Jæja ég ætla að drífa mig í að skrifa blogg og hrósa Icelandair cargo fyrir viðbrögðin við þessu tollagjaldi sem ég vissi ekki af. Ætla svo sem ekkert út í smáatriði en ég er ánægð með hvernig þau leystu þetta. Þannig að ekkert níðblogg um þá, og satt að segja er ég pínu fegin að þetta gerðist svona, því að ég hefði sennilega ekki ákveðið að taka þá með ef ég hefði vitað í upphafi að kostnaður yrði um 150.000.-, en vá hvað ég er fegin að þeir eru komnir :-D
Þeir eru að aðlagast nokkuð vel held ég bara, Albert er ennþá pínu skeptískur og við héldum t.d að hann væri týndur í morgun! Leituðum ALLS STAÐAR (að við héldum) þar til hann kom bara röltandi niður stigann. Aðeins seinna var hann týndur aftur og þá fann ég leynistaðinn hann, hann treður sér sem sagt ofan í skúffuna undir rúminu okkar! Á meðan Einstein breiðir úr sér í gestarúminu, liggur þar eins og kóngur í ríki sínu. En þeir eru báðir voða kelnir og vilja vera í fanginu á okkur eins mikið og þeir geta, Einstein var t.d að spúna með mér í morgun!
Ég vaknaði mjöööög lasin í morgun, held ég hafi borðað úrelt nautahakk í gær og svo var ég að byrja á þessu mánaðarlega og einstaka sinnum fæ ég svo mikla verki að það líður yfir mig, það gerðist s.s í morgun, ofan í matar"eitrun" (var klárlega ekki eitrun en veit ekki annað orð yfir þetta). En já ég sem sagt sat á klóstinu, með geðveika krampa útaf þessu mánaðalega, í massívu detoxi a la Jónína Ben og ælandi í baðkarið samtímis, eða svona eiginlega til skiptis, fór ekkert útfyrir :o) Sem betur fer er baðkarið við hliðiná klóstinu! Og greyið Hugo að reyna að hjálpa, en kúgaðist sjálfur útaf ælulyktinni, en stóð sig samt eins og algjör hetja! :-D Fannst ykkur þetta of miklar upplýsingar?? ;o)
Svo var ég bara eins og múmía í dag, var að reyna að hengja upp þvott en þurfti að leggjast niður á milli hverrar flíkur, en var með 2 kúnna seinnipartinn þannig að ég tók verkjatöflu, beit á jaxlinn og dreif mig uppí gym. Fékk mér kaffibolla og Lucozade (svipað og powerade) og náði að pína kúnnana mína vel :o)
Og núna ætla ég að drífa mig að þrífa, sem rímar ef þið tókuð ekki eftir því, áður en verkjataflan og koffínið hættir að virka..! ;-þ
Later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli