
Af hverju eru sumir listamenn á LAUNUM FRÁ RÍKINU??? Og fyrst að málum er þannig háttað, af hverju eru þá ekki alveg eins t.d einhverjir íþróttamenn á launum frá ríkinu? Ef rökin eru þau að listamennirnir eigi að fá tíma til að skapa list sína (burtséð frá því að það sem er list í augum sumra er síðra en teikningar lítilla barna í augum annarra, barnateikningarnar hafa allavegna tilfinningalegt gildi fyrir aðstandendur barnanna) þá er alveg hægt að nota sömu rök fyrir íþróttafólk, að það þurfi ekki að mæta á æfingar eftir langan vinnudag, heldur þurfi ekki að vinna og geta bara einbeitt sér að íþróttinni sinni til að geta skemmt landanum í Helgarsportinu!!
ÍSÍ er reyndar með einhverja afreksmannastyrki (fyrir örfáa) en ríkið borgar listamönnum, ergó=skattborgarar eru að borga listamönnum fyrir að hanga heima að mála eða skrifa sögur!! Og hver ákveður hver fær borgað? Af hverju á ég að borga einhverri kellingu fyrir að skrifa bækur sem ég hef engan áhuga á að lesa, eða einhverjum kalli fyrir að mála myndir sem ég myndi ekki einu sinna hengja upp inná klósti??
Vil taka fram að mér finnst að hvorki íþróttamenn né listamenn eigi að fá greitt frá ríkinu, finnst ekki sanngjarnt að einhver sem hafi ENGAN áhuga á íþróttum borgi laun íþróttafólks, alveg eins og ég er ekki tilbúin að borga laun listamanna sem ég hef ekki smekk fyrir. Persónulega finnst mér að ríkið eigi að lækka skattana (það er sannað að þó skattar yrðu lækkaðir niðrí 20% þá kæmi samt jafn mikið í kassann hjá ríkinu, gerðist allavegna þegar skattar voru lækkaðir hjá fyrirtækjum) og leyfa fólki að ráða sjálft í hvað peningarnir fara, ég fæ þá að stjórna því ef ég vil kaupa málverk og styrkja þannig listamanninn, eða borga mig inná íþróttaviðburði og styrkja þannig íþróttafélögin sem þannig geta borgað íþróttamönnunum laun:o) svona myndi ég allavegna hafa þetta í mínum heimi...
jæja farin aftur að læra, varð bara að koma þessu frá mér:o) Ef einhver vill svara "af hverju" spurningunni þá er orðið laust í kommentakerfinu;o)
4 ummæli:
Aðþvíbara!
Ég er farinn að príla! kem kl 19:15 aftur. Ok?
AÐÞVÍBARA ER EKKI SVAR!!
Ok sjáumst kl.19:15
HEYR HEYR! Gæti ekki verið meira sammála
"Aþvíbara" er víst svar! Það er bara mjög lélegt svar. Eiginlega alveg ömurlegt svar! Ég held að þetta sé bara lélegasta svar í heimi! Og þetta er alveg tilgangslaus umræða! ...ég er farinn að læra.
Skrifa ummæli