laugardagur, desember 18, 2010

Ákvað að skella í eina færslu þar sem ég er komin uppí rúm og geri fyrir klára fyrir svefn fyrir miðnætti á laugardagskvöld, mjög mjög sorglegt! En á meðan tryppið er úti með rugbystrákunum þá ætla ég að fá fegurðarsvefninn minn og vakna svo í fyrramálið og skella mér í body attack og body pump, færast einu skrefi nær six-pcakinum mínum :o)

Annars er ótrúlega jólalegt hérna núna, gistum hjá foreldrum Hugos síðustu nótt og þetta var útsýnið út um gluggann í morgun:


Oh ég elska snjó! Jafn twisted og það hljómar þar sem ég HATA kulda af mikilli ástríðu, en þegar veðrið er svona stillt og bara jólasnjór yfir öllu þá er þetta uppáhalds veðrið mitt í öllum heiminum :-D

En það er alveg magnað hversu lítið af snjó þarf til að lama þjóðfélagið hérna! Bretar eru alveg hreint glataðir þegar kemur að snjó og samgöngum! Enginn er t.d á vetrardekkjum og eru bara í ruglinu á vegunum. T.d í dag þá vorum við inní skóbúð og þau lokuðu snemma útaf veðrinu (sem var mjög gott á þeim tímapunkti), en þá var sko veðurspáin svo slæm og sumir starsmenn áttu heima í Southhampton (15 mínútur frá)og vildu ekki taka sénsinn! Alveg hreint ótrúlega aumkunarvert..!

ÁI! Ég heyrði eitthvað geðveikt furðulegt hljóð niðri, kettirnir að gera einvern óskunda af sér, þannig að ég fór niður til að athuga en þá vildi ekki betur til en að ég rann í tröppunum (note to self: ullarsokkar á teppalögðum stiga eru mjöööög sleipir!) og rann niður hálfann stigann og meiddi mig geðveikt í vinstri rasskinninni og vinstri hælnum, oh þetta var geðveikt vont! O_o

Humm eitthvað meira að frétta, er búin að vera að fá í skóinn, nema að einu sinni þá var ekkert í skónnum mínum og sveinki sagði að ég hefði ekki leitað nógu vel og þegar ég kom heim úr vinnunni þá var það í skónnum hans! Var samt ekki þar þegar ég fór, hann var bara að reyna að varpa ábyrgðinni yfir á mig! Svo var morguninn eftir heldur ekkert í skónnum þannig að ég fór aftur upp og minnti hann á að setja eitthvað í skóinn minn, þar sem ég var mjög spennt að vita hvað ég ætti að fá! En hann er búinn að gefa mér fullt af rosa fínu, t.d persónulegt te, sem er sérútbúið fyrir mig, og svo bætti hann heldur betur upp fyrir að vera gleyminn sveinki í gær! Við fórum s.s til Winchester til að halda uppá sextugsafmæli pabba hans, og þeir frændurnir ákváðu að kíkja aðeins út á lífið eftir afmælið, nema að það var víst grautfúlt þannig að þeir ákváðu bara að fara í Tesco og koma svo heim. Svo þegar ég vaknaði í morgun þá sýndi hann mér skógjöfina mína sem var trampólín! Sem mig langaði geðveikt í sko, svona lítið trampólín sem er gott fyrir veik hné, hoppa og skoppa á því til að styrkja vöðvana í kringum hnéliðinn (og nottla brenna nokkrum kaloríum ;-þ). Þannig að ég var nottla í skýjunum, en grunar að drykkjarföngin sem höfð voru um hönd í afmælinu hafi haft eitthvað með það að gera að honum hafi skyndilega þótt það góð hugmynd að gefa mér TRAMPÓLÍN!! o_O

En ég er samt alveg búin að gefa honum fínt líka, gaf honum t.d höfuðnuddgræju í gærmorgun! Reyndar af svolítið sjálfselskum hvötum þar sem ég mun mjööööög líklega snapa út eitt, tvö höfuðnudd frá honum með græjunni góðu :-þ

Ætlaði að setja inn fleiri myndir en bloggerinn ekki að leyfa mér það núna, ætla að láta þetta duga í bili og halda áfram að vorkenna mér fyrir að detta niður tröppurnar..! Góða nótt og allt það x

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ æ hvað ég vorkenni þér, vonandi er þér batnað í rassinum núna ;)
Hafðu það rosa gott um jól og áramót og njóttu þess að kynnast hátíðunum í öðru landi :)

Bestu jólakveðjur
Bjarney

Kamilla Grannell sagði...

Halló Skvísa,

Elti tengla á íslenskum bloggum og endaði hér - langaði til að segja Hæ.

Er búsett næstum því í nágrenninu við þig (ég er nær M3 en þú ert nær M4 held ég).

Vona að þið 'njótið' veðursins..

Kay

Lilja og Sissi sagði...

Get alveg lofað því að hér sitja tvö sófadýr og hugsa um snjóinn hjá þér og vildu óska að þessi snjór væri hér líka :þ
En látu þér endilega batna á rassinum :S þetta er hrikalega vont að detta í stiga :S

Bjarney sagði...

Takk fyrir að kommenta öll saman, gaman að vita að allir heima viti að mér sé illt í rassinum! ;o)

En kinnin er öll að koma til, svolítið marin en verkurinn farinn..

Gleðileg jól, og ég vona að það komi snjór til ykkar líka :-D