Við Íslendingar erum alveg ótrúleg þegar kemur að þessari blessuðu hjarðhegðun. Eflaust er þetta svipað í öðrum löndum en ég varð ekki svona vör við þetta þar sem ég bjó í Englandi. Mest áberandi þessi misserin er sennilega þegar kemur færsla í "Skreytum hús" grúbbuna, þá VERÐA allir að eignast þann hlut og láta sig hafa það að mæta í biðröð eldsnemma og lenda jafnvel í slagsmálum útaf HILLUM!
Svo er önnur hver manneskja komin með stiga inn í stofu til sín, til að geyma teppin sín á, eflaust hafa einhverjir líka keypt teppi til að eiga teppi til að geyma á stiganum sínum en ég gat nú ekki annað en hlegið þegar ég sá færslu frá manneskju sem birti mynd af nýja stiganum sínum með spurningunni:"Ég var að kaupa þennan, hvernig á maður að nota hann?" Þá var sem sagt hlaupið til og keyptur stigi af því ALLIR aðrir voru að því án þess að hafa neina hugmynd um hvernig viðkomandi ætlaði svo að nota stigann þegar hann væri kominn í hús!
Ég held að fyrsta skrefið hjá öllum sé að bakka út úr þessu rugli, lífið verður ekkert betra þó að maður eignist nýjasta Omaggio vasann UM LEIÐ og hann kemur í verslanir, eða ALLA Múmín bollana eða ALLA litina í Ittala kertastjökunum. Auðvitað vill fólk hafa fallegt heima hjá sér en ef þessar hillur eru svona ómissandi þá hljóta þær líka að vera spennandi eftir tvo mánuði, þá er væntanlega komin ný sending og maður getur farið í rólegheitunum keypt sér hana, einhvern veginn komst maður af án hennar fram til þessa, tveir mánuðir til eða frá geta ekki skipt sköpum.
Þannig að það er raunverulega tvennt sem þarf að kom til þegar maður er að einfalda umhverfi sitt,losa sig við dót og hætta að kaupa dót (minnka það allavega verulega)!
Kon Mari leggur til að allir hlutir sem veita manni ekki gleði fái að fjúka. Margir hlutir fá að taka pláss heima hjá manni þar sem maður kann ekki við að láta það frá sér útaf samviskubiti gagnvart gefandanum. Meðvirkni heitir það víst á góðri íslensku ;) En ég hef huggað mig við að það er pottþétt einhver þarna úti sem mun virkilega kunna að meta hlutinn þannig að ég þakka hlutnum fyrir vel unnin störf og læt hann svo frá mér samviskubitslaust.
Fín og vel með farin föt sem strákurinn er vaxinn upp úr hef ég farið með til Hjálparstofnunar Kirkjunnar, mér finnst auðveldara að láta þau frá mér þegar ég veit að þau verða gefin til fólks sem hefur lítið á milli handannna og þarf meira á þeim að halda heldur en fataskápar eða geymslukassar hér heima. Ég hef líka farið með allskonar í Konukot (þau taka við öllu, það sem skjólstæðingar þeirra geta ekki notað er selt á markaði hjá þeim) og svo ógrynni í Rauða Kross gámana (það má líka fara með illa farin föt þangað þar sem mjög mikið af því sem fer til þeirra fer beint í endurvinnslu, aðalatriðið bara að þau séu hrein).
Kon Mari leggur til að maður hreinsi út eftir lista (sjá mynd).
Þetta er sniðugt að mörgu leyti þar sem flestum finnst auðveldast að losa sig við fatnað og svo þegar maður kemur að hlutum með tilfinningagildi (myndir o.s.frv.) þá á maður orðið auðveldara með að sleppa tökunum. Hún hins vegar vill að maður taki allt í einu, safni til dæmis ÖLLUM flíkum á heimilinu í hrúgu og fari svo í gegnum hverja og eina og ákveði hvort maður vilji losa sig við eða eiga. Mér fannst það svolítið yfirþyrmandi og byrjaði í minni skrefum, notaði oft kvöldin þegar guttinn var sofnaður og fór þá til dæmis í gegnum skápinn á ganginum, eitthvert annað kvöld fór ég í gegnum baðherbergisskápinn o.s.frv. Meðal annars af því að ég nennti ekki að hafa allt á rúi og stúi á meðan þessu öllu stóð en það er mjög erfitt að ætla að fara í gegnum heilan flokk á einum degi. Hún talar um að að gera þetta fljótt og örugglega og þá er talað um að 6 mánuðir séu stuttur tími. Hver og einn þarf eiginlega bara að finna út hvað hentar sér best, aðalatriðið er bara að byrja :)
Ég ákvað að taka smá áskorun í janúar sem fólst í því að 1.janúar átti að losa sig við 1 hlut, 2.janúar 2 hluti og svo koll af kolli, samtals 496 hlutir í janúar. Sumir ákváðu að taka þetta enn lengra og losa sig við 2017 hluti árið 2017! En ég á hreinlega ekki nógu marga hluti til að taka þeirri áskorun!
Ég er sem sagt á lokametrunum í janúar áskoruninni og ætla því að láta þetta gott heita í bili og fara að losa mig við restina af "clutterinu" mínu :)
Later...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli