"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
sunnudagur, júní 21, 2015
Ferðasaga :)
(þeir sem fá ekki nóg af sólarlandamyndum þá er ég líka að fara hamförum á snappinu: bjarneybj ;)
Set flest í my story bara, er ekki mikið að senda enda er ég ekki tengd við WiFi 90% af tímanum! Hendi bara inn þegar èg get :)
Fyrir 3 vikum þá datt inn á Facebook auglýsing frá Nazar./sidasti-sens
Ég skoðaði það og sá ferð sem ég gæti mögulega leyft mér, sem kostaði 60 þús á manninn! Ég er búin að vera að leggja fyrir í vetur ef ske kynni að ég gæti leyft mér að hoppa á einhverja ferð, eðli málsins samkvæmt (einstæð á kennaralaunum!) þá er þetta nú ekki stór upphæð sem safnaðist en nóg til þess að ég gat leyft mér þetta, 125.000.- fyrir okkur bæði í eina viku.
Í þessum pakka er sem sagt 2 stjörnu hótel og morgunmatur innifalinn. Ég las eitthvað um hótelið á netinu og það voru misjafnar umsagnir, auk þess sem ég gerði ekki miklar væntingar til tveggja stjörnu hótels. Ég fór því með því hugarfari að gera bara gott úr þessu (maður leggur ýmislegt á sig fyrir 30 stiga hita og sól ;)) en svo hefur hótelið alveg farið fram úr væntingum, fínar íbúðir og 2 sundlaugar, meðal annars vaðlaug fyrir Bjarna Lár sem hann myndi búa í ef hann mætti! Það eru ekki mjög margir hérna þannig að við vorum til dæmis alveg með laugina útaf fyrir okkur í dag. Það tekur okkur 5 mínútur að labba niður á Kleópötru ströndina og miðbærinn er stutt frá, getum labbað en tökum yfirleitts strætó.
Tyrkir eru almennt mjög indælir og hjálpsamir, þó að þeir séu frekar uppáþrengjandi og pirrandi á þessum mörkuðum! En mér er allstaðar hjálpað með kerruna upp og niður tröppur og við höfum bara kynnst kurteisi og almennilegheitum (var með smá fordóma áður en ég fór en þeir fara minnkandi með hverri mínútunni, enda eru fordómar akkúrat þetta, að vera búinn að dæma fyrirfram án þess að hafa hundsvit um hvað maður er að tala :))
Eini "gallinn" við hótelið er að það er ekki WiFi á hótelherbergjunum en það er WiFi í anddyrinu og við sundlaugarbakkann. Hins vegar það sem hefur gerst er að ég er búin að vera dugleg að lesa upp á herbergi þannig að í raun er WiFi leysið kostur! Keypti bókina "Hilma" í fríhöfninni og kláraði hana í morgun. Er svo með aðra bók með mér sem ég býst þá við að klára áður en heim verður haldið.
Mér finnst verðlagið hérna ekkert mjög ódýrt, fatnaður og skór að vísu hræódýrt enda að mestu leyti eftirlíkingar, en matur og svona er ekkert sérstaklega ódýrt þannig að ég hugsa að næst þegar ég kem hingað þá panti ég hótel með öllu innifalið, og verð í 2 vikur! Mun byrja að safna aftur um leið og ég kem heim!
En já þetta er bara algjörlega æðislegt frí og snilld að hafa Hafrúnu með, mun meira öryggi og svo auðvitað bara skemmtilegur félagsskapur. Bjarni Lár er ekkert sérstaklega hrifinn af sjónum, eða eiginlega bara alls ekki! Vill ekki koma nálægt honum! En finnst gaman að moka á ströndinni og svo finnst honum voða notalegt að sitja í fanginu á mér og fylgjast með sjónum og öllu fólkinu (og Hafrúnu að hoppa í öldunum!) Hugsa að ég muni þó eyða meiri tíma með honum bara í hótellauginni fram að heimför.
Svo sem ekki mikið við þetta að bæta, við erum bara þvílíkt að njóta lífsins og samverunnar hérna.
Frétti að það væri komið gott veður heima, það er algjörlega frábært og tímabært! Verður notalegt að koma heim í sumarið, *krossum fingur* að það sé komið til að vera!
Later...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli