Búin að vera að sprella á fullu í handboltanum (og líður eins og ég sé í skrokki 117 ára gamallar konu, en merkilegt nokk þá er það þess virði ;-þ) Unnum deildina eins og ég sagði frá um daginn og erum komnar í úrslitaleikinn í bikarnum sem verður þann 4.júní í Crystal Palace. Hérna eru myndir frá undanúrslitaleiknum (verðið að copy/paste-a): http://www.flickr.com/photos/44934934@N05/5721773549/in/set-72157626600657501
Ég hreinlega VERÐ að gera eitthvað í andlitinu á mér þegar ég spila, þessa útblásnu kinnar eru hreinlega ekki nógu töff!! o_O
Annars fórum við til Manchester síðasta sunnudag til að spila síðasta leikinn í deildinni, leikur sem skipti engu máli en við kláruðum hann með stæl. Við vorum í ströggli með þær síðast þegar við spiluðum við þær (fyrir 2 vikum í 8-liða úrslitum bikarsins) en þá unnum við 30-40 (ekki beint leikur sterkra varna!) en síðasta sunnudag unnum við 15-42 og kellan setti 10 mörk að þessu sinni, og aftur aðallega af því að þær voru að taka skyttuna okkar, og stundum miðjumanninn úr umferð, þannig að ég fékk allt pláss í heiminum, og sem betur fer náði ég að nýta það :o)
Helgin sem er að koma er crazy, erum að fara í brúðkaup á morgun og ég er komin með ótrúlega enskt dress (meira að segja með svona skraut á hausnum! ekki alveg jafn dramatískt og á myndinni, myndin er bara til að gefa ykkur hugmynd, en ég set inn myndir frá brúðkaupinu eftir helgi :o)), sem er samt voða krúttlegt (þó að ég muni nú seint teljast krúttleg í kjól!!), en svo á laugardagsmorgunin, brottför kl.5:00 (!), reyndar fara flestar á föstudagskvöldið, en við erum tvær sem förum á laugardagsmorgun, til Liverpool til að spila á handboltamóti. Fyrsti leikur kl.9 á lau, þannig að við verðum að vera komnar í tæka tíð. Þetta mót er bara til að hafa gaman og ég hlakka ekkert smá mikið til, kann ótrúlega vel við stelpurnar í liðinu mínu og hlakka ótrúlega mikið til að eyða helginni í handbolta og annars konar skemmtun ;o)

Ég get nú eiginlega ekki bloggað án þess að minnast á þessi kattakvikindi mín, en Einstein verður furðulegri með hverjum deginum! Við erum með millihurð í eldhúsinu og hún þarf að vera opin til að kettirnir komist út um kattaflipann sinn sem er á bakdyrahurðinni. Ef millihurðin af einhverjum ástæðum er lokuð, venjulega þegar við erum að stússast í eldhúsinu og þurfum að loka henni til að koma að skápum o.fl., þá kemur Einstein hlaupandi að hurðinni og horfir svo á okkur þar til við opnum hurðina, en það er ekki til að fara út um kattaflipann, nei yfirleitt fer hann bara og labbar einn hring á baðherberginu eða snusar af þvottavélinni eða eitthvað svona bara til að þykjast hafa ástæðu til að fara í gegnum millihurðina!! Held að hluti af þroskahömlun hans sé einhvers konar einhverfa, hann bara höndlar ekki að hafa hurðina lokaða..! o_O
Annars er Ingunn vinkona að koma á mánudag! :-D Ætlum að tala saman um helgina til að ákveða hvaða nammi hún ætlar að koma með handa okkur!! haha eðlilegt! En ég hlakka ekkert smá til að fá hana í heimsókn, og svo koma Svana og Grímur vikuna eftir, þannig að það er ansi þétt dagskrá framundan! Mun vera með myndavélina á lofti og henda inn myndum fyrir áhugasama á næstunni ;o)
Ætla að láta þetta duga að sinni, later...
Einstein og millihurðin
4 ummæli:
Shit hvað þetta eru fyndnar myndir! Og hvað MEINARÐU? Það er ekkert að kinnunum þínum.... :)
Mætti halda að þetta hefði verið keppni í glímu en ekki handbolta, tja eða grettukeppni! :)
Annars alltaf gaman að lesa bloggið, þó maður sé ekkert ofvirkur í kvitteríinu þá les maður alltaf
Takk fyrir að nenna að skrifa elsku sys..... alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)
Mér sýnist þú nú bara langsætust af þessum stelpum sko. ALE
Sissi segir að Einstein sé bara að stríða ykkur :þ
Skrifa ummæli