
Vá svo er ég nottla ekki eðlilega misheppnuð! Fór út að borða með Hugo og fjölskyldunni hans á fimmtudag. Svo fékk ég allt í einu geðveikan verk í magann sem fór svo aftur, svo kom hann aftur og ég vissi bara ekkert hvað var að gerast. Svo fór hann en kom svo í þriðja sinn og ég gríp um mallann, Hugo spyr hvað sé að og það næsta sem ég veit er að ég ranka við mér á gólfinu! Hugo hafði prumpað rétt áður og þau héldu öll að ég væri að dramatisera hlutina með því að halla mér í hina áttina en þá var ég sem sagt rænulaus og var hreinlega að detta á bróður hans! Hann grípur mig og Hugo stendur upp og grípur mig og þá fékk ég vægt flog. Lympaðist svo bara niður og var meðvitundarlaus í ca. 2 mínútur. Læknirinn sagði að magaverkurinn hefði ekki verið "raunverulegur", enda var svo ekkert að mér í maganum. Þá bregst líkaminn svona við, sumir finna skrýtna lykt en aðrir fá geðveikan magaverk rétt fyrir flog, einhvers konar draugaverkur. Og ég þurfti að dúsa á spítala yfir nóttina fyrst ég fékk þetta flog og var send í allskyns rannsóknir. Einn læknirinn spurði mig hvort ég væri í rosa góðu formi því að ég væri með óvenjulegan hjartslátt sem sæist bara í gömlum konum og íþróttafólki (hann hefur sennilega ekki viljað skilgreina mig sem gamla konu uppí opið geðið á mér O_o) en ég fékk svo sem ekki frekari skýringu á hvað er óeðlilegt við hjartsláttinn, en allavega ekkert hættulegt :o) Allt annað kom eðlilega út nema CT heilaskanninn var eitthvað skrýtinn, sýndi 5 mm óskilgreint svæði (sem skanninn gat ekki metið) en það gæti alveg eins verið mænuvökvi eða eitthvað. En ég fer í frekari rannsóknir þegar ég kem út, nákvæmari heilaskanna og eitthvað, en þeir sögðu að mjög líklega er þetta ekkert. Og allir mega fá eitt flog á ævinni án þess að það sé eitthvað að :o) Þannig að já, enn ein rósin í hnappagatið hjá mér, ég er ekki eðlilega mikið drasl sko..! O_o
uh eitthvað annað, já ég er byrjuð að kenna spinning :o) Ég sagði stelpunni sem sér um hóptímana að ef þeim vantaði afleysingar eða eitthvað þá hefði ég verið að kenna heima, og hún sagði að það væri gott að vita. Kom svo til mín daginn eftir og spurði hvort ég gæti kennt samdægurs og ég sagði bara jájá :o) Og það gekk bara fínt, allavega komu flestir eftir tímann og sögðu mér að þau hefðu verið ánægð og ég frétti úr afgreiðslunni að fólk hefði komið þangað og lýst yfir ánægju með tímann. Þannig að nú vona ég bara að ég fái jafnvel fasta tíma, alltaf gott að fá borgað fyrir að hreyfa á sér rassgatið :-D
Svo fann ég handboltalið og ætla að reyna að skella mér á æfingu þegar ég kem aftur út, þau æfa einu sinni í viku, það er fínt svona uppá hnéð að gera. Það þolir víst ekki mikið meira álag :-/
En jæja læt þetta duga að sinni, later...
p.s íslenska númerið mitt er: 692-1651 ef einhver þarf að ná í mig á meðan ég er á landinu :o)
7 ummæli:
Díses greyið mitt, hverju hefurðu ekki lent í!??! En eins og þeir sögðu að þá er þetta örugglega ekki neitt, bara merkileg óheppni í þér. Held ég hafi aldrei vitað um "heilbrigðari" manneskju með eins marga líkamlega galla/sjúkdóma! :)
Njóttu Íslandsins.
Það á nú ekki af þér að ganga, kemur vonandi allt fínt út úr þessum rannsóknum, þú leyfir okkur að fylgjast með. Glæsilegt hjá þér að vera komin inn sem afleysingakennari - þú verður orðinn yfirþjálfari þarna áður en þú veist af! kv. ALE
Hahahaha... þú ert algjört MET :) Getur verið að ég hafi séð þig bregða fyrir í Sph á sunnudagsmorguninn?? Var á leið í body balance tíma og fannst ég sjá þig, var orðin of sein til að segja hæ (hugsaði það bara í staðinn, vonandi fékkstu hugskeyti...).
kv/Soffía
Já ég var mætt í sph á sunnudagsmorgunin, og fékk pottþétt hugskeytið..! ;-þ
En já ég leyfi ykkur auðvitað að fylgjast með, það er að segja ef ég dey ekki skyndilega þarna einhvers staðar á leiðinni, ég held að það sé það eina sem ég á eftir! Algjör auli sko..! O_o
YÖK segir að þetta sé allt út af því að þú þolir ekki að vera fjarri honum. Hann er enn miður sín eftir að þú yfirgafst hann og sveikst hann svona svakalega. Venjulegur einkaþjálfari hefði bara sagt honum upp en þú þurftir að fara alla leið og flýja land! kv. ALE
hahaha já, ég hefði eiginlega átt að þjálfa hann þessa viku sem ég er á klakanum til að minnka líkurnar á að þetta gerist aftur..! O_o
Hvað er annars að frétta af ykkur, eruði dugleg í ræktinni??
Nei við ekki dugleg í ræktinni en reynum að hemja okkur í matnum. Erum bara svipuð og þegar þú fórst út held ég. Ég reyndar búin að láta mér vaxa alskegg og YÖK fór í brjóstastækkun en að öðru leyti bara mjög svipuð.kv. ALE
Skrifa ummæli