
Hey vá svo gerði ég þvílíka þrekraun! Ég keyrði alein frá Winchester til Henley! :-D Það er sko rúmlega klukkutíma akstur með hraðbrautum og útúrsnúningum og allt, og á vitlausum vegahelmingi! Vá ég var fáránlega stolt af sjálfri mér! Var reyndar með gps, en þetta var samt afrek sko..!
Úff talandi um það, það er magnað hvernig heilinn í manni virkar, núna þegar ég er búin að búa hérna í töluverðan tíma þá fer allt að renna saman. Oft man ég t.d ekkert hvoru megin stýrið á bílnum er og þarf að labba alveg upp að bílnum til að vita hvoru megin ég á að fara inn. Oft dreymir mig að ég sé að flytja á milli landa, hef flutt til Noregs, Danmerkur og Þýskalands hingað til, og svo vakna ég oft upp á morgnana og hef ekki hugmynd um hvar ég er! Vaknaði t.d í gær og skildi ekkert í því af hverju ég færi ekki oftar í uppáhalds nammisjoppuna mína í Hamraborginni, og það tók mig dágóðan tíma að ná áttum og fatta að ég væri í útlöndum!
Við erum farin að hleypa kisunum út, en erum ekki búin að setja upp kattaflipann þannig að við opnum bara bakdyrahurðina. Nema að fyrsta daginn, þegar við héldum að þeim væri treystandi til að fara út þá opnuðum við um 1-leytið og þeir létu sig hverfa. Einstein kom inn fljótlega en Albert lét bara ekkert sjá sig! Ég var að verða ansi áhyggjufull og fór út að leita, labbaði um hverfið eins og geðsjúklingur "kis kis" og vonaði að kvikindið myndi láta sjá sig. Fór í næstu götu, þar er byggingavöruverslun og risastórt stæði fyrir aftan og ég labbaði þar um og "kis kis"-aði á fullu og fann ég ekki þrífætta gerpið á vappinu! O_o

Jæja þannig að við þurftum að fara að sofa með bakdyrnar opnar og ég í móðursýkiskasti yfir að kötturinn minn væri sennilega farinn til kisuhimnaríkis :-/ Vakna ég upp kl.2 um nóttina þar sem feita kvikindið hoppar uppí til mín og lætur eins og ekkert hafi gerst!! Eitt sem þetta fékk mig þó til að hugsa, hvernig höndlar fólk það að eiga unglinga?? Fékk reyndar eitt gott svar á facebook:"með fullt af vodka!"
En á meðan Hugo er á spítalanum þá leyfi ég kisunum að lúlla uppí, eða reynda leyfi ég þeim það ansi oft, ofdekruð kvikindi! En þeir eiga það samt til að brölta töluvert á nóttunni og Albert hefur ótrúlega þörfa fyrir að vera alltaf að snusa í andlitinu á manni. Í gær fór ég að sofa með hann upp að andlitinu á mér að vanda, sofnaði og vaknaði svo aftur og þá var kvikindið greinilega búið að vera að bylta sér aðeins og ég vaknaði með rassgatið á honum alveg upp við þessu helstu öndunarfæri, og ég er sko ekki að djóka það var gatið sjálft! Stjarnan bara beint í smettinu á mér..! O_o En auðvitað fyrirgaf ég honum það, ýtti honum bara útaf rúminu og hélt áfram að sofa :o)
Annars er vinnan farin að ganga ótrúlega vel, kúnnahópurinn stækkar með hverri vikunni og ég er nokkuð bjartsýn á að ég verði farin að lifa vel á einkaþjálfuninni áður en árið er á enda. Ég er líka búin að vera að kenna aðeins spinning, kenndi t.d 2 tíma síðasta föstudag, kl.7 og 10, og eftir fyrri spinningtímann þá spurði ein konan mig hvort ég væri atvinnu hjólreiðamaður! Og ég komst nottla að þeirri niðurstöðu að ég hlýt að vera með svona risastór læri! Ég meina, hafiði séð lærin á þessum hjólreiðakvikindum??
Anyway, farin að lúlla, 3 kúnnar í fyrramálið og þarf svo að sækja Hux til Winchester, aftur að keyra alein á M3, en rúlla því nottla upp eins og síðast! :-þ(týpískt að ég lendi í bílslysi og deyi eftir þessa yfirlýsingu!) en allavega, ég er farin í bælið, later...
1 ummæli:
Batakveðjur til Skógardýrsins frá ALE og YÖK.
Skrifa ummæli