Nú hef ég séð nokkra pósta varðandi þetta málefni og sitt sýnist hverjum. Ég lá upp í rúmi og gat ekki sofnað og fannst ég verða að koma þessu frá mér :)
Málefnið er sem sagt sumarlokanir í leikskólum. Ég held að ég hafi ALDREI kvartað yfir hlutskipti mínu sem einstæð móðir, nánast strax frá upphafi meðgöngunnar var ég ofurspennt yfir nýja hlutverkinu og ekki breyttist það eftir að hann fæddist. Ég hef aldrei upplifað biturleika þó faðirinn hafi aldrei verið inn í myndinni og hef alltaf tekið öllu með þokkalegu jafnaðargeði og bara gert það sem hefur þurft. Ég var byrjuð að þjálfa þrjá daga í viku, 2 tíma í senn, þegar hann var eins mánaða gamall, þar sem ég hafði flutt heim á miðri meðgöngu og hafði misst öll réttindi og fékk ekkert fæðingarorlof. Þegar hann var 5 mánaða gamall þá var ég komin í 100% dagvinnu líka. Ég ákvað þó strax að þjálfa ekki oftar í viku, þó að eftirspurnin hafi alveg verið til staðar, því að ég ætlaði ekki að eyða meiri tíma frá syni mínum, peningar koma og fara en tíminn með börnunum kemur aldrei aftur. En já síðan þá hef ég alltaf verið í 120% vinnu og nánast allur minn tími utan þess fer í að vera með Bjarna Lár, enda eigum við virkilega gott og náið samband. Mér finnst ég algjörlega heppnust í heimi að fá að vera mamma hans...
Aftur að sumarlokununum, nú er það þannig að leikskólar í Reykjavík loka á ákveðnum tíma og fólk þarf bara að taka því. Auðvitað kemur það misjafnlega við fólk, sumir eru skikkaðir í frí í sinni vinnu í maí, júní eða ágúst, en leikskólinn lokar í júlí, augljóst óhagræði! Ein sem ég þekki fór í frí í júní og maðurinn hennar í ágúst og eins hún sagði ef þau hefðu til dæmis fengið að skipta fríinu niður þá hefðu börnin fengið 2 vikur með mömmu sinni í júní og 2 vikur með pabba sínum í ágúst, en af því að fyrirkomulagið er eins og það er þá fór þeir í 4 vikna frí með hvorugu foreldrinu í júlí! Auk þess sem það er augljóst óréttlæti þegar fólk með leikskólabörn fær alltaf frí í júlí á sínum vinnustað og hinir þurfa að sætta sig við að fara á öðrum tíma.
Það er í lögum að barn skuli fara í 4 vikna samfellt frí, ég veit ekki hvort það sé vegna þess að norskir fræðingar segja að barn þurfi 4 vikur samfellt með foreldrum sínum eða hver ástæðan er. Ef foreldri er almennt ekki duglegt að eyða gæðatíma með barninu sínu þá er það ekkert að fara að bjarga sér fyrir horn sem eitthvað fyrirmyndarforeldri þó að viðkomandi eyði 4 vikum með því að sumri til. Að sama skapi, ef foreldri er duglegt að eyða gæðastundum með barninu sínu alla jafna þá mun barninu ekki verða meint af þó að fríinu verði skipt upp í 2x 2 vikur (ef fólk hefur tök á því). Ég meira að segja held að í mörgum tilfellum yrðum gæðastundir fleiri og betri...
Svo að ég taki dæmi með sjálfa mig, í fyrsta sinn ætla ég að leyfa mér að væla yfir hlutskipti mínu sem einstæð móðir. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru margir sem hafa það miklu verr en ég, en það þýðir samt ekki að maður eigi bara alltaf að harka af sér og upplifa sig sem aumingja ef maður vogar sér að finnast hlutirnir svolítið erfiðir stundum.
Nú er leikskólinn búinn að vera lokaður í 2 vikur og 2 vikur eftir. Staða mín er sú að ég fæ ekki pabbahelgar þannig að ég er með barnið hverja einustu mínútu dagsins. Ég ÞARF að finna eitthvað að gera með honum á hverjum degi, trúið mér, síðast í dag ætlaði ég aldeilis að taka því rólega og vorum bara heima að chilla þar til við fórum svo í afmæli kl.16. Ég þurfti að fara heim með hann nokkru síðar því hann vissi ekki hvað hann átti að gera við sig! Það var svo mikil uppsöfnuð orka að hann var eins og hann væri andsetinn! Þegar við komum heim þá grét hann og titraði af reiði og sló mig ítrekað, þetta er ekki barn sem ég þekki! Sem er ástæðan fyrir því að klukkan 10 í fyrramálið þá verður hann drifinn á róló. Rólóar eru snilld en ég þarf að keyra með hann í Kópavoginn og rétt voga mér að skjótast á æfingu á meðan.
Í gegnum tíðina hafa foreldrar mínir hjálpað mér mjög mikið með strákinn en í sumar er mamma búin að vera mikið veik og á spítala nánast í allt sumar og pabbi eins og klettur þar með henni meira og minna. Þannig að fyrir utan að vera ekki lengur með pössun (sem er augljóslega algjört aukaatriði í þessu tilfelli!) þá kemst ég ekki að heimsækja mömmu jafn oft og ég vildi þar sem ástandið er þannig að ég get ekki tekið hann með mér. Þau fáu skipti sem ég hef fengið pössun í sumar þá hefur það verið til þess að geta farið og setið hjá mömmu í smá tíma. Nei ég lýg, hann fékk að gista hjá systur minni á mánudagskvöldið af því að ég gerði svo vel við mig að fara á litanámskeið!
Tilgangurinn með þessum pistli er ekki að varpa ljósi á hvað ég á bágt, ég hef svo margt að vera þakklát fyrir og ég elska að eyða tíma með Bjarna Lár og bralla ýmislegt með honum, og ég veit líka að þegar ég byrja að vinna aftur þá vildi ég óska að ég væri í fríi með honum! En 4 vikur, hver einasti dagur, hver einasta mínúta, er rosalega langur tími með 3 ára orkubolta! Enda er íbúðin í rúst og kvöldmaturinn oftar en ekki ristað brauð!
Eina ástæðan fyrir því að mig langaði að koma þessu frá mér er að það eru ekki allir í þeirri stöðu að geta notið þess æðislega mikið að vera með barninu sínu þegar sveitarfélagið ákveður að leikskólinn eigi að loka. Þetta snýst nefnilega ekki um börnin, þó að það sé nefnt sem ástæða að börnin þurfa líka frí, þetta snýst BARA um sparnað (og hvaða frí eru börnin líka að fá þegar foreldrarnir þurfa að vinna og börnin þar af leiðandi hingað og þangað í pössun!). Ég þekki engan sem myndi ekki láta barnið fara í frí, þessi umræða snýst um að fríið sé á forsendum fjölskyldnanna, ekki sveitarfélaganna! Og einhverjir eru þreyttir á að þessi umræða komi upp á hverju ári, það að þessi umræða komi upp á hverju ári segir mér bara að þetta sé að koma illa við mjög marga og að úrbóta sé þörf!
Ég veit líka að margir lenda í vandræðum á fyrstu árum grunnskólans þegar fríið er enn lengra, en þessi umræða snýst ekki um það...
Og nú er ég hætt þessu væli og ætla að njóta þess að vera með barninu mínu ;)
Þessi mynd er tekin á klósettinu, ég var ekkert að grínast þegar ég sagði að það væri engin pása..!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli