Hef svo sem ekkert mikið að blogga um, en skal gera mitt besta ;o) Þegar ég byrjaði á þessari færslu þá var ég bara í góðu tjilli að horfa á kosningavöku, var einmitt að hugsa það í dag hvað ég væri orðin gömul af því að ég hlakkaði til að horfa á kosningavökuna! En ég náði auðvitað ekkert að tóra allan tímann, held mér hafi aldrei tekist að halda mér vakandi allan tímann. En ekki það, það er aldrei leiðinlegt að kúra með þessum hérna:

Annars er það að frétta að Bjarni Lár er byrjaður að skríða (var ég nokkuð búin að skrifa um það? hehe). Var búinn að vera á 4 fótum og "ready to go" síðan hann var 6 mánaða, en svo bara fór hann af stað. Er ennþá frekar varkár, en er alveg ótrúlega duglegur, set hérna vídeó af honum (ef þið eruð á facebook þá getiði séð það) Fékk nokkur komment á sokkana og inniskóna, en ég var bara svo spennt yfir þessu afreki hans að ég fattaði ekki einu sinni hvað ég var ótöff! Stílistinn minn yrði ekki impressed! Ef ég væri með stílista er að segja... (verðið að copy/paste-a linkinn)
https://www.facebook.com/bjarneybee?ref=tn_tnmn#!/photo.php?v=10151604928380041&set=vb.579915040&type=3&theater

En ég veit að ég er sennilega mest pirrandi mamma í heiminum, en ég er ofurstolt af litla gerpinu mínu! Alltaf póstandi myndum af honum og eitthvað! En svo hef ég nokkrum sinnum heyrt að að Bjarni Lár sé líkur mér (og ég elska að heyra það! Sérstaklega í ljósi þess að hann var sem snýttur út úr nefinu á (þessum svokallaða) föður sínum í upphafi!) og svo fann ég mynd af sjálfri frá mér því að ég var á sama aldri og hann, og ég er ekki að grínast, við erum eiginlega bara alveg eins!! haha ógeðslega fyndið! Set hérna inn mynd af því :o)

Svo var eitt sem ég var að rifja upp um daginn, veit ekki einu sinni af hverju, en ég held ég hafi verið svolítið steikt barn! Ég var sem sagt mjög smámælt, þ.e.a.s ég gat ekki sagt "S" lengi vel, sem kom sér ekkert sérstaklega vel þegar maður á bróðir sem heitir Sveinn Ingi (Þveinn Ingi hét hann þar til ég var ca. 8 ára). En að öðru leyti var ég mjög skýrmælt, var t.d einhvern tímann í útvarpsviðtali þar sem ég sagði viðkomandi frá því að kennarinn minn í 6 ára bekk hjá ÞuRRíðuRR, en núna hét kennarinn minn ARRnfRíðuRR, s.s mikil áherslan á ERR! En já, ég átti frænda og vinkonu sem áttu í erfiðleikum með errin og mér fannst það þjúklega fyndið! Var alltaf að þtríða þeim, bað þau um að þegja einhver orð með erri, eftirfarandi þamtöl voru anþi algeng:
Ég:"Guðlaug, þegðu rúm!"
Guðlaug:"ðúm",
ég:"hahahahah! Pétur, þegðu rúm!"
Pétur:"ðúm",
Ég:"hahahahah! Jæja förum að þofa..."
Set hérna inn mynd af mér og umræddri Guðlaugi (vona að það sé í lagi að ég hafi birt þessa mynd!) En ég er s.s þessi feita hægra megin...

Svo var ég að fatta hvað er geðveikt stutt í sumarfrí! Skólinn er búinn 13.júní, og svo erum við (ég og BL) farin til Bretlands 16.júní, fór einmitt að sækja um vegabréf og láta taka mynd af honum í síðustu viku, endalaust krúttlegt! En við verðum alveg í 2 vikur úti, en þetta verður mjög hagstætt ferðalag fyrir okkur, þarf bara að borga flugið þar sem við fáum fría gistingu. Ég bauðst til að borga en var sagt að láta mér ekki einu sinni detta það í hug! :o) En vá ég hef ekkert meira að blogga um, allavega ekki sem ég man í augnablikinu! Ætla að fara að gera eitthvað af viti! Læt hérna tvær af litla gerpinu frá því að við fórum á róló í fyrsta sinn ;o)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli