Hlauptu hlunkur

miðvikudagur, apríl 13, 2011

vika í heimför :-D

á þessum tíma eftir akkúrat viku verð ég stödd á Íslandi, ég hreinlega skil ekki hvað tíminn líður hratt..! o_O


Annars er búið að vera viðbjóðslega gott veður hérna 25 stiga hiti og sól! Reyndar búið að vera kalt í gær og í dag, en dagarnir þar á undan voru bara rugl. Hugo spilaði fyrsta aðalliðsleikinn á laugardag og stóð sig nokkuð vel skilst mér (skil ekki stöðuna hans alveg nóg vel til að gera mér grein fyrir hvort hann spili vel eða illa!), fyrir utan að þegar hann var búinn að vera inná í ca. 3 mínútur þá fékk hann skurð á hausinn! En það var bara troðið vaselíni í gatið, settur á hann "hjálmur" (rugby höfuðfat) og hann hélt áfram. Næsti leikur á laugardag og mér skilst að hann sé kominn inní liðið til að vera :o) En þegar ég var að horfa á leikinn, ég sver það var nánast óbærilegur hiti! En samt svo fáránlega næs! Á mánudag fór ég með einn kúnnann minn niður við ánna, með TRX græjuna mína, festi hana uppí tré (græjuna sko, ekki kúnnann), og lét hana æfa þar (á árbakkanum, ekki uppí trénu). Ekki leiðinlegt að æfa á bökkum Thames árinnar.

En Henley er algjört æði á sumrin, og talandi um enn meira æði þá er ein heimsókn plönuð til mín! Þórunn sys ætlar að koma með Sindra og Óskar Dag í ágúst :-D Valið stóð á milli mín eða sumarbúða og að sjálfsögðu varð þroskaða frænkan fyrir valinu! (hefur sennilega ekkert með landfræðilegar ástæður að gera..! ;-þ) Hlakka ekkert smá mikið til, þeir eru á snilldar aldri, 11 og 13 ára (samt eru þeir bara nýfæddir! Magnaður andskoti..!) þannig að við getum farið vatnsrennibrautagarð, tívolí og alls kyns gaman :-D

Það er svo sem ekki mikið að frétta, er búið að vera brjálað að gera hjá mér þessa vikuna, eigandi fitness experts fór í frí og ég er búin að vera að þjálfa kúnnana hans auk þess sem ég er búin að vera að fá nýja kúnna í LA fitness, þannig að ég er að detta í sömu rútínu og heima, 12-13 tíma vinnudagar, nema að hérna þarf ég ekki að vakna jafn snemma! Er með einn kúnna kl.6 á morgnana og hún kemur einu sinni til tvisvar í viku þannig að ég er nánast alltaf að ná 7-9 tíma svefni á nóttu, en heima var ég yfirleitt ekki að ná meira en 5-6 tímum. Reyndar gerði ég mér lífið svolítið erfitt fyrir sjálf, var alltaf að taka of mikið að mér í staðinn fyrir að einbeita mér að færri hlutum og gera þá betur, þá var ég alltaf út og suður að vasast í hinu og þessu og alltaf dauðþreytt. Þannig að það er enginn smá munur að einbeita mér bara að þjálfuninni og áhuginn er orðinn miklu meiri og lífsgæðin hafa aukist til muna! En svo lengi lærir sem lifir, einhvern veginn virðist maður þurfa að gera mistökin sjálfur til að læra af þeim, ekki nóg að lesa bara um það í einhverjum bókum..! hehe en allavega bottom line-ið er að ég er að elska að fá nægan svefn! Finnst ég ekki vera að eldast aaaaaaalveg jafn hratt og ég var!! :-þ


Annars hef ég verið að spá, ég frétti að bloggið mitt hefði eitt sinn verið frekar fyndið, en svo hafi ég eignast kærasta og ég hafi hætt að vera fyndin! Svo ákvað þessi blogglesandi að adda mér á facebook en ég íhugaði að hafna því á þeim forsendum að ég væri ekki nógu fyndin fyrir hann!! En eftir að ég ákvað að hætta að vera geðveikt móðguð út í hann þá fór ég að hugsa hvort ég sé hætt að vera fyndin, en þegar ég var að byrja að blogga þá átti ég eineygðan gullfisk, sem ég kallaði PopEye, eða Poppa í daglegu. Ég bloggaði iðulega um að ég væri með hann í megrun, eða að hann hefði verið að slá persónulegt met í bekkpressu. Ég þarf væntanlega ekki að taka það fram að mér fannst ég mjööööög fyndin á þessum tíma, en mér finnst ég samt ennþá geðveikt fyndin! Vandamálið er bara að engum öðrum finnst ég fyndin! Hugo finnst ég bara stórskrýtin (enda er hann upprennandi endurskoðandi og hefur þar af leiðandi ekki húmor!) En já, hef ekki hugmynd um af hverju ég ákvað að blogga um þetta, en ég verð að viðurkenna að sjálfstraust mitt hefur beðið hnekki, get þó huggað mig við það að ég hlæ oft og mörgum sinnum upphátt að sjálfri mér...

Hey og já, ætla að blogga um Icesave! Af því að ég er íslendingur (döh) og bý í Bretlandi þá hef ég ansi skemmtilega sýn á þetta allt saman. Ég ákvað að kjósa ekki þar sem ég ákvað bara að leyfa fólkinu sem actually býr á Íslandi, og þarf þá að taka þetta á sig, að ákveða, auk þess sem ég hafði ekki hugmynd um hvað ætti að kjósa! Var fyrst staðföst á nei-inu, en var svo eiginlega komin á já-ið (sérstaklega eftir að sérstakur ráðgjafi minn í pólitík ráðlagði mér já, og ég hef aldrei ekki haft sömu skoðun og hann! Já þú veist hver þú ert, vona að þú sért farinn að mæta aftur í gymið, pásan er búin!! Annars er ég að koma heim eftir viku þannig að ég get gefið þér duglegt spark í afturendann ;o)) en satt að segja hef ég ekki hugmynd um hvort var réttara! Þetta var mest lesna fréttin á BBC og við komum ekkert alltof vel út úr kvöldfréttatímanum daginn eftir. Ég var eiginlega búin að ákveða að byrja að ljúga til um þjóðerni og byrja að segja fólki að ég væri frá Svíþjóð, ég meina það er engum illa við Svía!! (fyrir utan handboltalandsliðið þeirra, en okkur þykir samt pínu vænt um þá vil ég meina :o)) EN það hefur ekki ein manneskja minnst á Icesave við mig, þeir fjármálaspekúlantar sem ég er að þjálfa eða hef spjallað við vita um hvað málið snýst en hafa enga sérstaka skoðun á því. Þannig að já, þetta er ekki svona stórmál hérna eins og fjölmiðlar heima vilja halda fram, eftir að ég flutti út þá hef ég komist að því að við erum ekki nafli alheimsins..! (WTF!:-O)

Vó langt blogg! Later...

1 Comments:

  • Hei mér finnst þú ógó fyndin og skemmtilegur bloggari.

    Bloggið um Poppa var alltaf fyndið en þú ert bara öðruvísi fyndin í dag :) Það er amk alveg bannað að hætta að blogga! :)

    By Blogger Inga Lilý, at 14/4/11 01:09  

Sendu inn athugasemd

<< Home