fimmtudagur, mars 21, 2013

Marsblogg :o)

Jæja ætli það sé ekki löngu kominn tími á færslu! Svo sem ekkert rosa mikið að frétta, er bara að vinna, bæði í Rimaskóla og svo að þjálfa í Sporthúsinu og gengur bara vel. Mér finnst ótrúlega gaman að kenna, þó að það sé jafnframt mjög krefjandi, en ég get alveg séð mig fyrir mér í þessu þar til ég fer á eftirlaun! haha ok reyndar bara komnir 2 mánuðir, en ég hef alltaf verið í kennslustörfum, þó það hafi ekki verið beint inní kennslustofum, þannig að ég er bara svona kennari at heart vil ég meina :o) (ok talið við mig eftir 5 ár og athugið hvort ég verði útbrunnin!!) Annars vil ég meina að ég sé mjög skemmtilegur kennari, en ég er samt alveg ströng sko, en vel að hafa fáar og einfaldar reglur, t.d er ein reglan sú að ef þau koma frá útlöndum þá á alltaf að kaupa nammi handa kennaranum í fríhöfninni (er búin að fá eina dollu af Tyrkisk pepper nú þegar (uppáhalds nammið mitt sko), og svo átti kennarinn að fá 10% af öllu sem safnaðist á öskudag (sagði það bara of seint þannig að ég fékk bara einn pez kall), og svo mega þau koma með páskaegg nr. 1 í skólann á morgun, og þið megið giska hvaða regla er í gildi, jú einmitt, koma með páskaegg handa kennaranum líka..! Svo eru nottla alltaf nokkrir nemendur sem taka þetta skrefinu lengra, og t.d eru þriðjudagar uppáhalds dagarnir mínir, því þá er heimilisfræði hjá krökkunum, og það er ein sem passar alltaf uppá að það sé bakað auka fyrir mig! :-D #égelskakennarasleikjur en svo er ég reyndar ekkert skárri, fer alltaf upp með góssið mitt og gef konunum á skrifstofunni #kaupimérvini Annars er ég aðeins að linast í myndabanninu á blogginu mínu, er búin að stilla það þannig að nú finnst bloggið mitt ekki gegnum leitarvélar, var fljót að breyta því þegar ég fékk kennarastöðuna! Enda kom það á daginn að þau eru nánast öll búin að gúggla mig og voru búin að því áður en ég byrjaði að kenna þeim! Enda vissi ég að það myndi gerast, gúgglaði sjálfa mig svona til öryggis og sá að það var ekkert vafasamt sem kom upp! haha veit svo sem ekki hvað það ætti að vera en allur er varinn góður!! Set hérna nokkrar myndir úr ungbarnasundinu. Kosturinn við að vera kennari er að það er ákveðinn sveigjanleiki, en bara svona til að hafa það á hreinu þá mun ég lemja viðkomandi fast í öxlina sem mun segja að að laun kennara séu í samræmi við vinnuframlag! Þó að ég hafi getað hætt í gær kl.13 til að fara í ungbarnasund með Bjarna Lár, þá þýddi það samt að ég sat frá 19-23 að fara yfir verkefni og próf, en það er samt mjög gott að hafa þennan sveigjanleika, þannig að ég get haldið áfram í ungbarnasundinu og klárað það sem þarf svona eftir eigin hentisemi :o) (get samt ekki beðið eftir páskafríinu! ;-þ) En já, ég þarf sem sagt að hafa myndir þar sem það koma ekki greinaskil annars!! Svo er ég með BL í smá svefnþjálfun núna, þessi dólgslæti á nóttunni verða að taka enda! (þó að hann sé reyndar yndislegur svefndólgur og alltaf fyrirgefið um leið, þá er komið mál að linni!) En ég er að láta hann lúlla í sínu rúmi og hætta með næturgjafir, ein nótt búin, gekk ágætlega, hef mikla trú að nóttin í nótt muni ganga eins og í sögu :-D Hann allavega bara lagðist útaf og sofnaði sjálfur í eigin rúmi áðan, þurfti að fara einu sinni inn til að laga duddu en svo bara steinsofnaði hann. Svo er ég með pela með vatni í fyrir nóttina. Meira að segja Lion King pela sem við unnum í Nuk leik. Já gaman að segja frá því! Vó var næstum því búin að gleyma því! Áramótaheitið mitt var s.s að taka þá í ÖLLUM facebook leikjum sem ég fyndi, og ég stóð sko við það, var að gera facebook vini mína geðveika með öllum þessum "like og deili" leikjum! Var að deila allskyns drasli sem mig langaði ekkert í, en langaði samt bara að vinna eitthvað! (svo voru reyndar nokkrir fb vinir mínir að espa upp þessa vitleysu í mér með því að benda mér á hina og þessa leiki!) en jæja, í lok janúar þegar ég var ekki búin að vinna neitt þá ákvað ég að hætta þessari leikjafíkn. Nema að svo í kringum miðjan febrúar ca. þá datt inn þessi Nuk leikur, s.s gjafakarfa með allskyns barnavörum, og ég ákvað að gefa þessu einn séns og deildi þessu með orðunum "það verður spennandi að sjá hvort sonur minn sé heppnari en ég". Og viti menn, ég vann!! Og ég var í alvörunni svo hamingjusöm! Var brosandi upphátt ein fyrir framan tölvuna í ca. hálftíma #Corky Held reyndar að facebook vinir mínir hafi verið enn hamingjusamari! reyndar voru nokkrir áhyggjufullir um að þetta yrði bara olía á eldinn hjá mér og nú yrði ég óstöðvandi! Eeeeen ég ákvað að hætta á toppnum ;o) Set hérna inn mynd af litla vinningshafanum sem er í skýjunum með körfuna sína! Og liggur núna lúllandi inn í rúmi með Lion King snuðið sitt... Annars er lítið annað að frétta, litli æðibitinn minn er alltaf jafn mikill æðibiti, hann er svooooo duglegur! Kominn uppá 4 fætur og er við það að byrja að skríða, farinn að sitja alveg sjálfur, borða eins og herforingi og svo er fyrst tönnslan að koma upp :-D Mér leið eins og barni á jólunum þegar ég sá það áðan! Þarf víst ekki mikið til að gleðja mann! Var einmitt að hugsa líka, það er ekki eins og það sé eitthvað afrek að barnið manns fái tönn, það er bara eðlilegur líkamsþroski! En þetta er samt einhver áfangi, og ég er sko voða stolt af barninu mínu að fá svona fína tönnslu! :o) Nenniggi meir, farin að lúlla, later...

1 ummæli:

sisi sagði...

vá ér að spá í að veða kennari, langar í allt þetta nammi ! :) hahah