þriðjudagur, maí 20, 2014

enn ein færslan :)

Ég trúi ekki hvað tíminn líður hratt! 3 vikur eftir af skólanum! Sumarfrí bara handan við hornið!

Bjarni Lár er að byrja í aðlögun í stóru barna leikskólanum núna í byrjun júní, það er svokölluð þátttökuaðlögun sem þýðir að ég þarf að vera með honum 3 heila daga. Reyndar finnst mér gott að fá að vera með honum þarna til að byrja með. Einhver sagði að þetta yrði ekkert mál þar sem hann er búinn að vera á leikskóla í tæpt ár, en ég satt að segja held að það gæti mögulega flækt hlutina. Hann er vanur að fara á ákveðinn stað, með ákveðnu starfsfólki og ákveðnum krökkum, allt í einu er ALLT breytt og hann ekki nógu gamall til að maður geti útskýrt þetta almennilega fyrir honum, þannig að það er pínu hughreystandi að ég verð með honum til að byrja með þó að þetta sé svolítið langur tími til að þurfa að vera frá vinnu :-/ En ég hef samt engar áhyggjur af honum, þessi krakki er mjöööög meðfærilegur. Þetta á ekki eftir að verða neitt vandamál ef ég miða út frá fyrri reynslu, en mér finnst samt hughreystandi að fá að vera þarna með honum til að byrja með :)
En heimilislífið gengur ótrúlega vel, kisinn okkar hann Pjakkur er alveg magnaður! Bjarni Lár fær þvílíkt að dröslast með hann og er ótrúlega ljúfur og góður við hann. Ef við sitjum upp í sófa að horfa á sjónvarpið þá er Pjakkur iðulega hjá okkur og Bjarni Lár teygir sig reglulega bara til að strjúka honum, en er samt ennþá með augun límd á sjónvarpinu, þetta er mjög fyndið. En það er alveg merkilega hvað kisi lætur sig hafa, hefur t.d fengið tvær ferðir ofan í baðið! En virðist ekkert kippa sér neitt stórkostlega upp við það. Hann varð reyndar pínu pirraður þegar Bjarni Lár togaði hann á skottinu undan stól, en hann klóraði hann greinilega ekki mjög fast því BL var mættur til að toga aftur í skottið á honum 5 mínútum seinna! Setti svo bara upp skeifu og kreisti fram krókódílatár þegar ég skammaði hann fyrir það, var reyndr frekar krúttlegt. Svona svipað krúttlegt og þegar Bjarni Lár verður afbrýðissamur út í Pjakk, þá koma stundum tár. En ég held hann hafi bara gott af því að deila mömmu sinni aðeins!

Verandi svona einstætt foreldri þá er náttúrulega ekki til neitt sem heitir "privacy", þannig að allar klósettferðir t.d fara fram fyrir opnum dyrum þar sem ekki getur maður skilið óvita eftir eftirlitslausan! Þannig að ég er löngu orðin vön því að Bjarni Lár stendur fyrir framan mig með hendur á hnjánum á mér þegar ég er á klósettinu og núna stekkur kisi alltaf í fangið á mér, þannig að ég þarf að gjöra svo vel að athafna mig á klósettinu með einn lítinn gutta beint fyrir framan mig sem fylgist með öllu af miklum áhuga og svo kött í fanginu, mjög eðlilegt heimilislíf hjá okkur í Jötnaborgunum! (ok too much info, en mér finnst þetta samt mjög fyndið og eiginlega of gott til að deila ekki ;)) Annað sem er líka furðulegt er að ég held að sonur minn sé einhvers konar eyrnaperri! Hann vill bara endalaust fikta í eyrunum á mér, sérstaklega þegar hann er að fara að sofa og uppáhalds staðan hans er þegar við liggjum með andlitin alveg ofan í hvort öðru )hann liggur stunum ofan á andlitinu á mér) og fær að halda í bæði eyrun í einu! Mjög krúttlegt en samt ekki alltaf mjög þægilegt fyrir mig og ég er líka með smá áhyggjur af því að eyrun á mér aflagist..! o.O

Og annað sem er reyndar líka varðandi það að vera eina foreldrið er að hann virðist vera pínu ringlaður, hann kallar mig bæði mamma og pabbi! Sennilega heyrir hann mikið talað um pabba á leikskólanum og þar sem það er hugtak sem hann hefur aldrei fengið að kynnast þá gerir hann bara ráð fyrir að ég sé hvorutveggja (sem ég auðvitað er ;)) (myndin hér að neðan er algjörlega óuppstillt! Ég sá BL vera að dröslast með Pjakk, svo heyrði ég einhvern skurk inn á baði en var ekkert stressa mig. Ákvað svo að kíkja og þá kom ég að þeim félögunum svona! Mjög krúttlegt, og þeir voru svona alveg í 5 mínútur eftir að ég kom inn :))

En talandi um það, ég hef svo sem aldrei rætt þetta eitthvað "opinberlega" en fólk spyr reglulega hverngi staðan er þannig að ég læt þetta bara vaða. En eins og flestir sem þekkja mig vita þá á ég eitt af þessum afskiptalausu börnum sem hafa verið í umræðunni. Barnsfaðir minn hefur ekki haft neitt samband við Bjarna Lár og satt að segja þá held ég að hann muni ekki nokkurn tímann koma til með að gera það. Hann er ekki enn búinn að viðurkenna faðerni þrátt fyrir að dómur hafi fallið um að DNA próf skuli fara fram. Það er það sem ég ætla að skrifa aðeins um, en hann sem sagt neitar að fara í próf. Frá upphafi hefur hann þrætt fyrir að eiga barnið og hreinlega laug að það væru fleiri sem kæmu til greina (svo reyndar breytti hann sögunni seinna meir og sagðist hafa hvergi hafa verið nærri þegar barnið var getið). Það er reyndar svolítið merkilegt með okkur konurnar í þessari stöðu, það er alltaf sama rullan um við vorum að REYNA að verða óléttar (væntanlega þá til að halda í þessa gullkálfa?)og eitthvað bla bla bla (eins og það réttlæti þá líka að hafa ekki samband við barnið sitt! Ég held að enginn af þessum mönnum hafi kvartað þegar börnin voru búin til, og satt að segja er ég hissa á hversu algengt þetta er. Það eru allavega ansi margir þarna úti sem ég skil ekki hvernig geta sofið vært á nóttunni! Allavega gæti ég ekki lifað með sjálfri mér vitandi að ég ætti barn einhvers staðar sem ég hefði engin samskipti við, en samviskustuðullinn er greinilega misjafn hjá fólki :)) En á móti kemur þá finnst mér það þvílík forréttindi að fá að eiga þennan gullmola alveg ein. Miðað við ójafnvægið í persónuleikanum hjá þessum svokallaða föður hans þá er ég bara fegin að hann kemur hvergi nærri uppeldi barnsins og at the end of the day er missirinn allur hans megin. Ég og Bjarni Lár gætum ekki verið hamingjusamari og heilsteyptari fjölskylda, ég tala nú ekki um eftir að Pjakkur bættist í hópinn ;) Svo á Bjarni Lár líka bestu ömmu og afa í heimi og systkini mín hafa líka reynst okkur ómetanleg, þannig að ég hef engar áhyggjur af því að BL muni ekki pluma sig vel í framtíðinni án þessa manns :)


En jæja þannig að við neyddumst til að fara dómstólaleiðina með þetta. Ég er stundum spurð að því hvernig ég nenni að eltast við þetta en lögum samkvæmt ber mér að feðra barnið, auk þess sem mér finnst Bjarni Lár eiga rétt á að hafa þetta skjalfest. Fyrir utan það þá var ég búin að bjóða honum að leysa þetta öðruvísi en fékk ekkert nema skít tilbaka þannig að hann eiginlega valdi þessa leið sjálfur. Dómur féll um að þetta mál yrði útkljáð með DNA prófi (við í raun "unnum" málið) en barnsfaðir minn NEITAR að taka prófið og það virðist ekkert vera hægt að gera. Hann er auðvitað í Bretlandi en miðað við öll dómsmál og annað á milli landa þá finnst mér furðulegt að þetta strandi bara á þessu, að hann geti bara neitað að fara í prófið og barnið standi eftir ófeðrað. Ég myndi skilja að það væri erfitt að eiga við það ef hann væri í Rússlandi eða Kína, en ekki Bretlandi! Mér finnst þetta frekar spes to tell you the truth...


En já að öðru svona að lokum, mér finnst þetta fjaðrafok varðandi lífssýnagjöfina til De Code frekar fyndið. Persónulega gaf ég sýni með glöðu geði, vil leggja mitt af mörkunum í þágu vísindanna. Ég skil alveg að einhverji vilji ekki vera með (eða þó að ég skilji það ekki beint þá sýni ég því skilning ;)) en það sem ég skil ekki er fólkið sem ætlar að skila inn slefi frá gæludýrinu sínu eða jafnvel saursýni eins og ég las einhvers staðar. Fine, ekki gefa sýni , en það er algjör óþarfi að vera ógeð..!




Jæja nóg af tuði í bili, klára færsluna með mynd af kellunni á fljúgandi siglingu í Icelandair hlaupinu um daginn. Fór svo aaaaaaðeins framúr mér þegar ég fór í "þungar" hnébeygjur og kenndi spinning í kjölfarið 2 dögum síðar, þannig að ég fékk töluverðan vökva inn í hnéið og gat ekki æft í viku í kjölfarið, en það er allt batnað og ég stefni á eitthvað skemmtilegt almennigshlaup í næstu viku :) Anyways, later.......

Engin ummæli: