Hey fór í jóga í gær með FH-liðinu, algjör snilld! Fórum hjá Ingibjörgu Stefáns og þetta tekur þvílíkt á! Hún reyndar hitaði herbergið líka vel, en mar svitnaði vel og þetta er drulluerfitt! Fór svo og lyfti brjóst, ég tók 70 armbeygjur í einni lotu, nýtt met, hef nebbla alltaf verið gegt léleg í armbeygjum:-/ en ég var reyndar með e-ð stykki til að koma við með enninu, hef sennilega verið að fara aðeins grynnra en venjulega, ætla að prófa aftur venjulega bráðum og sjá hvað ég get, stefni á allavegna 50 stk:o)
Jæja verð að koma mér að verki, hversu margir ætli sitji sveittir núna yfir námsbókunum og
hugsa með sér að á næstu önn verði sko tekið öðruvísi á málunum! Lesi kennslubækurnar jafnt og þétt yfir önnina, verðir duglegri að glósa í tímum o.s.frv, en svo verða sennilega 90% af þeim sem lofa betrumbótum í nákvæmlega sömu aðstæðum fyrir vorprófin!! Hehe En það er reyndar eitt sem ég hef komist að á mínu fyrsta ári í háskóla og það er að kennarar eru útsmognir andskotar! Þeir tala og tala og eru með einhverjar glærur en við þurfum að sjá um að glósa aðalatriðin, fáum þetta ekki matreitt oní okkur eins og var í framhaldsskóla (sem var aaaaafar hentugt!) Soldið fyndið að þau er stöðugt að tala um að við berum ábyrgð á eigin námi og þurfum að vera sjálfstæð í vinnubrögðum og eitthvað, en svo er mætingaskylda! Skil það með verklegu tímana, en þau eru greinilega ekki aaaaaaaaalveg að treysta okkur fyrir eigin námi varðandi bóklegu tímana, betra að hafa varann á og hafa 80% mætingaskyldu! Enn já, svo er meirsegja týpískt fyrir nokkur af þessum útsmognu kvikindum að koma með spurningar beint úr bókinni til að athuga hvort við höfum actually lesið bókina eða bara stuðst við glósurnar frá þeim. Í bóklestrarhlutanum er ég fucked!! Eeeeen hlutirnir hafa tilhneigingu til að reddast;oþ verð ofurdugleg fram að prófunum, og bæti mig eftir áramót, verð vonandi innan um þessi 10% sem standa við það! En ég er að skoða það hvort það sé option fyrir mig að hætta í sporthúsinu um áramótin, það væri æði, gæti þá sinnt náminu jafn vel og mig langar:o) En tíminn leiðir þetta allt í ljós, þarf að byrja á því að massa þessi próf..! ;o)Farin að læra, later peepz...
4 ummæli:
Já! Vertu ekki að þessu blaðri! Opna bókina og byrja að læra!!...Ég er löngu mættur, þú hefðir tekið eftir því ef þú hefðir ekki verið svona niðursokkin í að lesa um kókoshnetur!!
yes sir mister coconut!! byrjum að lesa reglugerð um línur knattspyrnuvalla!! Vúhú interesting.... NOT (segist með Borat hreim;oþ)
Við gætum líka bara talað saman fyrst við sitjum hlið við hlið, í stað þess að tjá okkur í gegn um bloggið þitt!
hahahha já það er pæling;oþ hey en núna ertu uppá skrifstofu þannig að ég get ekki talað við þig! En ég hef hvort sem er ekkert að segja þannig að það er bara ágætt að þú sért uppá skrifstofu:o) tölum saman þegar þú kemur aftur, ok bæ...
Skrifa ummæli