fresh blogg
Verð að blogga núna, fullt búið að gerast síðan síðast!! Síðasta helgi var geðbiluð! Á föstudeginum byrjaði ég að vinna kl.6, vaknaði s.s kl.5:30 og þurfti svo að fara beint í brúðkaupið (með dót á hausnum :o)) og það var ótrúlega gaman og fáránlega flott!! Hérna eru myndir af því: http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150287697895041.377534.579915040
Það var ÖLLU til tjaldað, það var t.d kona að leika styttu!! Og ísskúlptur og eitthvað allskonar, eins og þið getið kannski giskað á þá þarf þetta par ekki að hafa áhyggjur af peningum og eitt af því fyrsta sem Hugo sagði í brúðkaupinu var: "ekki gera þér neinar vonir!!" haha enda myndi ég ekki endilega eyða peningum í einhvern að leika styttu..! o_O

En við keyrðum svo heim um kvöldið og það var svooooo erfitt, ég var í baráttu að halda augunum opnum (ég var að keyra þannig að það var töluvert mikilvægt að halda þeim opnum!) en komst svo loksins í bælið kl.1:30. Adam var þó ekki lengi í bælinu þar sem ég þurfti að vakna kl.4:30 til að keyra til Liverpool á handboltamót.
Þær fóru flestar á föstudeginum þannig að ég var eiginlega hætt við að fara en ein í liðinu ákvað að fara eldsnemma á laugardeginum svo að ég gæti komið, ekkert smá elskulegt af henni :o) Við vorum komnar til Liverpool um 8.30 og fyrsti leikur kl.9:30, spiluðum svo 3 leiki (bara 20 mínútna leikir) þannig daginn. Svo var bara eitthvað brallað um daginn, aðallega horft á handbolta og svo fórum við út að skemmta okkur um kvöldið. Það var mjög gaman en ég fór heim með fyrsta holli og fór að sofa um 3:30. Vöknuðum kl.10, fórum í morgunmat og spiluðum svo einn leik í viðbót og keyrðum svo tilbaka. (enduðum í 3.sæti á mótinu ef einhver hefur áhuga, en við vorum ekki með 2 sterkustu leikmennina okkar og fórum bara til að hafa gaman, enda voru flestar skelþunnar í síðasta leiknum haha). Og til að gera langa sögu enn lengri þá kom ég heim á sunnudagskvöldið og hreinlega dó! Og ef ég á að segja eins og er þá var öll síðasta vika frekar erfið! Svona djammlíferni verður ekkert auðveldara eftir því sem maður eldist! Sjæs tekur mig heila viku að jafna mig..! (myndirnar eru af liðinu mínu (fyrir utan nokkrar) og mér með morgunmatinn minn, svínamöffins! :-þ)

Á mánudaginn kom svo Ingunn vinkona í heimsókn (set inn myndir þegar Ingunn setur þær á facebook, engin pressa samt Ingunn! ;o)). Hún var að koma til Englands til að keppa í Evrópumótinu í Crossfit og var einmitt að senda mér skilaboð um að liðið hennar hefði unnið mótið! Innilega til hamingju með það snillingur! *smooch* Það var ekkert smá gaman að hafa hana hérna og hún er svo ótrúlega fyndin týpa, nottla snarofvirk og allt það, en það sem mér finnst fyndnast er að hún er ALLTAF svöng! (sést samt ekki á henni!)Á þriðjudaginn fórum við í gymið, ég að kenna spinning og hún að lyfta, fengum okkur svo máltíð þar, eggjaommelettu og eitthvað, og svo í bæinn þar sem við fengum okkur stóra Starbucks frappuccino. Hún var að drepast í öxlinni og ákvað að fara í Boots og kaupa íbúfen, sagði svo þegar við komum út:"æ ég er að spá í að taka eina núna þó að ég viti að það sé ekkert rosa gott svona á fastandi maga" Ég sprakk úr hlátri og minnti hana á að við hefðum rétt í þessu verið að klára máltíð OG frappucino, hún væri nú ekki beint fastandi! Algjör snillingur hahaha!
Við spiluðum svo úrslitaleik í bikarnum í gær og unnum :-D Ég ákvað að keyra ein (Hugo er að læra fyrirpróf, fyrsta prófið á morgun þannig að hann gat ekki komið að horfa) og ég ákvað að keyra í staðinn fyrir að taka lestina (fáránlega hugrökk að keyra inní London finnst mér! ;-þ) Byrjaði svo á því að lenda í umferðarteppu á einn hraðbrautinni og mætti alltof seint! Og umferðarteppurnar hér eru ekkert 10 mínútna seinkun eins og heima, nei ég mætti s.s klukkutíma of seint!! Ég reyndi samt að halda ró minni og þjálfarinn minn hló að mér þar sem ég er alltaf of sein! (er ennþá að læra á þetta umferðarteppusystem!) en já, ég gerði ofurupphitun á ca. 10 mínútum og var orðin vel klár í leikinn, var samt ekkert of stressuð þar sem ég var viss um að ég myndi hvort sem er byrja á bekknum. Stelpan sem er líka í vinstra horninu er búin að æfa með þeim í 4 ár og hefur mætt á allar æfingar á meðan ég byrjaði í janúar og datt svo út í 2 mánuði útaf bílleysi og toppaði það svo í gær með því að mæta alltof seint, þannig að ég gerði bara ráð fyrir að hin myndi byrja inná. Svo er leikurinn að byrja og ég sé hina stelpuna setjast á bekkinn og ég bara:"ha ertu ekki inná?" og hún:"nei þú byrjar" og liðið mitt er að stilla sér uppá miðjunni! Ég nottla hljóp inná og stóð mig svo bara ótrúlega vel, skoraði 4 mörk og nýtti færin mín nokkuð vel. Og eftir á að hyggja er gott að ég vissi ekki að ég væri að byrja af því að ég er alltaf svo sjúklega stressuð fyrir leiki! Líka þegar ég var að spila í 2.deildinni heima bara til að hafa gaman, þá var ég alltaf ótrúlega stressuð fyrir leiki, mjög eðlilegt! En já það var ótrúlega gaman að vinna og taka þátt í þessu, á núna 2 medalíur fyrir afrek mín í enskum handbolta! ;-D
Þetta er orðið ansi langt blogg en það eru samt tvær sögur sem mig langar að deila með ykkur. Það eru nokkrar klikkaðar kattakellingar hérna í götunni og m.a ein þar sem Einstein hefur hertekið stól til að lúlla á. Hún á ótrúlega sætan bengal kött sem hún hélt á um daginn og ég vildi fá að klappa. Ég sagði við hana að kisan væri svona alveg við það að fara að treysta mér, kæmi til mín en ekki aaaaalveg til mín. Þá sagði kellingin:"já ætli hún haldi ekki að þú sért ég í fjarska, hún sér ekkert rosalega vel. En svona Bengalkisum er oft stolið og ég er búin að segja við hana (KÖTTINN) að tala ekki við ókunnuga, þannig að þess vegna kemur hún ekki til þín" Og hún innilega trúir því að kötturinn skilji hana!! En kisan er nú samt farin að koma til mín og leyfa mér að klappa henni aðeins þannig að kellingin þarf greinilega að ræða aftur við köttinn og útskýra betur hættuna við að tala við ókunnuga!! Svo er fólk að segja að ÉG sé klikkuð kattakelling!
Og að lokum (lofa!) ég og Hugo lágum í sitthvorum sófanum um daginn og ég sé að hann er alltaf að lyfta upp hendinni og setja hana aftur niður. Ég spyr hann hvort allt sé í lagi, þá segir hann mér að hann sé að leika sér með blóðið í hendinni! (WTF?) Setur hendina niður, fyllir hana af blóði, lyftir henni svo upp og tæmir hana!! Mjög eðlilegt..! o_O
Læt þetta duga að sinni, ætla að halda áfram að þrífa. Svana og Grímur að koma til mín á morgun, og svo er ég orðin óóóóóótrúlega spennt yfir að fá Þórunni, Sindra og Óskar Dag til mín í ágúst :-D Anyways, ég er farin........

4 Comments:
elskubestasystirmín@orkubolti.is
lovjú ;)
kv. Þórunn
By
Nafnlaus, at 5/6/11 20:40
Oh takk elsku bestasta systir mín! Lovjú tú! Og hlakka ekkert smá mikið til að fá ykkur í heimsókn, fékk fiðrildi í magann í gær þegar ég fór að hugsa um að sækja ykkur út á flugvöll :-D
og takk fyrir að kommenta, miklu skemmtilegra að blogga þegar fólk nennir að kommenta hjá manni! haha *kossar og knús*
By
Bjarney, at 5/6/11 20:49
Gaman að heyra sögur af ykkur i Henley mín kæra. Thú mættir nú samt alveg slaka á f minn smekk...og ég veit ad tad kemur úr hörðustu átÒtrúlegt hvað hvít skrautgrein á hausnum gerir mikið fyrir mann!!! En ad öllu griíni slepptu tá ertu Geggjud Flott í brúðkaupinu. Fallegt dress og bara hrikalega cute.
By
Hulda, at 5/6/11 22:13
...kláraði ekki. Ætlaði að segja að við vorum að koma frá grindó, sjóaranum síkáta. Tarf sennilega að taka mig á med að pósta myndum...alltaf svo gaman ad lesa titt blogg og sjá myndir. En knús í hús í bili. Sé ad þú og kattarkonan náið vel saman... ;-)
By
Hulda, at 5/6/11 22:21
Sendu inn athugasemd
<< Home