miðvikudagur, desember 06, 2006


Þó að færslan hér á undan hafi gefið í skyn að þetta háskólanám sem ég er í sé algjört djók þá er það nú ekki þannig, í prófinu var spurt um hinar ýmsu leikaðferðir, farið útí dómarareglur, lýsa innanfótar- og ristarspyrnum og fleira. Þannig að kellan er að landa einu stykki háskólaprófi í knattspyrnu:oD Og reyndar handbolta líka, en það er sjálfsagðara að ég klári það! Reyndar eitt sem ég klikkaði á í fótboltanum, það var spurt um upphaf íslenskrar knattspyrnu og ég verð að játa að það er hlutinn af námsefninu sem ég nennti ekki að lesa! Það var sem sagt skoskur prentari að nafni Ferguson sem kom með hana hingað til lands og startaði liði í vesturbænum í kringum 1890. Ég veit ekki hversu mörg stig ég fæ fyrir söguna um enska bakarann Helmut sem hætti í fótbolta því liðið hans tapaði alltaf fyrir Val:-/ (sko eftir að það var stofnað, honum fannst rosa gaman í fótbolta fram að því!)
Hey, ég gúgglaði "Helmut" og fékk þessa mynd, er hægt að vera meira Helmut-legur???

Jæja ætla að halda áfram að læra, búin að vera gegt dugleg, ekkert verið að hangsa á msn-inu, sennilega vegna þess að tölvan mín nær ekki nettengingu (er í bókasafnstölvu núna) þannig að ég er búin að læra non-stop síðan ég kom:o) Ætla að vera eitthvað frameftir, er alveg búin að sjá það að ég læri langbest á kvöldin og nóttunni, er alveg sama hvað rannsóknir sýna, þetta er minn læritími:o) Þannig að ég ætla að halda áfram að læra, later peepz...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey studybuddy! Ég er mættur á bókasafnið og bíð bara eftir að einhver komi og banni mér að slugsa! Ég veit að þú kíkir á bloggið þitt á 5mín. fresti, þannig að þú færð þessi skilaboð fljótlega. Þetta er eiginlega öruggari leið til að ná í þig heldur en að hringja í þig!

bjarneybje sagði...

hehe verð mætt kl.15, og verð til kl.24, með einni matarpásu um kvöldmatarleytið, sjáumst á eftir:o)

Nafnlaus sagði...

Akkúrat... ekki séns að koma lærdómnum inn í hausinn á sér fyrir kl. 9 á kvöldin, kemst í gírinn svona um 11 og svo komið gott skrið um 12 svo fer það eftir því hve mikið er að læra hvort maður hættir um 2-3 eða 3-4 leytið :P :D

Nafnlaus sagði...

mér finnst breskur bakari að nafni Helmut ógó fyndið hehe þú ert snillingur hehe:)