Jæja ég verð víst að halda vikuregluna!!
Hulda sys var hérna um helgina, ótrúlega gaman að sjá hana og hafa hana hérna hjá okkur. Á föstudagskvöldið sóttum við hana til Reading og fórum með hana á uppáhaldsveitingastaðinn minn, sem kallast Wagamamas og er japanskur staður, ég hreinlega elska hann! Fæ mér chili kjúklingachilli súpa og chilli smokkfisk, namm! hehe og henni fannst hann voða góður líka, sem var léttir!
Á laugardeginum fórum við í Verslunarmiðstöð í Reading sem kallast The Oracle, fórum í jólagjafaleiðangur og ég ætlaði aldeilis að finna jólagjöf fyrir Hugo. Honum vantar föt í ræktina þannig að við töldum okkur heldur betur hafa komist í feitt þegar við fórum inní sportsdirect og það var útsala, allt að 70% afsláttur! Ég keypti sem sagt Nike skins (níðþröngur bolur til að vera í innundir) 2 hlaupabuxur og hlýrabol á sjálfa mig, handa Hugo: ekkert! O_o
Hulda keypti auk þess jólagjöfina mína þarna inni, meiri föt í ræktina :-D
Þannig að ég er ennþá í vandræðum með skógardýrið, en stefni á að finna það fyrir jólin!!
Hulda dressaði sjálfa sig líka upp fyrir ræktina og ég var ekkert smá stolt af henni! Ég var s.s að kenna spinning í gærmorgun kl.9, áður en ég myndi keyra hana á flugvöllinn. Ég sagði við hana eftir verslunarferðina: jæja nú hefurðu enga afsökun til að fara ekki út að hlaupa! Þá stakk hún uppá að koma bara með mér í spinning fyrir flugið! Ekki oft sem fólk sem ákveður að byrja aftur í ræktinni eftir hlé í útlöndum! En hún var að koma í spinningtíma til mín í fyrsta sinn, og það þegar ég kenni á ensku! hehe mjög töff
Annars erum við komin í voða jólafíling hérna, búin að henda upp jólatréinu og seríum og erum komin með FULLT af pökkum undir tréð :-D Svo eru foreldrar mínir algjörir snillingar, sendu okkur nottla fullt af pökkum og svo er einn pakki til Alberts og Einsteins frá þeim! Það er nottla ekkert gert uppá milli barnabarnanna! :-þ Við ætlum svo að gefa hvort öðru í skóinn að íslenskum sið, mjög þroskuð! :o)
Jæja hef ekkert meira að segja, allavega komin með vikulega öppdeitið, later...
2 ummæli:
Gaman að fá fréttir frá ykkur. Við YÖK vorum að setja upp kisulúgu og erum að þjálfa Brand í að nota hana. Ekkert mál að fara út en meira vesen að koma inn því segullinn tekur úr lás í svo stuttan tíma og hann ekki búinn að fatta að hann þarf að drífa sig inn. En þetta hlýtur að koma!
hahahah já þeir fatta þetta þegar þeir eru búnir að vera læstir úti í smá tíma, ALbert lærði þetta af eintómri taugaveiklun..!
Skrifa ummæli