Jæja næstum því reglulegt blogg :o)
Bara svo erfitt að blogga þegar ég hef ekkert rosa mikið að blogga um! Helst í fréttum að Hulda sys er að koma næstu helgi :-D Hlakka ógó mikið til að hitta hana OG fá íslenskt nammi!! :-þ Ætlum að fara til London á laugardag í jólagjafaleiðangur, það verður pottþétt voða gaman. Er samt í rosa krísu, hef ekki hugmynd um hvað ég á að gefa skógardýrinu..! O_o
Talandi um jólin, ég keypti jólakjólinn minn áðan, í gyminu!! hehe nei þetta er ekki spandex kjóll heldur er kona sem kemur þarna stundum með föt og ég sá þarna afskaplega krúttulegan kjól sem ég ákvað að versla mér fyrir jólin. Það fyrsta sem Hux sagði var bara:"ha þú kaupa kjól, bara svona uppúr þurru??" haha ekki vanur að kellan sé sú stelpulegasta í bransanum, en til að toppa það þá fór ég áðan og fékk mér gervineglur! Veit ekki hvar þetta endar, ætli ég endi ekki sem lesbía eða eitthvað..!
Dísús, mamma Hugo var í ferðalagi um daginn og meiddi sig ansi illa í hnénu við að dansa og var í aðgerð í morgun hjá sama lækni og skar Hux upp fyrir 3 vikum!! Arfgeng óheppni??
Erum loksins búin að setja kattaflipann upp, sem er mikill léttir, nema að það er ekki grín að kenna þroskahömluðum köttum að nota hann! Ég tróð þeim út um hann og svo inn um hann aftur svo að þeir myndu fatta hvernig hann virkar og svo tróð ég Alberti út en hann fattaði strax hvernig ætti að koma inn því hann er svo mikill hræðslupúki að hann hangir inni alla daga. En Einstein hins vegar, ég tróð honum út og fór svo og fékk mér neglur, alveg fullviss um að hann myndi fatta hvernig ætti að fara inn (ég var búin að troða honum út og inn þrisvar sinnum svo að hann væri nú algjörlega með þetta á hreinu). Svo kem ég heim úr nöglunum 2 tímum síðar fer inn, heyri þá eymdarlegt mjálm, stendur þá ekki kvikindið fyrir utan útidyrahurðina og bíður eftir að ég hleypi sér inn. Hann er algjörlega gagnslaus þessi köttur!!
Annars ekkert mikið að frétta fyrir utan það, er bara alltaf eitthvað að vinna og æfa, fór reyndar út að borða á föstudag með Hugo og vinafólkiokkar, fórum á einhvern tælenskan stað og ég vaknaði margföld í framan daginn eftir!! Sennilega eitthvað krydd eða eitthvað sem ég höndla ekki, ætla allavega ekki að fara þangað aftur..!
Jæja nóg í bili, hef pottþétt eitthvað að blogga um eftir næstu helgi :-D Later...
2 ummæli:
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þér gengur að kenna snillingunum þínum að nota kattalúguna, hahaha. Brandur okkar hins vegar hrikalega gáfaður sko. YÖK bannar honum að vera í svefnherberginu og áðan lokaði ég á hann meðan ég var að skipta á rúmunum og snillingurinn fór þá bara út um þvottahúsgluggann og kom svo bara inn um svefnherbergisgluggann og spígsporaði um allt svefnherbergið voða hróðugur! Hei ég er komin í aðventuátak, nú hef ég 4 vikur til að ná ofurgellu-lúkkinu. kv. ALE
Þú átt ekki mynd af þessu er það? Væri alveg til í að bæta þessari "margföld-í-fésinu" mynd í "skrýtna-Bjarney" safnið mitt :D
Skrifa ummæli