er mér líka búið að vera illt í mjóbakinu síðan ég átti en fann ekkert fyrir því (var með hitahlíf) fyrr en ég fór inn úr færi og fékk hnykk á bakið (skoraði samt :o)) Enda hristi mamma bara hausinn þegar ég kom heim, haltrandi og í keng, og spurði mig hví í ósköpunum ég væri að leggja þetta á mig! hehe en þetta er bara svooooooo gaman! En verð samt að viðurkenna að ég spáði í því sama þegar ég vaknaði í morgun! Var samt alveg fín, á meðan ég hreyfði mig ekki!! En er búin að skána helling í dag, verð orðin fín á morgun ;o) Ætla líka með Bjarna Lár í sund á morgun, í fyrsta sinn, eftir það er ég viss um að ég verð orðin spræk sem lækur :o)
Annars er ég bara endalaust hamingjusöm með litla manninn minn, hann er algjört draumabarn, og það er ekki bara ég að vera hlutdræg! Hann er t.d byrjaður að fá pela á meðan ég er í vinnunni og svo var ein að spyrja mig hvernig ég hefði kennt honum að taka pela, og ég bara:"ha kennt honum? Ég stakk honum bara upp í hann..!" Hann er líka ekkert sérstaklega sérvitur á duddur eða neitt, er svoooooo þakklát fyrir að hann sé ekki með neitt vesen varðandi þetta. Svo er ég líka farin að láta hann sofa úti í vagni, ég var eitthvað þrjóskast með þetta, var viss um að þetta væri bara einhver asnaleg íslensk hefð, en ákvað samt að prófa og vá munurinn, á meðan hann tekur í mesta lagi 30-45 mín lúra inni, þá er hann að sofa í 2-4 tíma úti! Og kemur inn þvílíkt hress og ferskur, og reyndar organdi af hungri! Enda er hann líka að verða lítil rjómabolla! Jæja læt þetta duga að sinni, later...

Engin ummæli: