Annars er ég búin að bralla ýmislegt, byrjaði á að fara í mat til Þórunnar sys beint frá flugvellinum, og svo aðeins til Huldu sys og co. á leiðinni heim. Fór svo heim til mö og pa og hreinlega DÓ uppí rúmi. Svaf ekkert eðlilega vel og vaknaði spræk morguninn eftir og hitti hana Sollu mína í Sporthúsinu og við tókum fáránlega góða æfingu, og rakst á fullt af góðu fólki þar. Vá hvað ég sakna Sporthússins, er viss um að það er besta líkamsræktarstöð í heiminum!! Elska að vera þarna, staðinn og fólkið og allt! Fór svo og kíkti aðeins á Hafrúnu í gærkvöldi. Áður en ég fór þá tilkynnti Óskar Dagur mér að "Hafrún er orðin ógeðslega fræg í sjónvarpinu" hehe algjört krútt.
Jæja fór svo aftur í ræktina í morgun, hitti enn fleira fólk og fór svo í hádegismat með Tinnu minni. Matur hjá Huldu sys í kvöld, skírn á morgun, mögulega stelpuhittingur, fleiri matarboð og fleiri æfingar á dagskránni! Reyndar eitt sem er geðveikt fúlt. Ég er búin að hlakka þvílíkt til að koma heim og borða íslenskt nammi, var búin að plana að borða nammi í allar máltíðir þegar ég væri hérna, en síðan ég kom hefur mig bara ekki langað í nammi!! :-( Sveinn Ingi gaf mér páskaegg við lendingu og það hefur ekki einu sinni hvarflað að mér að opna það!! Og það er sko eitthvað alveg nýtt fyrir mér! Jæja, nammilöngunin kemur vonandi fljótlega aftur, ætla allavega að taka birgðir með mér út..! :-þ
Læt þetta duga í bili, ah já símanúmerið mitt er: 8241697 ef einhver vill ná á mig á meðan ég er á skerinu. Later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli