Kellan er í bloggstuði þessa dagana, enda líka svo mikið um að vera að ég verð bara að fá að tappa aðeins af heilanum!
Síðan síðast þá tók ég þátt í Icelandairhlaupinu, sem er 7 km hlaup. Það gekk ágætlega, fór þetta á 42:09 mín, en fann ég hefði alveg getað hlaupið þetta hraðar, en mér leið vel allan tímann og það tekur bara smá tíma að finna sinn takt og hlaupahraða :) Ég var reyndar að drepast í hnénu allt hlaupið en það hefði ekkert lagast þó ég hefði hætt að hlaupa þannig að ég gat alveg eins klárað það bara. Var svo alveg ótrúlega ágæt daginn eftir, bjóst við verkjum og göngulagi eftir því en ég var bara ágæt. Reyndar held ég að ég þurfi almennt bara eitthvað að skoða göngulagið hjá mér! Ég er ansi oft spurð að því hvort ég sé með harðsperrur þegar ég er ekkert með harðsperrur, en fólk ályktar það útfrá göngulaginu! Nú veit ég hvernig konum líður þegar þær eru spurðar hvort þær séu óléttar en eru það ekkert..! o.O
Dísús, ég lenti reyndar í smá vandræðum áður en hlaupið hófst! Ég var með svona smokkahúfu á hausnum og einn hlunkurinn sagði við mig að ég liti út fyrir að vera að fara að fremja rán. Þá missti ég út úr mér:"já ég er að fara að stela sigrinum" en vandræðin voru sem sagt þau að mér fannst ég svo geðveikt fyndin að ég stóð varla í lappirnar í kjölfarið! Ég verð alltaf svona máttlaus í líkamanum þegar ég fæ hláturskast og tárin byrja að streyma hjá mér, sem var frekar óheppilegt á þessum tímapunkti, auk þess sem sennilega ENGUM fannst þetta svona fyndið! Reyndar sagði ein vinkona mín við mig eitt sinn: "veistu það Bjarney, það sem er eiginlega fyndnast við þig, er hvað þér finnst þú ÓTRÚLEGA fyndin sjálf!" Oh well, það hlær þá allavega einhver að bröndurum mínum..! :-p
Set hérna mynd af syni mínum sem greinilega erfði húmorinn frá mömmu sinni ;)
Og talandi um að vera með uppblásið egó! (sbr. að ætla að stela sigrinum!) Ég fór sem sagt með nemendur mína út um daginn þar sem veðrið var svo gott. Þar var skorað á mig í hinum ýmsu greinum, svo sem spretthlaupi, upphífingum o.fl. AUGLJÓSLEGA leyfði ég þeim ekki að vinna í neinu sem varð uppsprettan að eftirfarandi samtali:
Nemandi 1: "Þú ert ábyggilega sterkasta kona á Íslandi!"
Nemandi 2: "Og hraðasta!"
Nemandi 1: "Nei Anníe Mist er hraðari"
Ég þagði bara og brosti og ákvað að leyfa þeim að halda að ég væri þá allavega sterkari en Annie! ;) Reyndar vill einn kúnninn minn meina að ég hafi ekki gott af því að vinna með börnum á þessum aldri, í þeirra huga er ég svo mikil hetja að ég er komin með ranghugmyndir um sjálfa mig! hehehe
Svoooooo lét ég verða af því að mér kisu!! Sennilega allir mjög hissa! #not Ég var svo sem ekkert búin að vera að hugsa um að fá mér kisu þar sem ég þurfti að skilja hinar kisurnar mínar eftir úti og það var ömurleg ákvörðun sem mig langar ekki að þurfa að taka aftur þannig að ég vildi bíða þar til ég myndi kaupa íbúð áður en ég myndi skuldbinda mig með kisu, en svo kom stöðuuppfærsla frá Kattholti um fullorðna kisu sem vantaði heimili og þá kom þessi fluga í hausinn á mér. Fannst tilhugsunin um fullorðna kisu líka góð, mér fannst miklu skemmtilegra þegar Albert og Einstein voru orðnir fullorðnir, ekki klifrandi upp lappirnar á manni og eitthvað!
En svo voru konurnar í Kattholti ekki vissar um að sú kisa myndi pluma sig á barnaheimili en þá var hugmyndin komin í kollinn á mér og þeir sem þekkja mig vita hvað það þýðir, það er aaaaafar líklegt að hugmyndin muni koma til framkvæmda ;) Þannig að ég skoðaði síðuna þeirra og sá einn lítinn sætan en fór til þeirra með opnum hug. Ég sagði að ég hefði séð einn lítinn gráan en þá sagði konan hann væri nýkominn og ekki tilbúinn í heimilisleit alveg strax þannig að ég ákvað að skoða hinar. Það voru nokkrar þarna YNDISLEGAR og ég hefði fengið mér allavega 5 kisur ef ég gæti! Var búin að hitta 2-3 sem ég var alveg kolfallin fyrir þegar við fórum inn í fressa herbergið og tekur þá ekki Pjakkur litli á móti mér, sem var litli grái kisinn sem ég hafði séð! Þá hélt konan að ég væri að tala um annan en tjáði mér jafnframt að Pjakkur væri svakalega góður kisi sem væri pottþétt umburðarlyndur gagnvart því að láta toga aðeins í skottið á sér ;) Ég var eiginlega ekki að nenna kettlingi, en Pjakkur bara gjörsamlega sigraði mig og þvílíkt sem ég er ánægð með þessa ákvörðun. Hann er STÓRKOSTLEGUR köttur! Kippir sér ekkert upp við að Bjarni Lár sé að dröslast með sig og ég setti einmitt myndband inn á facebook þar sem þeir sátu fyrst saman inn í tjaldinu hans Bjarna Lárs svo fer BL að kasta boltum og Pjakkur að elta. BL alveg skríkir og hlær svo hátt og innilega, og mömmuhjartað náttúrulega í skýjunum yfir að eiga svona hamingjusamt barn <3
En hann er alveg eins og skugginn minn hann Pjakkur, liggur hérna sofandi í sófanum við hliðin á mér, þvílíkt notalegt. Og greinilega ótrúlega gott starf sem er unnið í Kattholti því maður sér það bara að hann hefur átt gott líf, fullur sjálfstrausts og treystir okkur fullkomlega, honum hefur greinilega verið bjargað nógu snemma. Því miður verður það ekki sagt um alla kettina þarna sem er hræddir við mannfólk eftir að hafa verið vanræktir og farið illa með þá :( Þvílíkt sem ég get orðið reið yfir þessu! En ég ætla ekki að tuða um það hér, hef gert nóg af því annars staðar ;) Ætla bara að kveðja með nokkrum myndum....

Engin ummæli:
Skrifa ummæli