fimmtudagur, nóvember 18, 2010

Ég ætla að fara að blogga reglulegar, allavega 1x í viku, svona ef ykkur langar að vita það ;o) hehe

Allavega það sem er að frétta er að ég eyði nánast öllum mínum tíma í gymminu, sem er fínt er búin að vera nánast í 100% vinnu plús nokkrir kúnnar, en það versta er að gólfgjaldið hérna í gymminuer FÁRÁNLEGA hátt þannig að nánast allur peningurinn minn mun fara í það næstu mánaðamót :-( En samt gott að hafa efni á allavega því og smá mat, góð byrjun :o)

Eins og ég sagði frá síðast þá er Hux ekki mjög glaður með frammistöðu mína á bílnum hans, en ég vil samt kasta af ábyrgðinni þar sem það er búið að sanna að konur eru með verra fjarlægðarskyn eða eitthvað, við erum bara meiri klaufar og hann verður bara að læra að sjá spaugilegu hliðarnar á því að mínu mati, hann er ekki sammála! Allavega á ensku þá er þetta kallað "spatial awareness" og um daginn var hann eitthvað að tuða í mér í bílnum, og ég sný mér að honum og hreyti í hann: "I´m really sorry that I don´t have this SPACE VISION!" Skal alveg viðurkenna að það hefur töluvert verið hlegið að þessu síðan..! O_o



En þó að Hux geti verið algjör tuðmundur þá er hann samt algjört æði svona oftast nær, tilkynnti mér t.d í dag að hann hefði keypt handa mér snemmbúna jólagjöf í dag. Við vorum nebbla að tala um það um daginn, eða ég meira svona að tuða yfir því að ég fengi aldrei blóm eða neitt frá honum (ekki það að mig langi eitthvað sérstaklega í blóm, en það hafa allir gaman að því að láta koma sér á óvart). Jæja en hann sagðist hafa keypt handa mér smá jólagjöf, það væri ekkert sem ég ætti að hafa einhverjar væntingar yfir, en að það kæmi ekki fyrr en eftir ca. viku. Svo var ég að nota tölvuna hans áðan til að gera spinning geisladisk fyrir morgundaginn og þá sá ég í leitarvélinni hvað hann keypti handa mér. Hann var sem sagt að panta 12 mánaða áskrift af uppáhalds líkamsræktartímaritinu mínu(Oxygen)! Það fæst ekki hér og ég var að tala um að mig langaði að verða áskrifandi að því þegar ég væri farin að hafa stöðugar tekjur, þannig að minn ástkæri tók sig til og pantaði áskrift til að gleðja kelluna sína, miklu betra en blóm sko..! :-D

Annars er bara líf og fjör í gymminu, Lee Ryan kom inn um daginn (var í hljómsveitinni Blue, sem var uppáhalds hljómsveitin mín hérna um árið). Svo ákvað hann að kaupa sér drykk á leiðinni útog við byrjum eitthvað að spjalla um mataræði og hann sagði mér að hann yrði frekar skapvondur ef hann myndi ekki borða kolvetni og svo lyfti hann upp bolnum til að sýna mér bumbuna sem hann vill losna við, mjög eðlilegt allt saman...

Og í morgun þá flaug fugl inní gymmið! Held hann hafi komist út sjálfur, en ég hefði svo sem ekkert getað gert neitt til að reyna að handsama kvikindið! Bæði af því að hann hefði sennilega fríkað út og svo af því að ég hló svo mikið af fáránleikanum í því að hafa fugl inní gymminu! Ok þetta var mjög fyndið í morgun þegar þetta gerðist, sennilega ekki jafn fyndið að lesa um það..! O_o

Jæja ætla að klára spinningdiskinn og fara svo að lúlla, vinna aftur kl.5:30 í fyrramálið, þar á meðal 2 spinningtímar kl.7 og 10. Góða nótt lömbin mín...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hei við YÖK erum komin með kött. Ef þú sendir mér e-mailið þitt get ég sent þér mynd. kv. ALE

Nafnlaus sagði...

Já nú skil ég, var ekki að fatta hver þessi gæji í ræktinni var, sá þig eitthvað vera tjá þig um þetta á facebook :)

Annars gott að það er nóg að gera hjá þér, ég þarf þá að fara gefa upp vonina um að þú sért á leiðinni aftur hingað (hef ekki gefið hana upp ennþá, Gyða Sól er ekki búin að vera dugleg)

kv. Bjarney

Bjarney sagði...

Anný, sendu á bjarney06@ru.is strax!! Jiiii ég bíð spennt..! ;o)

Bjarney, ég ætla að reyna að þrauka allavega árið hérna og vona að ég verði orðin geðveikt successful! Annars skal ég koma heim og þjálfa þig :o)

Nafnlaus sagði...

Eins mikið og mig langar til að þú sért glöð þarna úti þá væri mjög gaman að fá þig aftur í sportúsið að þjálfa mig :)

kv. Bjarney