miðvikudagur, desember 27, 2006

smá öppdeit...


Ætla að reyna að blogga, sjá hvort tölvudruslan hleypi þessu í gegn!

Jólin hafa verið rosa góð, Fékk margar góðar gjafir, t.d úr, æfingabuxur o.fl, en besta gjöfin, að öðrum ólöstuðum, er tvímælalaust sú að Hulda systir mín er ólétt!! Ég er ekkert smá hamingjusöm með þetta:oD

Annars lýsir þessi kanína ástandi mínu vel þessa dagana, hvít, með kanínutennur og sígeispandi! Er reyndar ekki jafn loðin þar sem ég fór í vax fyrir jólin, en að öðru leyti erum við nánast identical twins!! Ég er búin að vera alveg eins og sprungin blaðra eftir prófin, hef ekki haft nennu eða orku í neitt:-/ Eeeeeen ég er byrjuð að dæla í mig vítamínum og vona að ég fari að ná tökum á mér aftur soon..!

Fór á Bubba tónleika með í gær. Það var ágætt þó að ég sé enginn brjálaður Bubba fan, ég er þó farin að fara mjöööög sjaldan út því ég er bara ekki að meika reykingarnar inná þessum stöðum. Er illt í lungunum í 2 daga á eftir:o( Vá hvað ég hlakka til þegar reykingabannið tekur gildi! Svo er annað, fyrir utan líkamlega vanlíðan, maður fer í sturtu og gerir sig fínan, fer svo á djammið, kemur heim, neyðist til að fara aftur í sturtu, lætur fötin standa sjálf á meðan maður er í sturtu, og setur fötin svo beint inní þvottavél og lokar svo lyktin smitist ekki. Og neyðist til að þvo allt sem maður fór í hreint fyrir 4-5 klukkustundum síðan. Ég er kannski að tala fyrir sjálfa mig, en mér finnst þetta fullmikið process fyrir eitt kvöld á djamminu, og þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég fer jafn sjaldan og ég geri...

Að lokum ætla ég að láta fljóta með eitt “deja vu” blogg, mér finnst gegt fyndið þegar fólk er ótrúlega opinskátt á blogginu sínu, stundum finnst mér óþægilegt að lesa það, fæ kjánahrollinn fræga, en samt einhvern veginn eru þetta bloggsíðurnar sem ég kíki á reglulega, þarna er allt djúsí stöffið;oþ en já, ég hef aldrei farið útí mikla detaila á blogginu mínu þó að ég fari oft hamförum;oþ en ég var að lesa gamlar færslur og þar var ein sem kom mér á óvart þar sem ég var að lýsa því þegar ég hitti gaur sem ég var eitt sinn að deita, verð eiginlega að setja þetta hérna inn, vona þó að ykkur finnist þetta meira fyndið heldur en að þetta framkalli kjánahroll!! Here goes:

“07.11.2004 Ég var að lesa Lifandi vísindi og þar er grein um að þegar fólk er ástfangið þá dregur úr virkni í heilasvæðinu sem sér um gagnrýna hugsun og hæfni til að leggja mat á persónuleika fólks. Þetta útskýrir ýmislegt! Ég var nebbla að hugsa um daginn, þá rakst ég á gaur sem ég var einu sinni að deita. Og það eina sem ég hugsaði var bara OH MY GOD! Hvað var ég að hugsa?! (gott að fá það staðfest að ég var greinilega ekki mikið að hugsa!) Ég sver það, ég held hann jaðri við að vera þroskaheftur! Og ég þarf ekki einu sinni að hafa áhyggjur af að hann lesi bloggið mitt og verði gegt sár vegna þess að ég efast um að hann kunni á tölvu. Ekki það að ég hafi verið e-ð geðveikislega ástfangin af honum en þessar heilastöðvar mínar hafa greinilega verið í dvala því ég gaf honum óþarflega langan séns! Hann má samt eiga það að hann er voða góð manneskja, bara soldið (mikið) vitlaus...”

Hahahah og gaman að segja frá því að ég deitaði nánast ekki í ca.2 ár eftir þetta! Vá hvað ég hef greinilega fengið mikið sjokk yfir að deita hálf-þroskaheftan gaur!!

Nóg í bili, later folks…

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skellum okkur á djammið 1.júní!
Ég held að það sé heilmikið til í þessu með "on" og "off" takkan í heilanum á okkur... allavega finnst mér það eiga við mig en ég er samt ekki sáttur við að þetta hafi átt við stelpurnar sem ég hef verið með því það hljómar ekkert mjög uppörvandi að maður hafi náð í stelpur vegna þess að þær voru með óstarfhæfa heila! :0/

bjarneybje sagði...

Hahahaha nei það er slæmi parturinn af þessu:-/ En ég er reyndar svo mikill tuðari að það er ágætt að jp geti sett mig á mute þegar ég er í ham!!! hehe
Held reyndar að hann geri það óspart, en það er skárra en að innbyrða allt þetta magn af nöldri!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Ertu að reyna að segja okkur eitthvað um JP eða...? :)

Nafnlaus sagði...

öh bara það að hann sé ekki með gagnrýnisstöðvarnar virkar og þess vegna er ég bærileg:o) Hann er kannski ekkert sérstaklega gáfaður en hann er langt frá því að vera þroskaheftur ef þú ert að ýja að því!! hehe;oþ

Nafnlaus sagði...

hahahahahahahahahaahahhaa

Nafnlaus sagði...

alltaf skemmtileg að segja að kærastinn sé ekkert sérstaklega gáfaður, held að það boosti sjálfstraustið alveg upp í hæstu hæðir :)

Nafnlaus sagði...

Já ég veit, þetta er liður í markvissri bælingu sem miðar að því að hann lúti mínum vilja í einu og öllu!!! mwuahahahaha
Heheh nei djók, hann veit alveg að ég er að grínast, ég væri ekki með honum ef hann væri heimskur! Hann er nebbla ekki alveg nógu sætur til að maður geti litið framhjá því;oþ djóóóóóóók!! hehe enn einn liður í bælingunni, að telja honum trú um að hann sé feitur og ljótur og engin önnur kona vilji hann!! Eða reyndar efast ég um að önnur kona muni reyna við hann, þá kem ég nebbla til með að lemja hana! hahahah ok ég er að missa mig í ruglinu, ætla að hætta núna!! bæbbli...

Nafnlaus sagði...

Þú ert alveg búin að mála þig út í horn þarna :)