Kellan bara með munnræpu þessa dagana! :)
Reyndar er stærsta ástæðan sú að nú er meistaramánuður að byrja og það er ágætt að hafa markmiðin sín skrifleg og opinber! Reyndar er bara tilviljun að ég set þetta í gang þessi mánaðamótin, er búin að vera í töluverðan tíma að undirbúa mig, andlega og að búa til plan hvernig ég ætla að gera þetta. En mín markmið, ólík annarra, snúa ekki að líkamlegri heilsu. Ég tel mig vera búna að ná nokkuð góðum tökum á að lifa heilbrigðu lífi líkamlega og andlega þannig að nú er kominn tími til að skerpa á öðru hlutum! Nefnilega fjárhagslegri heilsu! Var að lesa bók eftir mann sem heitir Ingólfur og hann segir "fjárhasvandi er hegðunarvandi"! Og þó að ég sé ekki í vanda stödd þá er ég oft sek um óskynsemi og nú er kominn tími til að taka á því! Fyrsta skrefið var að loka visa kortinu! Er bara með fastar greiðslur s.s tryggingar o.fl. en nú er það liðin tíð að lenda í einhverjum vítahring með þennan fjanda! Svo ætla ég að skammta mér peninga fyrir hverja viku og plana máltíðir og ekki fara í búðina nema með innkaupalista! Ef ég er ekki með innkaupalista þá ráfa ég bara um eins og hauslaus hæna og enda á að kaupa bara einhverja tóma vitleysu, og að öllum líkindum gleymi ég því sem ég ætlaði upphaflega að kaupa!! En nú er þetta "out there", læt ykkur svo vita hvernig þetta gengur ;)
Annars skellti ég mér á þjálfaranámskeið um helgina, mjög skynsamlegt svona viku eftir hnéaðgerð, en ég er búin að jafna mig ótrúlega fljótt og vel, en hefði samt kannski mátt vera aðeins duglegri að hvíla mig síðustu daga, mér finnst það bara svo erfitt þegar ég finn ekki til! Er samt pínu stíf núna, en það hlýtur að jafna sig (í alvörunni hvað er að mér??)
En já, það var mjög skemmtilegt og maður hefur mjög gott af því að fara á namskeið reglulega þó það sé ekki nema bara til að fá innblástur og viðhalda gleðinni í starfi. Ég var einmitt að tala um hversu margir þjálfarar nota "já ég er nú búinn að þjálfa í 10/15/20 ár" en satt að segja, þá segir það ekki neitt! Margir af þessum þjálfurum eru búnir að vera að gera sama hlutinn í 10/15/20 ár! En þetta var mjög skemmtilegt, var bæði farið inn á almenna einkaþjálfun og svo þjálfun barna og unglinga (voru tveir fyrirlesarar). Mér fannst hvoru tveggja áhugavert þar sem mín reynsla liggur á svo breiðum grunni, hef verið með íþróttaskóla fyrir 3-5 ára, íþróttakennslu fyrir 6 ára, íþróttakennslu fyrir 16-20 ára, handboltaþjálfun fyrir 6-18 ára og svo starfað sem einkaþjálfari í 14 ár (samt ekki gert sama hlutinn öll þessi ár sko). Þannig að ég hef miklar skoðanir á svo mörgum hlutum (sem ég ætla ekki að útlista hér, en það var mjög gaman að geta tekið þátt í öllum umræðum (ég reyndar talaði langt mest, kemur á óvart!) en sem betur fer fannst kennurum ég koma með góð innlegg í umræðuna og sögðu að það þyrfti alltaf að vera ein "ég" á svona fyrirlestrum :-D
Reyndar gaman að segja frá því að annar þeirra, Rick Howard, er í nokkrum heimildaskrám hjá mér í verkefnum sem ég vann í íþróttafræðinni, hann er sko alveg ótrúlega klár!! Og við áttum skemmtilegt samtal (eða ég talaði og hann var sammála mér). Við vorum að tala um afreksdýrkun, það eina sem virðist skipta máli er að vinna, og ég var að segja að þetta væri svo heimskulegt þar sem alveg afskaplega lítill hluti barna mun verða afreksmenn í íþróttum (og það er líka allt í lagi að verða ekki afreksmaður í íþróttum) og ég velti upp þeirri spurningu hvort við værum að gera þeim einhvern greiða með því að vera stöðugt með frasa eins og "æfingin skapar meistarann" eða uppfært "aukaæfingin skapar meistarann", þar sem sannleikurinn er sá, að margir (ef ekki flestir) hafa bara ekki það sem til þarf! (og það er líka allt í lagi). Sama hversu mikið þau koma til með að æfa, þau munu aldrei verða afreksmenn í íþróttum. Það þarf svo margt að vera til staðar til að svo megi verða, svo sem náttúrulegir hæfileikar, aðstæður til að æfa, rétt hugarfar, laus við alvarleg meiðsli, oft er þetta spurning um að vera á réttum stað á réttum tíma, ofl. ofl. Mér líður stundum eins og við séum að "set them up for failure" þegar við teljum þeim trú um að það eina sem þau þurfi að gera er að æfa æðislega mikið!
Um að gera að æfa vel og leggja sig fram,setja sér markmið og allt það, og auðvitað eru alltaf einhverjir sem munu ná markmiðum sínum geta elt drauminn, en fyrir hvern þann sem nær markmiðinu eru sennilega þúsund sem gráta sig svefn yfir að hafa mistekist.
Þessi endalaus afreksdýrkun gerir það að verkum að það er gríðarlega hátt brottfall úr íþróttum í kringum 12-14 ára aldurinn, hreinlega af því að svo mörg börn þrífast illa í svona "competitive" umhverfi, finnst kannski gaman í íþróttinni sinni en finnst ekkert sérstaklega gaman að keppa eða láta öskra á sig af því að þau eru ekki nógu góð.
Og hann kom einmitt með rannsóknir sem sýndu að það er miklu gagnlegra fyrir börn að æfa fleiri en eina íþrótt fram á unglingsárin, gagnstætt við það sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta var að segja þar sem hann vill að krakkar velji 10 ára! En auðvitað þarf líka að skapa umhverfi fyrir þá sem vilja ná langt og skara fram úr (afrekshópar), en ég held að á heildina litið þurfi að horfa á heildarmyndina og hlúa betur að þeim sem eru að æfa bara af því að þeim finnst það gaman, þannig eru meiri líkur á að þau haldi áfram að hreyfa sig á unglingsárum og fram á fullorðinsár og þar af leiðandi myndi maður gera ráð fyrir að það yrði minna álag á heilbrigðiskerfið vegna lífstílstengdra sjúkdóma :)
Vá langloka! En ég er búin að vera með þetta inn í hausnum á mér í svolítinn tíma, ágætt að koma því frá sér :) Ætli það séu samt ekki einhverjir sem eru algjörlega ósammála mér og finnst ég vera allt sem er rangt við íþróttaiðkun Íslendinga, af hverju við náum ekki lengra en raun ber vitni (svona fyrir utan það að við erum bara 300.000) en mér gæti ekki verið meira sama. Ég sjálf æfði og æfði og æfði, misbauð líkamanum mínum á svo margan hátt (sem t.d útskýrir af hverju ég var að koma úr níundu hnéaðgerðinni minni), reif sjálfa mig endalaust niður fyrir að vera ekki nógu góð, samt æfði ég alltaf manna mest (útskýrið það!). En dagurinn sem ég sætti mig við að ég hefði ekki það sem þurfti til að verða atvinnumaður, eða afreksmaður eða best í íþróttinni minni, var mesta frelsi í heimi! Það geta ekki allir verið bestir, og það er líka allt í lagi :)
Kv. Meðal-Jónan ;)
Set hérna mynd af mér og Rick Howard (t.v) og Robert Linkul, sem var einkaþjálfari ársins í USA árið 2012 :)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli