þriðjudagur, mars 26, 2013

elska páskafrí :-D

Vá hvað er næs að vera í páskafríi! Var nottla búin að vera í fæðingarorlofi heillengi (eða 5 mánuði, bara þjálfa seinnipartinn) en maður kann að meta fríið betur þegar maður er búinn að vera að vinna áður! haha (og á pening til að actually gera eitthvað! :P) En reyndar byrjaði fríið á því að Bjarni Lár fékk eyrnabólgu, AFTUR! Í þriðja sinn á rúmum mánuði :-( En hann var allavega svo tillitsamur þessi elska að hann beið þar til ég var komin í páskafrí þannig að ég þyrfti ekki að taka meira frí úr vinnu! Alveg ömurlegt að vera nýbyrjaður í vinnu og þurfa að vera svona mikið frá :-( Reyndar var ég sjálf veik á tímabili og svo hann, en svo hefur dagmamman verið frá í 3 daga og bara hafði ekki samvisku í að vera meira frá vinnu þannig að ég tók BL bara með mér í vinnuna! Hann er svo mikið yndi að það er ekkert mál, situr bara og dundar sér og ELSKAR athyglina frá krökkunum, og þau elska að hafa hann (þó að ég voni nú að ég þurfi að gera það sem sjaldnast!) En já, ég fer sjálf reglulega til kírópraktors og hann var að segja að þeir gætu hjálpað til við eyrnabólguvesen, og ég ákvað eftir síðustu eyrnabólgu að ef hann fengi aftur að þá myndi ég fara með hann til Magna (hjá KPI, þar sem ég fer), og ég fór s.s með hann áðan, og þetta var alveg soldið magnað. Hann er yfirleitt með eyrnabólguna vinstra megin, og svo þegar Magni var að prófa að snúa höfðinu til hliðar (hann lá á bakinu) þá var hreyfingin mjög heft til vinstri, þegar hann var bara kominn rétt til hliðar þá var hreyfingin svo heft að Bjarni Lár vildi hreyfa allan líkamann með höfðinu (gat sem sagt ekki bara hreyft höfuðið). Svo eftir smá hnykk og örlítinn grát, þá prófaði hann aftur og fullkomin hreyfing til vinstri! Verður spennandi að sjá hvort þetta virki! Ég sagði allavega við hann að ef hann fengi eyrnabólgu aftur innan mánaðar þá vildi ég fá endurgreitt :-þ Svo var reyndar mjög fyndið (eða mér fannst það mjög fyndið!), Bjarni Lár alveg "blaðraði" eins og vindurinn eftir tímann, bæði við Magna og annan sem vinnur þarna og þeir höfðu mjög gaman að því hvað hann var að "spjalla" mikið. Þá leit ég á Magna og sagði:"humm mér sýnist þú heldur betur hafa losað um málbeinið hjá honum!" (mesti fimmaurabrandari í heimi en mér fannst ég mjög fyndin! Þið skiljið, hnykkjari-losa-málbein!) ok brandarar eru ekki fyndnir ef maður þarf að útskýra þá, ætla bara að hætta að tala núna... Hey já, svo er litla gerpið komið með tönn! Loksins! Búið að bíða eftir henni síðan hann var 3 mánaða, þegar hann byrjaði að slefa eins og krani og nudda góminn..! o_O Jæja svo var svona "book character day" í skólanum á föstudag, og ég mætti sem Viddi úr Toy story og sló heldur betur í gegn hjá nemendum, og þá helst 5.bekkingunum! Ég var nú ekkert að segja þeim það, en þetta var algjör skítaredding! haha hafði 10 mínútur til að redda þessu og hljóp inní Hagkaup, og þar var 50% afsláttur af öskudagsbúningum, ég fann Vidda grímu og svo þetta fína vesti (fyrir 6-7 ára) og útkoman bara alveg hreint svona ljómandi góð :o) Þessi mynd var tekin um daginn, eða um nóttina reyndar, ein af svefnlausu nóttunum þegar hann var með hita og eyrnabólgu, hann grét og grét, sem er mjög ólíkt honum, þar til ég setti Baby Einstein á ipadinn, og þá þagnaði hann! Og hann fékk að kúra upp í rúmi að horfa á ipadinn. En er annars með hann í svefnþjálfun, að láta hann sofa í eigin rúmi og hætta með næturgjafir. Gekk ágætlega 2 nætur, svo varð hann veikur sem setti allt úr skorðum, en er kominn aftur í sitt rúm núna. Tók 5 mínútna skorpu áðan, en steinsofnaði svo. Hann er alveg kominn með skap, en er samt svo geðgóður að það er ekki fyndið! (veit ekkert hvaðan hann hefur það! haha) En ég læt þetta duga að sinni, later...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

We're a group of volunteers and starting a new scheme in our community. Your web site offered us with valuable info to work on. You've done a fοrmiԁablе job аnd οur entiгe community will be thankful to you.


Also νisit my webpage :: how to buy and sell cars for profit

Nafnlaus sagði...

Hef lesið bloggið lengi og haft gaman af:) mæli með að fara til háls- nef og eyrnalæknis ef eyrnabólgan verður þrálát, hef eignast "ný" börn eftir að þau fengu rör. Kv. Kristín

Nafnlaus sagði...

Já ég ræddi það einmitt við lækninn síðast, að ég vil frekar að hann fái rör heldur en endalaust pensilín! En það er vonandi að þetta sé búið í bili, komið gott..!

En takk fyrir að lesa og kommenta :o)

kv.Bjarney