"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
föstudagur, desember 28, 2012
Desember blogg...
Jæja ég var að spá í að bíða bara fram í janúar með að blogga en ákvað svo að splæsa í eitt svona undir lok ársins, hef samt ekkert rosa mikið að segja! Jæja stikla þá kannski bara á stóru yfir árið (og þið verðið að afsaka að ég er hætt að setja myndir, set bara þessi leiðinlegu greinaskila myndir, þið verðið bara að vera facebook vinir mínir ef þið viljið sjá myndir :o)) Anyway, here goes...
Í byrjun árs var ég nýbúin að komast að því að ég væri ólétt og jafnframt að fyrrverandi kærasti/núverandi barnsfaðir minn myndi á engan hátt taka þátt í þessu (og hann hefur staðið við það), þannig að þá varð ég að ákveða hvort ég ætlaði að verða einstæð móðir í Bretlandi eða Íslandi. Ég var nýbúin að koma almennilega undir mig fótunum í UK og og á þessum tímapunkti var einmitt Orlando Bloom nýbúinn að hringja í mig! (spáið í ef ég hefði haft tíma fyrir hann og hann hefði verið geðveikt ánægður (en ekki hvað? ;o)) og ég væri þá bara núna einhvers staðar í Hollywood að reyna að koma honum í form!) Þannig að ég hafði ENGIN plön um að koma heim, sá ekki hvaða tækifæri myndu bíða mín hérna. Svo þegar kom að því að reyna að púsla þessu saman þarna úti, hvernig ég ætlaði mér að láta það ganga upp að vera ein með strákinn úti, með enga aðstoð, þá sá ég að það væri galið að ætla að láta reyna á það, og vá þegar ég hafði tekið ákvörðunina um að koma heim þá var eins og tonni hefði verið lyft af herðum mér! Og jafn ótrúlegt og það hljómar, þá myndi ég aldrei vilja skipta á því að vera einstæð móðir sem býr hjá foreldrum sínum og því að vera mögulega að þjálfa A-list Hollywood stjörnu! Ég er svo ofur hamingjusöm með litla manninn (eins og facebook vinir mínir hafa sennilega orðið varir við! Haha væri fróðlegt að vita hversu margir eru búnir að eyða mér út eða fela mig í fréttaveitunni! Komnir með hundleið á mér..! :-þ) og er búin að njóta hverrar sekúndu síðan ég átti hann, finnst hann fullkomnasta vera í heimi! Svo yndislegur og góður og sætur og bara fullkominn á allan hátt! Og ÉG Á HANN! Alveg ein meirsegja ;-D Og ég er líka alveg óendanlega þakklát fyrir alla hjálpina sem ég hef fengið, að foreldrar mínir hafi verið tilbúin að taka mig inná heimilið með ungabarn,og systur mínar og vinkonur fyrir að hafa leyft mér að njóta góðs af vögnum (fékk sko 3 lánaða!), bílstól, fötum og dóti sem börnin þeirra voru hætt að nota. Ég hef sagt það oftar en einu sinni að ég er sennilega minnst einstæða, einstæða móðir í heiminum! Er með ótrúlega gott fólk í kringum mig, og ansi oft verið með tárin í augunum yfir því hvað fólk er góðhjartað, bæði vinir og vandamenn, en líka fólk sem ég þekki lítið sem ekkert sem vill létta undir með okkur. Það er svo sannarlega gott að vera Íslendingur þegar lífið gefur manni áskoranir :o) jájá geðveikt væmin ég veit..!
Jæja svo flutti ég heim í sumar og var bara eitthvað að hengslast þar til ég átti í ágúst, og gaman að segja frá því að við komumst loksins inní íslenska kerfið í gær! jei, erum orðin sjúkratryggð! :-D En ég hafði sem sagt verið of samviskusöm og byrjaði að vinna í hlutunum of snemma þannig að við lentum í einhverju svartholi og fengum ekki undanþágu inn í kerfið þannig að við þurftum að bíða í 6 mánuði. Ég er svooooo þakklát fyrir að Bjarni Lár er búinn að vera jafn hraustur og hann hefur, vona samt að hann fari ekkert að taka uppá því núna að verða veikur! Er að spá í að gera eina undantekningu á myndabanninu mínu, þetta er uppáhalds myndin mín af honum í augnablikinu, fór á jólakortin, finnst hann eins og lítill jólaálfur, elsk´essa mynd!
En já, við áttum sem sagt fyrstu jólin okkar saman og það var alveg yndislegt. Miðað við að fá bara jólagjafir frá móðurfjölskyldunni þá fékk litla dýrið bara alveg hreint fullt! Ég gaf honum leikstöð, sem er klárlega ein bestu kaup sem ég hef gert! Hann elskar hana (æ ég geri eina enn undantekningu, set mynd af honum í leikstöðinni með allar jólagjafirnar sínar, ekkert smá kátur!) Þarna getiði líka séð hvað hann er orðinn feitur og pattaralegur!! Kellan greinilega með gæðaprótein í spenunum :-þ Og svo fékk hann fullt af dóti og fötum, fékk nokkra pakka senda að utan, frá fólkinu sem ég leigði hjá og nokkrum kúnnum og vinum, þótti ekkert smá vænt um hversu margir voru greinilega að hugsa til okkar :o)
Annars hef ég nú ekki mikið annað að segja frá, ah nema kannski eitt sem mér finnst soldið skemmtilegt, ég vissi alltaf að Gísli á Uppsölum væri skyldur mér en ég vissi ekki hversu náskyldur! Hann og afi minn voru systkinabörn! Og ekki bara öðru megin, heldur báðum! Sem sagt, pabbar þeirra voru bræður og mæður þeirra systur! (voru samt ekki svona innræktaðir sko, pabbarnir og mömmurnar voru ekkert skyld!) En mér finnst þetta ansi skemmtilegt, og eins og ég sagði í einni facebook færslunni, það þá allavega útskýrir af hverju ég er svona feimin og ómannblendin!! ;-þ hehe ok kannski er það ekki útskýringin, ég veit ekki hvað það er að vera feimin og stundum tala ég svo mikið að ég þarf að segja sjálfri mér að þegja! Ekki upphátt sko, bara svona inní hausnum, væri samt samt soldið fyndið ef ég myndi labba um segjandi sjálfri mér að þegja..! o_O jæja læt þetta duga, ef þið eruð facebook vinir mínir þá getiði skoðað jólamyndir af litla jólaálfinum mínum, ef þið viljið er að segja, er ekki að neyða ykkur til að skoða myndirnar mínar!
https://www.facebook.com/#!/media/set/?set=a.10151377800120041.531394.579915040&type=1
Allavega, vona að þið hafið átt gleðileg jól og gangið hægt um gleðinnar dyr á gamlárskvöld! Eða svona frekar hægt ;o) Og eigið farsælt komandi ár :o)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli