Hlauptu hlunkur

mánudagur, júlí 11, 2011

jæja loksins nýtt blogg :o)



vá jæja ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg!! Eftir því sem lengar líður þeim mun erfiðara er að koma sér af stað aftur! Ekki það, efast um að fólk sé að missa svefn yfir því! haha allavega, hérna er það helsta sem hefur á daga mína drifið síðastliðinn mánuð!!
myndirnar eru af hinu og þessu, óþekku köttunum mínum sem fara uppá borð þegar enginn sér til, Alberti sofandi á gólfinu með lappirnar uppá rúminu (hefði ekki verið þægilegra bara að vera í rúmin sjálfu o_O)uppáhalds namminu mínu ef fólki vantar hugmyndir af nammi til að koma með handa mér ;o) og Hafrúnu í heimsókn)

Svana og Grímur komu að heimsækja mig eftir að Ingunn hafði verið hérna, ekkert smá gaman að fá allar þessar heimsóknir. Við brölluðum ýmislegt, fórum út að borða og svo bjó ég til þennan dýrindis bröns handa þeim áður en þau fóru aftur, en ég lofaði að setja ekki inn neinar myndir, þrátt fyrir að þau séu nottla gríðarlega myndarleg :o)


Humm hvað var næst, júní er reyndar búinn að vera mjööööög busy, sem er gott. Komin með fullt af kúnnum og sonna, er samt orðin soooooldið þreytt á hversu viðbjóðslega hátt gólfgjaldið er hérna, en þetta gengur ágætlega eins og er.


Fyrstu helgina í júlí er svo Henley Royal Regatta, eða bara RegattaÐ eins og það er kallað, það er hápunktur ársins hérna í Henley. Þetta er s.s róðrakeppni, stærsta alþjóðlega róðrakeppni í heiminum fyrir utan Ólympíuleikana skilst mér. Bærinn fyllist af fólki og allt snýst um þetta. Var ótrúlega gaman að upplifa þetta. Það eru svona lokaðir viðburðir á Regatta, Enclosures svokallað, og það eru svon Posh viðburðir. Konur verða að vera í kjólum sem ná niður fyrir hné, kallarnir í jakkafötum og stranglega bannað að vera með farsíma. Það er frekar dýrt inná þetta, nema ef þú ert í Elítunni. Einn kúnninn minn er svokallaður Stewards og fékk því boð í Stewards Enclosure. Hún spurði hvort ég hefði áhuga á að fara og gaf mér tvo miða, en bað mig vinsamlegast að fara eftir reglunum því ef ég gerði það ekki þá gæti hún verið rekin úr Elítunni og það tekur ekki nema 15 ár að komast inn!! Ég tók Laura vinkonu mína með mér, svo að við gætum perrast í friði (ræðarar (vá hvað þetta er asnalegt orð) eru nefnilega fáránlega heitir og ég veit ekki alveg hvernig það hefði fallið í kramið hjá Hugo ef ég hefði verið slefandi yfir þeim fyrir framan hann!!)

Hérna eru myndir frá Regatta:
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150324022495041.386998.579915040



En ég reyndar skemmti mér ekkert geðveikt vel í Stewards Enclosuer þar sem ég var hálf lasin (og elska ekkert að vera í kjól og háum hælum!), er að verða ansi þreytt á að vera alltaf veik, er með alveg handónýtt ónæmiskerfi, en er að vinna í því núna :o) Samt alveg mér að kenna, ekki ónæmiskerfinu mínu, er búin að vera að þjösnast á því síðustu árin án þess að hlusta á líkamann og hvíla mig inná milli. En ég vona að ég nái að byggja það upp aftur og orðið jafn hraust og fíll að lokum :o)En myndirnar eru frá laugardeginum þegar ég fór með rugbystrákunum, vorum með grillveislu og sonna niðri við ánna og það var ótrúlega gaman. Var reyndar að kenna spinning á sunnudagsmorgninum þannig að ég fór heim frekar snemma, en dagurinn var frábær. Geðveikt veður og geðveik stemning :o)


En svona fyrst ég er komin í veikindapakkann þá get ég alveg eins sagt frá því að það leið aftur yfir mig í síðustu viku. Stórfurðulegt, fékk aftur svona geðveika magaverki og vaknaði svo á gólfinu eftir þann versta (komu í bylgjum). Það var samt ótrúlega fyndið, það er hurð inní gymmið en ég var s.s fyrir utan hana (fyrir utan búningsklefana), og þegar ég er að ranka við mér þá er kona að fara inní gymmið en lítur á mig og spyr mig tvisvar sinnum hvort allt sé í lagi. Þegar ég fæ málið aftur þá segir ég henni að sennilega hafi liðið yfir mig og þá fór hún fram í afgreiðslu til að ná í aðstoð (af því að það var ekki nógu augljóst að það væri ekki allt í lagi með mig! Lá eins og fífl á gólfinu, og dagbókin mín og allt þarna í kringum mig). Svo frétti ég eftir á að tvær konur hafi staðið mig afgreiðsluna, séð mig liggja þarna en ekkert gert því þær héldu að ég væri að sýna einhverjum kviðæfingar!! Eins og ég myndi ekki gera það INNÍ gyminu! En ég held að fólk vilji bara ekki blanda sér inní neitt og réttlætir það á einhvern fáránlegan hátt. En já, svo jafnaði ég mig nokkuð fljótt (er reyndar með ótrúlega auma kúlu á hausnum og hálsríg þar sem það leið yfir mig úr standandi stöðu o_O) og fór út á flugvöll að sækja Hafrúnu vinkonu sem ákvað að koma til mín í 2 daga áður en hún fór til Portúgal :-D




Ég fór með Höbbuna á uppáhalds veitingastaðina mína og svo skelltum við okkur á djammið! (kellan alveg tryllt!), það var samt mjööööög fyndið að fara út, hitti töluvert marga sem ég þekkti og þau voru öll eins og þau hefðu séð draug! Ég var s.s síðasta manneskjan sem þau bjuggust við að sjá úti á lífinu... En það var ótrúlega gaman, þrátt fyrir að við hefðum ekki verið mjög lengi þar sem ég var að fara að vinna morguninn eftir, en kosturinn við djammmenninguna hér er að fólk fer út um kl.9-10 og kemur heim á mill 1 og 3, þannig að manni líður ekkert alltof illa daginn eftir! En það var ótrúlega gaman að fá hana í heimsókn, áttum ótrúlega skemmtilegan tíma saman og alltaf gott að fá að tala smá íslensku og sonna :o)

Svo eru mamma og pabbi að koma á þriðjudag, brjálað að gera í heimsóknum hérna! :-D Þau ætla að vera hjá okkur í 8 daga og við ætlum m.a að fara með þau í heimsókn til foreldra Hugos, sennilega kominn tími til að þau hittist loksins, enda erum við ekki búin að vera saman nema í eitt og hálft ár...


Jæja læt þetta duga að sinni, later...

4 Comments:

  • hérna svona fyrir vitlausa aðila, hvaða nammi er þetta?
    Kv. Lilja

    By Anonymous Lilja og Sissi, at 11/7/11 21:51  

  • þetta er Haribo lakkrísstafir, fæst í Nammilandi :o)

    By Anonymous Bjarney, at 12/7/11 06:21  

  • Ég fékk allar mögulegar pestir þegar ég flutti til Svíþjóðar, held að bakteríu/veiru flóran sé bara eitthvað pinku öðruvísi miðað við heima...

    Vona að þú hættir svo að skapa þér orðspor sem gellan sem sýnir kviðæfingar á skrítnum stöðum :o) eða amk komist að hvað er í gangi.

    By Anonymous Bryndís Þóra, at 13/7/11 15:07  

  • Gaman að heyra frá þér skvís. Við YÖK söknum þín mikið. kv. ALE

    By Anonymous Nafnlaus, at 22/7/11 17:06  

Sendu inn athugasemd

<< Home