"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
mánudagur, febrúar 11, 2013
loksins blogg...
jæja ætli það sé ekki kominn tími á færslu! Meira að segja búið að rukka mig um nýja færslu og allt! hehe komið nýtt ár og allt! Gleðilegt nýtt ár og sonna :)
En það er ansi margt búið að gerast síðan síðast! Ég er byrjuð að vinna og Bjarni Lár kominn til dagmömmu. Ég fékk s.s vinnu sem kennari í Rimaskóla, er umsjónakennari í 7.bekk. Það var það sem mig langaði að gera, langaði að fara að kenna en langaði ekki að fara að vinna sem íþróttakennari þannig að ég lagði upp með að fá vinnu sem almennur kennari og röð tilviljana réð því að þessi vinna datt upp í hendurnar á mér. Mér buðust reyndar 3 aðrar kennslustöður en leist best á þessa. Þetta er bara afleysing en vonandi leiðir til einhvers meira :o) Þetta gerðist allt mjög hratt, fór í viðtal á fimmtudegi, fékk svo símtal á þriðjudeginum og beðin um að byrja á fimmtudeginum! Og þó að það sé ansi margt sem maður þarf að koma sér inn í þá finnst mér þetta voða gaman, mjöööög krefjandi og þetta getur alveg tekið á mann, en þetta eru góðir krakkar. Þannig að ég er bara vongóð og bjartsýn á framhaldið :o)
En þegar þetta kom upp þá hringdi ég í dagmömmuna sem ætlaði að taka við honum 6 mánaða (sem er 15.feb) og sem betur fer gat hún tekið strax við honum en heimskulegu lögin gera ekki ráð fyrir niðurgreiðslu fyrr en við 6 mánaða aldur og ég veit ekki hvort þið vitið það en þá kostar mánuðurinn hjá dagmömmu um 90 þúsund! Sem betur fer þurfti ég ekki að borga fullan mánuð en þetta var nóg samt. Það er næsta mál sem ég ætla að breyta þegar ég verð kosin á þing, að niðurgreiða dagmömmur frá þeim tíma sem þeirra er þörf! Ég held að pælingin sé sú að "neyða" fólk til að vera heima hjá barninu sínu í allavega 6 mánuði, en það eru bara ekkert allir sem hafa tök á að vera heima svona lengi á þessum fæðingarorlofslaunum, og stundum er það bara bæði móður og barni fyrir bestu að maður fari fyrr á vinnumarkaðinn! Sérstaklega þegar maður flytur í burtu í 2 ár og missir ÖLL réttindi sem Íslendingur og fær 0 kr. í fæðingarorlof! (nei ég er ekkert svo bitur! hehe), og já bara svona til að bæta aðeins við þetta þá fékk ég ekki heldur barnabætur... #íslandbestíheimi
Bjarni Lár er búinn að standa sig eins og hetja hjá dagmömmunni, ég spurði hvort hann þyrfti ekki aðlögun, þá sagði hún: ég hef engar áhyggjur af hinum, sennilega frekar bara þú sem þarft að aðlaga! Enda var mjög skrýtið að fara allt í einu frá honum svona lengi, en engu að síður góð tilfinning að vera byrjuð að vinna og þéna pening, þó að kennaralaunin séu nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, enda mun ég halda áfram að þjálfa í Sporthúsinu þar til ég verð komin á almennilegt flot og get skapað mér og BL gott og áhyggulaust líf :o) En hann er svo mikill snillingur, ég er t.d alveg viss um að ég eigi besta barn í heimi! Fyrir utan að hann er eins og ljós hjá dagmömmunni, þá tók ég hann með mér í vinnunni í 2 daga (dagmamman var veik), og hann sat bara og brosti og heillaði alla upp úr skónnum! Og krakkarnir alveg elskuðu að hafa hann þarna, hann t.d sofnaði í einni kennslustundinni og ég sagði við krakkana að ég yrði rosa þakklát ef þau myndu reyna að vekja hann ekki, og þau nánast hvísluðu, og hann svaf vært í heila kennslustund :o)Reyndar eina sem kemur í veg fyrir að BL sé algjörlega fullkomið barn er að hann er soddan svefndólgur! Síðan hann fæddist hefur hann vaknað ansi oft á nóttunni til að drekka, er sísvangur! (og stækkar í samræmi við það!), nema að nú er hann byrjaður að borða og því farinn að drekka minna á nóttunni EN hann er samt alltaf vaknandi! Nú er hann að vekja sjálfan sig með því að velta sér óvart á magann og fattar ekki að velta sér tilbaka! Er svo sterkur og stífur að hann liggur alveg blýsperrtur grenjandi á mömmu sína til að koma og velta sér tilbaka og stinga duddunni uppí sig! Og ef hann er ekki að vekja sig með því að velta sér á magann þá er hann að festa lappirnar í rimlunum eða eitthvað annað álíka gáfulegt! Og ég skal alveg viðurkenna að stundum tekur alveg 1-2 kaffibolla á morgnana til að koma heilasellunum í gang! (svo má alveg deila um almenna virkni þeirra, en það er allt annar handleggur!) Svo reyndar til að toppa þetta þá er litli dólgurinn iðulega sofandi þegar vekjaraklukkan hringir og á meðan ég dröslast framúr, algjörlega gegn mínum vilja, þá liggur hann sofandi á sínu græna, og til að toppa þetta allt saman þá hrýtur litla gerpið! Eeeeen hann er svo mikill æðibiti að öllu leyti að það er ekki erfitt að fyrirgefa svona dólgslæti af og til, eða á hverri nóttu..! o_O
Jæja, svo átti ég víst afmæli í gær, kellan orðin 34 ára! jæks! En eins og ég segi alltaf, það er miklu betra að verða 34 heldur en að verða það ekki :o) Var bara með lítið fjölskylduðboð, með vöfflum og bollum og einni afmælisköku :o)
Annars er lítið annað að frétta, líf mitt er bara vinna, Bjarni Lár og æfingar af og til, er búin að vera að reyna að eiga eitthvað félagslíf en ég bara meika það eiginlega ekki þessi misserin, ef ég er ekki að vinna, æfa eða bralla eitthvað með BL þá langar mig bara að sofa! En ég fæ vonandi nennuna mína tilbaka þegar hann verður farinn að sofa alla nóttina, hvenær sem það nú verður! En nóg í bili, later...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Pretty seсtion of content. I just stumbled upon your websіte and in accession capital to asseгt
that I get actually enjoyeԁ account your blog pоѕtѕ.
Any ωay I'll be subscribing to your feeds and even I achievement you access consistently rapidly.
Visit my page: tens therapy
І simply сould not go aωay yоur website before suggesting that Ӏ extremely loѵed the stanԁard info a ρerѕon pгoѵіde in your visitoгs?
Ιs gοіng to be back regulaгly to check οut
new posts
Here is my webpage :: tens unit for sale
Also see my web site - safely using tens units
Skrifa ummæli