fimmtudagur, september 25, 2014

Seinni færsla dagsins :)

Ekkert óeðlilegt við tvær færslur á einum degi ;)

En ég er heima í veikindafríi þannig að ég get alveg eins hent í eina, tvær færslur :) Ástæðan fyrir veikindafríinu er að ég var í enn einni hnéaðgerðinni (vonandi þeirri síðustu, þó að mjög líklega muni ég þurfa liðskipti einn daginn). Þegar svæfingalæknirinn kom til að tala við mig þá koma bara:"Jáh, þú ert kona með reynslu! Svo þurfti ég að fá sýklalyf í æð og sonna þar sem ég er með allskyns skrúfur og drasl í hnénu. Læknirinn minn ætlar að fletta því upp þegar ég kem til hans í endurkomu hvað þær eru orðnar margar aðgerðirnar, mér reiknast til að þetta hafi sennilega verið sú níunda á sama hné o.O
En já, ég var með aukabeinvöxt í hnéskelinni og svo var verið að kíkja á ástandið á brjóskinu. Góðu fréttirnar voru þær að brjóskið var í betra standi núna en í síðustu aðgerð en slæmu fréttirnar þær að þá er líklega ekkert hægt að gera við verkjunum sem hrjá mig alltaf reglulega :( En það er vonandi að það að búið sé að fjarlægja beinvöxtinn af hnéskelinni skili einhverju.

Batinn er ótrúlega góður að vanda og ég verð klár í að mæta í vinnu á mánudag, er búin að vera að mesta verkjalaus og hætt að haltra. Fann reyndar smá verki í morgun en er búin að taka það rólega í dag og er að skána :)
Talandi um að taka það rólega, ég er búin að horfa á bæði season 1 og 2 í Orange is tHe new black! Kellan allt í einu farin að vaka framyfir miðnætti að horfa á einhverja þætti! Er reyndar orðin hálf steikt í hausnum eftir þessa törn þannig að ég ætla að snúa mér að bókalestri næstu kvöld..!
Hérna er selfie í sloppnum góða á meðan ég beið eftir að fara inn, og svo önnur þar sem Bjarni Lár situr á hausnum á mér og hjálpar mér að ná bata eftir aðgerðina!

Eins og ég kom inn á í færslunni áðan þá er litla gerpið orðið 2 ára, reyndar svolítið langt síðan (15.ágúst) en þar sem ég er búin að vera hræðilega blogglöt þá hef ég ekki skrifað um það fyrr en núna! Hann fékk Dóru köku í afmælisveislunni þar sem hann gjörsamlega elskar hana! Ég átti einmitt samtal við hann um daginn:
ég:"Bjarni Lár, segðu "I love you"
BL:"Dora"
ég:"segðu "I love you"
BL:"Dora" (og alveg með amerískum hreim þar sem hann horfir töluvert á hana á youtube og nokkra þætti sem ég keypti á itunes. Hann á samt líka íslenska dvd sem hann horfir á og nær þ.a.l vonandi smá mótvægi!

En þvílík dásemd þetta barn sem ég á. Margir sem æla sennilega á tölvuna sína núna en ég í alvörunni trúi því ekki sjálf hvað ég er heppin með eintak! Mér finnst hann svo duglegur og skemmtilegur, auðvitað tekur hann frekjuköst og getur verið ógeðslega leiðinlegur, en sem betur fer er það ekki mjög oft og er bara hluti af því að þroskast. En hann er algjör húmoristi (með sama aulahúmor og mamma sín) og ég ligg oft í kasti yfir honum.

Svo er hann með eitthvað "thing" fyrir hárblásurum núna, svona eftir að hann komst yfir hræðsluna. Hefur átt það til að mæta blásinn í leikskólann, þvílíkur metnaður!

Hann spjallar og spjallar, setur í brýnnar og allt, en það skilst ekkert sem hann segir! Hljómar eins og lítill Kóreubúi, hrikalega krúttlegt. Við erum í fimleikum, í ungbarnafimi Fylkis, og hann er ekki eðlilega duglegur krakkinn. Einum of frakkur stundum! Hann t.d lét sig bara vaða 1,5 metra ofan í gryfjuna, ofan af dýnu, hikaði ekki, hoppaði bara og hló svo eins og vitleysingur! En svo er hann þess á milli svaka duglegur að dunda sér við að lita, kubba, perla o.fl.

Svo tókum við að okkur að fóstra 3 kisur fyrir Kattholt í nokkrar vikur, læða með 2 nýfædda kettlinga. Kettlingarnir s.s oft ungir til að fara á heimili þannig að þeim vantaði stað að búa á þar til þeir væru orðnir nógu stálpaðir. Þau fengu lánað herbergið hans Bjarna Lárs og það var ekkert smá gaman að fylgjast með þeim vaxa og dafna, kettlingar eru nottla ekki eðlilega sætir! Sérstaklega annar þeirra, mig langaði helst ekki að skila honum! Bröndóttur (elska bröndótta ketti), feitur og loðinn! Hann gat varla labbað til að byrja með, þannig að ég þjálfaði hann á hverjum degi (crazy cat lady much?? haha) en hinn var hrikalega skemmtilegur, ótrúlega frakkur og duglegur, en þessi drap mig úr krútti! En það er of mikið að vera með 3 ketti (ó really), og hvað þá inniketti! Svo nennti ég ekki kettlingi aftur, þeir eru hrikalega sætir en ég hef meira gaman að þeim þegar þeir eru eldri og rólegri :) En ég skilaði þeim s.s áður en ég fór í aðgerðina og þau eru vonandi komin á góð heimili núna, hjá ábyrgum kattaeigendum sem gelda kisurnar sínar og skilja þær ekki eftir út á víðavangi!

Dísús ég er búin að vera með svo mörg blogg í hausnum upp á síðkastið en man ekkert lengur, og nenni heldur ekki meir, búin að eyða alltaf miklum tíma í að skrifa núna! Læta þetta duga í bili, kem fljótt aftur þegar öll hin bloggin rifjast upp :) Enda bara á nokkrm myndum :)

Later...

Engin ummæli: