Jæja þá er ég komin heim eftir ótrúlega góða viku á Íslandi. Er alveg að dýrka þessi litlu gerpi! Sindri og Óskar Dagur eru reyndar orðnir algjörir unglingar, en ég dýrka þá samt :o) Þórey María er einu númeri of gáfuð krakkinn! Sem er kostur og galli! Klárlega kostur að vera vel gefin, en galli fyrir mig sem barnapíu að geta ekki mútað henni, hún sér alltaf í gegnum það! Svo er það hann Viktor Andri, sem var næstum því búinn að drepa mig úr krútti!! Þvílík krúttsprengja sem hann er! Og ég er geðveikt þakklát fyrir skype, af því að hann sá mig og brosti bara, alveg vanur smettinu á mér :o)
Ég hlakkaði samt til að fara aftur út, en svo þegar ég var komin í gærkvöldi þá byrjaði ég þvílíkt að sakna allra heima :-/ Sennilega líka af því að ég veit að ég er líklega ekki á leiðinni heim fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar. En ég vona að vinir og ættingjar verði bara þeim mun duglegri að heimsækja mig í staðinn :o) Gunna Dóra er t.d að koma næstu helgi, það verður pottþétt líf og fjör. Og svo mega kisurnar mínar koma í næstu viku en ég er ekki ennþá búinn að finna neinn sem er að fara til London, eða allavega engan sem vill leyfa kisunum mínum að "fylgja sér". Ég náði ekkert að hitta þá þegar ég var heima! :-( Var á leiðinni þrisvar held ég, en þeir voru ekki heima í neitt af þeim skiptum, alltaf bara eitthvað úti að leika. En ég er farin að sakna þeirra þvílíkt og vona innilega að ég nái að flytja þá út sem fyrst.
Mætti í ræktina í morgun að þjálfa og framkvæmdastjórinn talaði við mig og bauð mér 50% vinnu (ég var búin að spyrjast fyrir um hvort það eitthvað laust), þá sem þjálfari í tækjasal, jafnvel eitthvað í afgreiðslunni og bara svona það sem þarf að leysa hveru sinni. Ástæðan fyrir því að ég vil hafa þetta með er að þá er ég með einhverjar fastar tekjur, og ég verð sýnilegri í stöðinni. Hefðin hérna úti er öðruvísi, hérna er almenningur ekkert eins mikið með þjálfara og heima, og ég er óþekkt nafn. Þannig að svona fæ ég fastar tekjur, get promoterað sjálfa mig og kynnst fólki hérna í Henley. En svo er vonandi að ég þurfi að segja upp vinnunni bráðum af því að það er svo brjálað að gera í einkaþjálfuninni! ;-þ
Og svo skilst mér að fólk hafi verið mjög ánægt með spinningtímann, þannig að ég er að vona að ég fái fasta tíma, 1-2x í viku.
Humm, eitthvað meira að frétta. Já ég kom algjör bolla tilbaka! Það var svo mikið að gera að hitta alla, hádegismatur með einhverjum alla dagana, 2 matarboð, kaffihúsaferð, ísbíltúr o.fl. Eeeeen ég næ vonandi að wörka þetta af í vikunni, er ekkert að stressa mig á þessu um of. Það var alveg þess virði að hitta alla og uppfylla íslenska mats og nammi þörfina :o)
Jæja ætla að fara að skottast uppí gym aftur, later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli