fimmtudagur, október 07, 2010

næstum því bara farin aftur...

Ný styttist dvöl mín í annan endann og ég hef svo sem ekki afrekað margt hérna á þessari viku minni. Búin að fara í ræktina á hverjum degi og rifja upp hvað ég elska Sporthúsið mikið, ég bara hreinlega elska þennan stað og þá aðallega fólkið sem vinnur þar.

Svo er ég búin að fara í klippingu og strípur, vax og litun og plokkun hjá henni Svönu minni í Dimmalimm (og það var sko alveg kominn tími á það..!O_o) hádegismat með hinum og þessum, matarboð í kvöld, og svo ætla ég að hitta handboltastelpurnar og fjölskylduboð planað áður en ég fer. Þannig að áður en ég veit verð ég farin aftur O_o

Annars er bara allt búið að vera crazy síðan ég kom, mótmæli og allt. Einhverjir ógeðslegir nýnasistar með fánana sína á Austurvelli, vildi óska að einhver hefði bara hent þeim á bálið! Fólk að setja slor fyrir utan hjá ráðherrunum, hvað er að?? Þessi ríkisstjórn hefur kannski ekkert verið að fremja einhver hetjudáð en þau komu okkur ekki í þennan kúk og eiga svona framkomu ekki skilið! En ég held að þetta sé bara fólk með annarlegar hvatir og fær loksins "afsökun" til að fá útrás fyrir þessa geðveilu sína og því miður er einhver hluti skrílsins að fagna þeim og hvetja þessi fífl áfram! Díses kræst sko! En sem betur fer er stór hluti þjóðarinnar ekki fylgjandi svona háttalagi...

Loksins kom einhver þingmaður og setti spurningamerki við þessi listamannalaun! Gaman að segja frá því að ég bloggaði um þetta fyrir 4 árum!! Hérna er færslan ef einhver vill lesa:
http://bjarneybj.blogspot.com/2006/12/af-hverju.html

Skil ekki af hverju er verið að borga listamönnum laun! Er alveg hlynnt því að einhverji peningar fari til rekstur leikhúsa og svona drasl eins og rekstur íþróttahúsa er styrktur, en að verið sé að borga einstaka listamönnum svo að þeir geti hangið heima hjá sér og stundað einhverja list sem aðeins lítill hluti skattborgara hefur áhuga á! Og fyrir utan það þá virðist það bara vera einhver elíta sem fær þessi laun, listamenn sem eiga skítnóg af peningum hvort sem er..! O_o

Og svo eru listamenn að hóta að fara í verkfall útaf orðum Ásbjörns! Ó NEI! Þjóðfélagið hrynur sennilega til grunna! Ætla ekki að gera lítið úr listamönnum, en mér finnst þetta soldið ofmat. Ég vil ekki listasnautt samfélag, en mér finnst þeir alveg geta tekið á sig einhverja skerðingu núna á þessum síðustu og verstu þegar allir þurfa að þola niðurskurð. Allavega vil ég frekar hafa mannslíf í forgangi með því að hafa t.d starfhæfa spítala heldur en sjöundu sinfóníu Beethovens eða eitthvað...

Og já, ég skil ekki af hverju ég er ekki í ríkisstjórn! 4 árum á undan! Og löngu fyrir hrun var ég oft að velta því fyrir mér hvernig væri hægt að byggja svona mikið af húsum þar sem við eigum hreinlega ekki nóg af fólki til að búa eða vinna í þeim öllum! Svo kom bara í ljós að við gátum það ekkert! Ég er kannski ekki alltaf með fræðilegustu rök í heimi, en stundum þarf bara fólk eins og mig til að benda á keisarinn er ekki í neinum fötum..! ;o)

En annars nenni ég ekki að pirra mig á þessu, skattpeningar mínir héðan í frá verða borgaðir í UK, þar fæ ég allavega fría heilbrigðisþjónustu, og í mínu tilfelli er það STÓR sparnaður! Og svo ef ég eignast einhvern tímann svona börn þá fá þau fría tannlæknaþjónustu, sem mér finnst snilld. Sérstaklega eftir að hafa lesið um konu sem þurfti að gefa barninu sínu verkjalyf því það álpaðist til að fá tannpínu seinnipart mánaðar og mamman hafði ekki efni á því að fara með það til tannsa fyrr en um mánaðamótin :-( En ég las það reyndar inná barnalandi, veit ekki hversu áreiðanleg heimild það er, en mér fannst þetta samt sorgleg saga...


Humm, vá geðveikt niðurdrepandi færsla! Hey er enginn á leið til London á næstunni?? Vantar svo að fara að fá kisurnar mínar út! Sakna þeirra endalaust mikið. Ein kona að segja mér að Einstein er alltaf eitthva að væflast fyrir utan hjá þeim og allir krakkarnir að leika við hann, hann er sko vinsælasti kötturinn í hverfinu! Enda er hann líka snillingur, og bara með 3 lappir í þokkabót, það er bara ekkert hægt annað en að elska hann. Er reyndar pínu hrædd um að vera að gera honum grikk með að taka hann út, að fara frá því að vera vinsælasti kisinn í að vera kannski lagður í einelti af enskum köttum með 4 lappir! Eeeeen ég vona að hann verði þá bara meira heimavið og kúri með mömmu sinni :o) Og svo sakna ég nottla feita gerpisins líka, verður gott að hafa sófaklessuna á sínum stað alltaf þegar ég kem heim :-D

Jæja læt þetta duga í bili, er að fara í matarboð. Og mamma að passa, ég er meiriháttar barnapía! Ég hélt samt að þau yrðu komin heim núna en þau koma heim í nótt, sem betur fer á ég yndislega mömmu :o) Sem er meirsegja svo yndisleg að þegar hún kom í gær þá vildu krakkarnir ekkert með mig hafa þannig að ég fór bara út að hlaupa..! O_o

Anyways, later....

Engin ummæli: