miðvikudagur, janúar 25, 2017

Jebb þetta gerðist!

Vá komið eitt og hálft ár frá síðasta pósti, alltaf jafn skrýtið að renna í gegnum gamla pósta. Síðasti póstur frá því að mamma dó og jarðarförin ekki einu sinni búin. Það virðist vera svo ótrúlega langt síðan en samt er ennþá svo óraunverulegt að mamma sé dáin :-/

En síðan þá hefur líka ýmislegt gerst!

Ég byrjaði að æfa íshokkí, komst að því að ég er BRCA arfberi og fór í fyrirbyggjandi brjóstnám, blandaðist svo á furðulegan hátt inn í forsetakosningarnar í fyrra og lenti í íshokkíslysi og þurfti að fara í fleiri aðgerðir, svona svo fátt eitt sé nefnt! Kannski blogga ég meira um BRCA dæmið en nenni því engan veginn núna, hef verið dugleg að skrifa um það á facebook, ekkert ósennilegt að fyrst ég er að endurlífga bloggið að ég muni taka þá umræðu. Ég ákvað strax að ég ætlaði að vera opin með þetta og hjálpa til við að opna umræðuna og fræða fólk um hvað þetta þýðir allt saman. Eða það er alveg pottþétt að ég á eftir að skrifa um það, ég nenni því bara ekki núna...

Það er nefnilega annað sem á hug minn allan þessi misserin! Og ég ákvað að byrja að blogga aftur um það því þá getur fólk komið sjálfviljugt inn á bloggið mitt í staðinn fyrir að ég fylli fréttaveiturnar hjá fólki sem hefur engan áhuga á málefninu :)

En já, þá að pointinu! Síðustu árinu þá hef ég stöðugt verið að vinna í að gera lífið betra, vann mikið í sjálfri mér, skipti út vondum siðum og venjum fyrir betri siði og venjur o.s.frv.

Fyrir um ári síðan byrjaði ég svo að pæla í mínimalisma. Sá viðtal við tvær stelpur og fór í grúppuna "áhugafólk um mínimaliskan lífsstíll" og fann strax að þetta var eitthvað sem mig langaði að tileinka mér. Og VÁ hvað lífið hefur breyst til hins betra! Ég vil samt taka fram að ég er enginn sérfræðingur um þetta málefni, mér finnst ég komin vel á veg með þetta en á líka ansi langt í land á svo mörgum sviðum. Þannig að ég ætla bara að blogga svolítið um mitt ferðalag og mínar pælingar í þessu og koma með fróðleik sem ég les mér til, ef einhver getur tileinkað sér eitthvað af því þá er það frábært.

Ég nenni samt eiginlega ekki að blogga meira um þetta akkúrat núna en er allavega búin að glæða bloggið mitt lífi aftur þannig að nú getiði byrjað að bíða spennt eftir næstu færslu ;)

Later :)

Engin ummæli: