mánudagur, október 27, 2014

bloggfærsla :)

Það helltist allt í einu yfir mig einhver bloggandi :) Kannski af því að ég er búin að hafa einhverja þörf fyrir því að segja fólki frá því hvað sonur minn er sniðugur þannig að það er betra að fá útrás fyrir það hér, hér kíkir fólk inn af fúsum og frjálsum vilja en þarf ekki að sitja nauðbeygt undir lofræðum um barn sem það kannski þekkir lítið sem ekkert! :-þ

Þannig að já, þetta blogg verður aðallega um Bjarna Lár :) Hef reyndar ekki mikið annað að segja, nema að meistaramánuðurinn er að ganga vel, hef nánast staðið við öll markmiðin mín og launin mín eru að duga út mánuðinn! Jei :D Og hafði meira að segja efni á að kaupa mér skenk á tax free dögum í RL búðinni! hehe en ég er mjög ánægð með hvernig íbúðin er að koma út, er orðið voða kósý :)
Ég var reyndar einhevrn tímann búin að ákveða að kaupa ekki aftur húsgögn frá Rúmfatalagernum þar sem þau eru oft soddan ekki gæðavörur, en þetta var bara akkúrat skenkur eins og ég var búin að sjá fyrir mér þarna! Þannig að ég eyddi föstudagskvöldinu í að setja hann saman, og ég vil meina að annaðhvort er varan ekki nógu góð eða leiðbeiningar! Það er allavega ekki smiðnum að kenna að ég get bara opnað miðskúffuna! En oh well, þetta lúkkar allavega vel :)

Og svo ákváð ég líka í tilefni meistaramánaðarins að gerast SOS foreldri. Var alltaf SOS foreldri fyrir nokkrum árum en hætti þegar ég flutti út og var atvinnulaus, en ákvað að byrja aftur og er núna að styrkja strák í Indlandi. Þetta eru ekki nema 123 krónur á dag og með þeim peningi er maður að stuðla að því að barn sem áður var í vonlausum aðstæðum, geti átt gott líf. Mér finnst það allavega góð tilfinning að geta haft svona afgerandi áhrif á líf einhvers :)

En aftur að barninu mínu! ;)
Það er magnað að fylgjast með honum vaxa og dafna, þvílíkt eintak sem ég fékk í hendurnar! Ég sótti hann í leikskólann og þá var mér sagt að hann hefði verið með uppistand við matarborðið og hinir krakkarnir skellihlógu að honum, sem mér finnst reyndar mjög fyndið þar sem það skilst varla orð sem hann segir! En hann talar og talar, en hann hljómar bara eins og minion. Það eru reyndar alltaf fleiri og fleiri orð að verða skiljanleg hjá honum, en þetta er mjög áhugavert tungumál sem hann talar :)
Svo eru að bætast við hlutir sem manni finnst magnað að 2 ára barn sé búið að fatta. Við vorum t.d að fara út í gærmorgun og hann vildi bara hanga heima og horfa á Dóru! Og ég segi:"jæja komdu nú", þá heyrist bara "nei" svo sé ég á eftir honum þar sem hann leggst bakvið stofuborðið og gægist svo upp, þá var litla gerpið að fela sig!

Svo fórum við í mat til Huldu systir í gær, þar sem hann fékk einmitt að horfa aðeins á Dóru með Hauki frænda sínum (góður stútur!)
Á leiðinni heim þá segi ég við hann:"þú mátt alveg fara að lúlla, má ég sjá lokaðu augunum og farðu að sofa" Þá leggst hann aftur, lokar augunum og byrjar að hrjóta. Svo sprettur hann upp með galopin augun og skellihlær! Þá var hann bara að djóka! Hann var að þykjast að vera sofandi, mér fannst þetta reyndar alveg jafn fyndið og honum :-D

Hann hefur líka nokkrum sinnum farið að (gervi)grenja þegar við leggjum fyrir utan heima og bara:"nei öoafa" (Nei fara til ömmu og afa!), yfirleitt þarf ég að múta honum með Dóru til að koma inn! Í dag fékk hann samt að fara í heimsókn til ömmu og afa og ég ákvað að prófa hann nokkrum sinnum hvort hann væri að meina þetta og hvort hann skildi þetta allt saman. "Viltu fara heim?" "nei", "viltu fara til ömmu og afa?" "já", "viltu ekki fara heim til kisu?" "nei", "hvert viltu fara?" "öoafa", þannig að það var alveg ljóst að hann skildi þetta og hans vilji var skýr! Svo fór ég með hann inn, og hann vinkaði mér bara:"bæ bæ". Þannig að ég nýtti þá bara tækifærið og skellti mér í ræktina :) Ekki amalegt að eiga svona ofurömmu og -afa :)
Svo erum við ennþá í fimleikum á laugardagsmorgnum, mætum fersk kl.8:30! (þarf að fara að þjálfa kl.10 þannig að auðvitað leggur maður það á sig að vakna fyrir allar aldir svo prinsinn komist á fimleikaæfingar!), en þetta er svooooo gaman, ég hlakka alltaf til að fara!
Hann er líka orðinn svo góður að sofa, er sofnaður upp úr 8 og sefur alla nóttina, hann er líka svo ótrúlega þægilegur, aldrei vesen, ef ég segi honum að fara upp í sitt rúm þá bara labbar hann þangað þegjandi og hljóðalaust með bókina sem á að lesa í það skiptið. Svo er ég búin að vera slæm í baki þá finnst mér betra að svæfa hann í mínu rúmi (já ég svæfi barnið mitt! :-O) en svo er ekkert mál að fá hann aftur upp í sitt rúm þegar ég treysti mér í að liggja með honum þar. Algjör dásemd þessi drengur :) (sorry þið völduð að lesa bloggið mitt!)

Annars finn ég líka töluvert mikinn mun á hnénu á mér eftir aðgerðina, hefði eiginlega ekki trúað þessu. Pínu svekkjandi, ég fór fyrir nokkrum árum með sama verk en þá var ekki tekin röntgenmynd heldur bara kennt brjóskeyðingunni um, en ef ég hefði verið sett í röntgen þá hefði þessi aukabeinvöxtur mögulega sést og ég ekki þurft að lifa við nánast daglega verki í 5-6 ár :-/ En þýðir ekki að hugsa um það, it is what it is, nú þarf ég bara að vera skynsöm og ekki finnst það vera góð hugmynd að fara á handboltaæfingar eða eitthvað! Og ég lofaði líka að leggja hlaupin á hilluna :-/ En það er þvílíkur unaður að vera laus við verkina, var pííííííínu hrædd um að ég hefði farið aðeins of snemma af stað, en það virðist vera að sleppa :-þ

Jæja stutt að þessu sinni, ætla að leggjast upp í rúm og halda áfram að lesa Karitas, vá hvað ég er fegin að vera ekki fædd 1915! Fer alltaf að sofa afskaplega þakklát fyrir allt sem ég hef :)

Later...

Engin ummæli: