mánudagur, desember 13, 2010

viku síðar :o)

jæja vika síðan síðast :o)

2 jólasveinar komnir til byggða og ég búin að fá sturtusápu (voða fína) og svo voða fínt relax baðsalt og body lotion í morgun. Hugo fékk jólaskraut á tréð í gær, með mynd af mér, veit nú ekki hvar sveinki fékk þá mynd! Og svo snjókarlakönnu í morgun, mjög vel valið hjá jólasveininum! ;-þ

Reyndar veit ég hvað ég fæ fyrsti 3 dagana, þar sem ég var að versla með "jólasveininum" í Tesco í fyrradag og þurfti að minna hann á að nú væri komið að fyrstu skógjöfinni. Til að gera langa sögu enn lengri, þá var þarna hilla með allskyns stelpudóti og hann spurði hvort ég hefði gaman að svona drasli, þá sagði ég að þrátt fyrir að ég lyfti 60 kg í bekkpressu (þrisvar sinnum! ;-Þ) og 115 kg í réttstöðulyftu þá á ég samt alveg mínar stelpulegu hliðar! (Og svo er ég með geðveikt þurra húð þannig að ég þarf að maka á mig kremum í tíma og ótíma) Allavega það var þarna tilboð "kaupa tvennt, og fá það þriðja frítt" þannig að þá var hann búinn að redda fyrstu 3 dögunum af skógjöf. Mjög spennandi fyrir mig líka að verða vitni að þessum kaupum..! o_O

Annars ekkert brjálæðislega mikið að frétta, er að pikka upp einn og einn kúnna og er að vona að það verði sprengja í janúar. Er búin að vera að vinna frekar mikið og kenna fullt af tímum, og svo í gær þá ákvað ég að kenna spinning kl.9, fór í body attack kl.10 (hóptími með fullt af hoppum, spörkum og kýlingum), og svo body pump kl.11 (hóptími þar sem maður er að lyfta lóðum). Var ansi lúin eftir það, en vá hvað það var gott. Var farin að sakna þessarar tilfinningar að vera algjörlega búin á því, titraði í fótunum og allt. Lá svo bara í leti það sem eftir var dags á meðan Hugo lá í þynnku :o) Hélt ég yrði stífari í dag en er bara nokkuð ágæt, ætla að skella mér aftur í body attack í kvöld, hef nokkuð gaman að því. Einföld spor sem meira að segja ég get fylgt eftir, og bara hopp og hí, sviti og gaman :o)

Jæja ætla að láta þetta duga, þarf að rölta í bæinn og stússast aðeins. Later peepz...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

YÖK var að verða afi áðan. 12 marka strákur, 48 cm. Erum á leiðinni núna upp á deild að skoða gripinn. Sendi þér myndir síðar. kv. ALE

Bjarney sagði...

Ó vá! Innilega til hamingju með það! Já hlakka til að sjá myndirnar!! Knúsaðu afann frá mér :o)