"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
fimmtudagur, nóvember 29, 2012
Annað nóvemberblogg...
Jæja er í blogggír þannig að ég ákvað að henda í bónus færslu ;o) Og ég er með skrípómyndir af mér og Bjarna Lár, það telst ekki með ;-þ
En hvar skal byrja...Ég vildi óska að ég gæti notað brjóstaþoku sem afsökun, en ég get það eiginlega ekki þar sem ég hef alltaf verið svona! o_O En ég fór s.s með BL í sund fyrir nokkru síðan, það gekk ágætlega, hann er nottla svo mikill garpur að hann grenjaði ekkert og allt í góðu, nema að það var ógeðslega katl í búningsklefanum og ofan í lauginni og loftið hjá innilauginni! Þannig að við vorum bara stutt en þegar ég kom heim þá átti ég mig á því að ég hafði gleymt sundfötunum mínum og Bjarna Lárs, og nýja Sebastian sjampóinu og hárnæringunni sem ég var að kaupa dýrum dómum! Hvernig gat ég ekki fattað að ég væri að fara heim með nánast tóma tösku?? En sem betur fer endurheimti ég þetta allt aftur! Sjúkk..! En svo lenti ég í því í fyrradag að ég var að fara á klóstið áður en ég fór að sofa, og fattaði það eiginlega ekki fyrr en eftir á að ég þvoði mér um hendurnar ÁÐUR en ég fór á klósettið! Hlýt að mega skrifa það á brjóstaþokuna..!
En svo byrjuðum við í ungbarnasundi í síðustu viku, búin að fara í 3 tíma. Og hann er búin að standa sig eins og hetja (en ekki hvað? ;o)). Kennarinn kom í fyrsta tíma og sagði að við tækjum þetta allt á hans forsendum og hann færi ekkert í kaf í fyrsta tíma og eitthvað. En svo í upphafi tímans þá heilsar hann uppá hvert og eitt barn og lyftir þeim upp í lófanum á sér og flest ná að standa alveg þráðbein. Svo kemur að Bjarna Lár og hann segir öllum að hann sé nýr og er 3 mánaða og eitthvað, setur hann svo í lófann á sér og lyftir upp fyrir höfuð og BL stóð bara alveg blýsperrtur þarna eins og herforingi! Og ég heyrði í fólkinu í kringum mig "jiiii hvað hann er duglegur" "oh hann er svo lítill, vá hvað hann er duglegur" og ég var svo stolt að ég fór næstum því að gráta..! Hehe litli spýtukallinn minn :o)
Dísús, svo var ógeðslega fyndið um daginn! Óskar Dagur, litli frændi minn, sem er ekkert svo lítill lengur, er að verða soddan gelgja og er alltaf með einhverja svona gelgjustatusa: "like-aðu" og ég segi þér á hvað leveli við erum", "like-aðu og ég rate-a þig á chattinu" og eitthvað svona gelgjudót, þannig að mér finnst mjööööög fyndið að "læka" statusana hans og bíð svo alltaf spennt eftir svari. Svarið sem ég fékk þegar ég gerði þetta síðast var svohljóðandi (held honum finnist það sem sagt ekki jafn fyndið og mér, að ég skuli "læka" allt sem hann gerir!):
"bjarney bréf:
mundiru vilja að hætta að like-a það sem er fyrir krakka á MÍNUM aldri .....
það er mjög pirrandi og ekki skemmtilegt vegna þess að þetta er fyrir krakka/unglinga ekki fertugar konur ;) ...........
bææ bææ good luck with your life :D
haha"
Dísús! Manni getur nú sárnað sko!! Ég er sko ekki fertug..! o_O En ég hef haft mig hæga á facebookinu hans eftir þennan pistil sem hann las mér!!
Svo ætla ég reyndar að fá að koma með eitt tuð! Ég var með eitthvað tuð um umferðarmenninguna hérna á Íslandi, og ég ætla að halda því áfram! Ég var að keyra heim um daginn og var að keyra upp Breiðholtsbrautina, og það var kennslubifreið á vinstri akreininni, sem keyrði afskaplega hægt þannig að ég tók fram úr þeim á hægri akreininni (já ég ákvað að byrja bara að keyra eins og hálfviti aftur "if you can´t beat them, join them"!) En hélt þau væru kannski á vinstri reininni því þau væru að fara að beygja til vinstri á næstu ljósum. En svo þegar ég beið á ljósunum til að beygja til vinstri þá lallaði kennslubifreiðin áfram upp Breiðholtsbrautina, löturhægt á vinstri akreininni! Það er ekki skrýtið að Íslendingar kunni ekki að keyra ef þetta er ökukennslan sem viðgengst..! Jæja tuð búið...
Oh dísús, ég gæti lamið bróður minn! Ég var eitthvað að hossast með litla manninn, gera svona gobbedígobb á hnénu og hann alveg öskraði og skríkti af gleði, þannig að mig langaði að ná því á vídeó. Ég bað mömmu um að taka vídeó og hélt ég hefði náð rosa flottu, nema að þegar ég bið hana að stoppa þá heyrði ég eitthvað furðulegt hljóð og átta mig á að hún hafði ekkert verið að taka vídeó! Hafði s.s ekki ýtt nógu fast á takkann í upphafi..! O_o
Jæja, til að gera langa sögu enn lengri þá bað ég bróður minn um að taka vídeó stuttu seinna og litli ennþá í brjáluðu stuði, og ég alveg í essinu mínu: "OoooooG GOBBEDÍGOBBEDÍGOBBEDÍGOBB!" Og nottla alveg í skýjunum að við værum að ná honum svona skellihlæjandi á vídeó (sérstaklega þar sem hann er ekkert að flagga brosunum svona að óþörfu). Nema að ég lít svo á bróður minn, sem er þá að bæla niður í sér hláturinn og beinir myndavélinni að mér! Þá var helv.... fíflið að taka mynd af mér allan tímann!! Eins og einhver algjör hálfviti:"OOOOOOOOG GOBBEDÍGOBBEDÍGOBBEDÍGOBB" Með sko þvílíkum tilþrifum til að fá Bjarna Lár til að hlæja sem mest!
Og ég varð pínu sár yfir að hann skyldi ekki ekki hafa notað tækifærið og náð litla kút á filmu, en gat samt ekkert verið eitthvað fúl út í hann, þar sem þetta var jú sennilega mjööööög fyndið! Ég hef ekki enn haft mig í að horfa á vídeóið, ætla samt ekki að eyða því, en efast um að ég geti horft á það í nánustu framtíð.. o_O
Svo er ég aðeins búin að vera að sprikla í handbolta, búin að spila 3 leiki með FH-b, spiluðum við Gróttu í gær, vorum ekki með neinn skiptimann! Þannig að gamla þurfti að gjöra svo vel og spila allan helv... leikinn, 60 mínútur..! Og myndin hér að ofan sýnir afraksturinn, harpixið fór ekki vel með hendurnar á mér! Skrokkurinn ágætur í dag, finn alveg fyrir þessu en hélt ég yrði verri. En allavega, nenni ekki meir :o) Later...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli