föstudagur, maí 17, 2013

maí blogg...

Jæja ákvað að henda í eina færslu :o) Svo sem ekki mikið að frétta (hvað ætli ég hafi byrjað margar bloggfærslur á þessum orðum?? haha) en hún móðir mín hafði einmitt orð á þessu við mig um daginn. Hún sagði við mig að ef ég vildi fara út á kvöldin þá væri minnsta mál í heimi að passa, að ég gæti fengið einskonar "pabbahelgar", og svo sagði hún (orðrétt):"ég meina, þú þarft nú að eiga smá líf!" Og þegar móðir manns er farinn að hafa áhyggjur af því að maður eigi ekki líf þá er sennilega kominn tími á að fara að taka sig á og jafnvel fara að kíkja út á lífið svona hvað af hverju..! o_O En svona fyrst að ég á ekkert líf þá ætla ég að halda aðeins áfram að blogga um barnið mitt :o) Ég hef eitthvað aðeins verið að tuða um næturgjafir og annað, hef ætlað að taka þær út og svo hætt við að taka þær út o.s.frv. En þessar endalaus næturvaknanir eru að verða pínu þreytandi, sérstaklega þar sem hann er voða vælinn á nóttunni og það er svo úr karakter, hann er algjörlega laus við allt drama þetta barn! En hann er náttúrulega búinn að fá í eyrun 4 sinnum á síðustu 4 mánuðum, var svo fá framtennurnar sínar þannig að það fór 2 nætur í það, og svo fórum við til læknis í fyrradag og þá kom í ljós að hann er með mjög mikinn vökva í báðum eyrum :-/ Læknirinn einmitt spurði mig hvort hann væri að vakna mikið á nóttunni og þá er þetta sennilegast skýringin. Og vá hvað ég er fegin að vera svona veiklunduð gagnvart barninu mínu og alltaf látið eftir honum, hefði dáið úr samviskubiti ef ég hefði látið hann "grenja út" og svo komist að því að honum er hreinlega bara illt :-( Og það léttir sennilega aðeins á þrýstingnum að fá að súpa aðeins. En hann fer mjög líklega í rör í byrjun júní, við förum út 16.júní og læknirinn ætlar að kíkja á hann eftir ca. 3 vikur og ef það sama er upp á teningnum þá að þá verður strax farið í röraísetningu, en eyrnasagan hans orðin ansi svæsin eins og læknirinn orðaði það... Eins og ég segi þá eru þessi dólgslæti á nóttunni mjög úr karakter en hann er eitt geðbesta barn sem ég hef á ævinni kynnst! (þó ég sé hlutdræg! En dagmamman var í fríi um daginn þannig að ég tók hann með mér í vinnuna, hann var með mér frá 8-13 og var bara eins og hugur minn allan tímann. Sat á gólfinu og lék sér, skreið aðeins um skólastofuna og brosti framan í alla sem litu á hann (og krakkarnir elska að hafa hann, ótrúlega gaman að sjá "mjúku" hliðarnar á mestu gaurunum :o)), svo þegar hann var orðinn sybbinn þá setti ég hann í nýja manduca burðarpokann sinn og hann lúllaði framan á mér á meðan ég las upp stafsetningapróf. Svo vaknaði hann eftir 40 mínútna lúr og hélt bara áfram að brosa framan í mann og annan. Mér finnst hann líka alveg ótrúlega sniðugur og hann er alltaf að kanna heiminn, en um daginn þá varð allt í einu voða þögn, og það segja mér eldri og vitrari konur að þegar það verður þögn að þá er mjöööööööög líklega eitthvað í gangi! Og viti menn, ég labba inn í eldhús og þar situr minn maður búinn að hvolfa úr kökuboxi sem honum hafði einhvern veginn tekist að opna og sat þarna eitt bros með eina köku uppí sér og aðra í hendinni! Svo var ég vonandi að gera rosalega góð kaup! :-þ Fékk það á heilann að mig langaði í hjólavagn, s.s vagn sem ég festi aftan í hjólið mitt og drösla barninu um í honum, og þar sem ég fékk þetta á heilann þá að sjálfsögðu var ekkert mál að réttlæta þessi kaup fyrir sjálfri sér, öryggi og þægindi o.s.frv :o) Var svo heppin að fá einn notaðan í góðu ástandi, þannig að nú er bara að gjöra svo vel að dröslast út að hjóla! Með barnið í eftirdragi og að sjálfsögðu var keyptur hjálmur á litla dýrið... Annars eru bara rétt um 4 vikur þar til við mæðginin leggjum land undir fót og förum til UK. Byrjum í Skotlandi í 4 daga og svo til Henley (þar sem ég bjó) í 10 daga. Hlakka ekkert eðlilega mikið til! Vona bara að við fáum gott veður til að upplifunin verði enn betri, það er bara allt betra í sól! En ég þarf nottla að lúkka mitt besta þannig að ég er búin að vera rosa dugleg að æfa :-þ Var að verða heldur grönn, hef ekki verið svona létt síðan ég var 15 ára, en ég ákvað að taka mig á og endurheimta eitthvað af fyrrverandi vöðvunum mínum tilbaka! Og keypti mér glútamín og prótein til að hjálpa til við "bölkið" en ég elska þetta fyrirbæri sem er kallað vöðvaminni! Ákvað að prófa upphífingar með eigin líkamsþyngd í gær, sem ég hef ekki gert síðan ég varð ólétt og náði að kreista út 3 sett af af 8-10-8, kom sjálfri mér á óvart en er líka að taka afleiðingunum í dag! #harðsperrur Uh jæja held ég hafi ekkert meira að blogga um, í bili allavega :o) Er reyndar alltaf komin með heilu bloggfærslurnar í hausnum en svo man ég ekkert nema bara eitthvað að segja frá Bjarna Lár! vúhú! hehe en skal reyna að finna eitthvað sniðugt að blogga um á næstunni, later...

Engin ummæli: