Ég var soldið hissa á að enginn kommentaði á að ég keyrði á hund!Mér finnst það rosa merkilegt!! Eva (Halldórs) keyrði einu sinni á fugl og drap hann og fannst ekkert merkilegra að ég hafi keyrt á hund! Hún vildi meina að fuglamamman yrði jafn sár og hundaeigandinn ef hann hefði dáið (nota to self: aldrei rökræða við lögfræðinga!) en hún er nottla ólétt kellan þannig að ég vil meina að hormónin sér eitthvað hlaupa með hana í gönur, hún vildi einmitt fá inn í færsluna:”Eva í gönunum” don´t ask me why! Hefur sennilega eitthvað með hormónin og gönurnar að gera!! ;oþ
Annars er ég voða kát núna, öll prófin búin, og ef allt gengur að óskum þá er ég búin með 1/6 af leið minni að því að verða íþróttafræðingur:o) Gekk nokkuð vel í prófunum held ég allavegna, var í líffærafræðinni í gær og ég vissi ekki að ég vissi svona mikið!! Hehe, en svo eiga einkunnirnar nottla eftir að koma, vona að ég verði jafm ánægð með mig þá!!
Það var svo próflokadjamm hjá bekknum mínum á Vegamótum í gær, var matur kl.18 en ég var með handboltaæfingu, og tók líka að mér æfingu hjá 5.fl karla, fannst mjög erfitt að segja nei útaf einhverju djammi:-/ Æ líka ágætt að koma bara þegar allir eru orðnir fullir, alltaf mesta pressan á að maður fái sér í glas þegar fólk er að byrja að drekka. Ég kom ekki fyrr en um kl.21 og þá voru margir orðnir veeeeel hressir! Hehe fórum svo yfir á Hverfis þar sem viðskiptafræðinemarnir voru líka að fagna próflokum, en ég fór heim um hálf 12, stoppaði í 10/11 til að kaupa nammi þar sem ég átti ansi margar hitaeiningar inni fyrst ég var ekki að drekka;oþ en vá hvað ég var búin að gleyma hvað ég HATA djammstybbinu sem kemur af manni! Oj kápan mín hefði getað staðið sjálf af reykingafýlu:-/ Öll fötin í þvott og sturta óhjákvæmileg, nú man ég af hverju ég geri ekki mikið af þessu..! En dísús, svo svaf ég frá kl.1 ca.-kl.13! Hef greinilega verið orðin alveg dead! Það er ekki oft sem ég næ svefni mikið lengur en til 9-10! Hékk svo uppí rúmi (og dottaði inná milli!) til kl.16:20, þá ÞURFTI ég að fara á fætur til að fara að þjálfa, þjálfaði frá 5-7, fór þá sjálf í ræktina og er komin aftur heim og upp í rúm! að Hehe eiga jólafrí ekki að vera svona?? ;o)
Jæja nenniggi meir, best að fara að lúlla ;oþ
5 ummæli:
vááá, ég hafði svo margar athugasemdir við þessa færslu og var búin að setja upp rosalegt komment í huganum ... en svo snarstansaði ég þegar ég las þessa setningu: "Oj kápan mín hefði getað staðið sjálf af reykingafýlu:-/".
Bjarney, átt þú kápu?
Eva fuglabani
jamm ég á kápu:o) kellan getur verið dönnuð stundum;oþ þegar ég er ekki í því að keyra á dýr eða rökræða við lögfræðinga (eða rökfræðinga eins og við vorum búnar að finna út að væri réttara starfsheiti:o))
Hahahaha, byrja snuðra og tuðra að rökræða... miss that;)
Já, en ég heimta sönnun - vil fá mynd af þessari svokölluðu kápu. Og þú verður að vera í henni. Og halda á dagblaði dagsettu í dag til að sanna (gætir aaaldrei photoshoppað það).
Eva
hey bjóddu mér í mat og ég skal MÆTA í kápunni í eigin persónu!! (langar í svona tortillas, takk:o))
láttu mig vita dagsetninguna og ég mæti:o)
Skrifa ummæli