meira af klakanum
Vá ég gleymdi að segja frá því í síðasta bloggi af fyrstu ökuferðinni minni hérna á skerinu! Ég s.s fékk lánaðan bílinn hjá mömmu og pabba og skellti mér á æfingu í Sporthúsinu. Að lokinni æfingu er ég að keyra í burtu af bílastæðinu, smá gata upp og er að bíða eftir að geta beygt. Kemur svo bíll að sem er að fara að beygja niður en stoppar og hleypir mér fyrst út, ég þakka fyrir mig og hugsa með mér hversu almennilegur hann hafi verið. Keyri svo aðeins áfram og átta mig á því að greyið maður átti engra kosta völ þar sem ég var á vinstri akreininni og hann gat því ekkert beygt niður götuna!! Svo var ég alveg ringluð á leiðinni heim með þetta hægri/vinstri dæmi..! o_O
Magnað hvernig heilinn í manni virkar, ég hugsa sennilega meira á ensku en íslensku þegar ég er úti en af og til læðast íslensk orð inní setningar hjá mér, og það sama er að gerast hérna, ensk orð læðast inn algjörlega að óvörum! Svo um daginn þá kommentaði ég hjá einni íslenskri facebook vinkonu minni, stuttu síðar er ég eitthvað að bralla og fer allt í einu að hugsa af hverju í ósköpunum ég hefði kommentað á ensku! Þannig að ég dreif mig í tölvuna til að laga þetta en sá þá að ég hefði kommentað á íslensku! Ok vá þetta var geðveikt léleg saga en bara svona smá dæmi um hvað það er ringlandi að vera orðinn nánast alveg tvítyngdur. Mér fannst reyndar fáránlegt að heyra sjálfa mig tala íslensku til að byrja með, ég blogga og "tala" mikið við fólk á facebook og msn, en er ekki mjög dugleg á skype þannig að ég tala ekki mikið íslensku svona upphátt, þannig að mér fannst ég alveg asnaleg þegar ég var að tala íslensku í flugvélinni á leiðinni heim! o_O Eeeeeen það rjátlaðist nú fljótt af mér og ég er búin að vera með munnræpu síðan, bara svona eins og venjulega..! ;-þ
Vá fór í Nammiland áðan, var búin að lofa Hugo að kaupa hans uppáhalds og svo var ég búin að ákveða að fara með birgðir út! Konan á afgreiðslukassanum hefur ábyggilega haldið að ég hafi aldrei séð nammi áður og ákveðið að prófa allar tegundirnar sem eru í boði!! Gerði það nú reyndar ekki, keypti bara soldið mikið af því sem mér finnst gott og fæst ekki úti :-þ Nammilöngunin er samt ekki ennþá komin, bíð spennt!!

(takið eftir Sveini Inga, bróður mínum fyrir utan gluggann á bílnum, geðveikt krípí!)
En vá, við vorum í skírnararveislu áðan og Óskar Dagur, 11 ára, byrjar að tala um hvað það yrði mikið vesen ef ég og Hugo ættum börn og myndum svo hætta saman, þá þyrfti að senda þau á milli í flugvél. Og ég sagði á móti bara í gríninu, já þá þurfum við annaðhvort að hætta saman áður en við eignum börn eða bara sleppa því að hætta saman. Þá sagði hann, mjög alvörugefinn (að vanda): "já en Bjarney, mér finnst geðveikt leiðinlegt að þú ert alltaf að hætta með svo mörgum sem mér finnst skemmtilegir!" Ok ég dó næstum því úr hlátri en bað hann svo um að útskýra nánar og nefna dæmi! Hann fann 4 kærasta sem ég hef átt í gegnum tíðina, en það væru ábyggilega fleiri sem hann mundi ekki í augnablikinu og nefndi til samanburðar að mamma hans hefði bara átt 2 kærasta á ævinni og hún væri sko eldri en ég!! Á þessum tímapunkti varð ég að bíta í tunguna á mér og gera engar uppljóstranir um mömmuna en taka hins vegar á mig að vera sú synduga í þessu samhengi (ekki það að mamma hans hafi verið eitthvað slæm en ég veit fyrir víst að hún hefur átt meira en 2 kærasta! haha)!! En shit hvað þetta var fyndið, honum var svooooo alvara, fannst sko engan veginn nógu mikið tillit tekið til sín þegar ég hef tekið ákvarðanir um að slútta samböndum í gegnum tíðina..!
Ætla að láta þetta duga í bili,
kv. Sauruga frænkan..!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home