fimmtudagur, janúar 04, 2007

Bregðikettlingur..


(Þessi færsla var skrifuð í gær þann 03.01:o))


Vá hvað ég er búin að vera dugleg í dag! Loksins er orkan mín að koma aftur eftir slappleika leti jól. Fyrir utan æfinguna sem ég tók í morgun þá þjálfaði ég smá, fór svo í Maður lifandi og keypti haframjöl, hörfræolíu og fleira, (m.a PGX trefjar með Mulberry sem ég mæli með fyrir nammigrísi! Sykurlöngun minnkar þvílíkt og matarlystin reyndar líka, og kemur meltingunni vel í gang:o)) fór svo í Europris og keypti hluti sem mig hafði vantað í búið, hef aldrei farið inní Europris áður en ég mæli alveg með því, sko ég keypti þvottabala, moppustöng og moppu með, 4 perur, batterípakka og 2 nestisbox á 2500 kall, næstum því gefins! Fór svo í Nettó og verslaði í matinn, plús eina glæra krukku undir bláu seríurnar mínar sem ég ætla ekki að taka niður fyrr en fer að vora:o) Eins og þetta hafi ekki verið nóg þá fór ég heim og ákvað að setja saman kommóðu sem ég keypti í IKEA um daginn, vantaði orðið skúffur undir aðkomusokka o.fl;oþ En já, ég á ekki svona verkfærasett en það þurfti að nota hamar, skrúfjárn og stjörnuskrúfjárn, kellan reddað sér með borðhníf (=skrúfjárn), kertastjaka (=hamar) blessuð sé minning hans, og skærum (=stjörnuskrúfjárn), til að gera langa sögu enn lengri þá er núna risin upp myndarleg kommóða, og til að toppa dugnaðinn þá tók ég af þvottagrindinni og gekk frá fötunum, færði föt úr gömlu kommóðunni yfir í nýju, svo tók ég útúr þvottavélinni og hengdi upp, úff ég verð eiginlega bara þreytt við að skrifa hvað ég gerði mikið!! En núna er ég officially hætt að kaupa dót inní íbúðina mína, það kemst einfaldlega ekki meira fyrir!!

Hey Dagur B. Eggertsson á að kenna mér eitt fag, hann er fiiiiiine! Klárt mál að ég verð með 100% mætingu í því fagi;oþ

Svo á annar dagur afmæli í dag, en það er snillingurinn Óskar Dagur, sem er orðinn 7 ára, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða! Gaman að segja frá því að heilaþvottur minn frá fæðingu hans hefur borið tilætlaðan árangur, en hann er nú gallharður stuðningsmaður Manchester United, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá hann til að halda með Liverpool, t.d með því að troða honum í Lifrarpollar búning og annars konar óbjóð! Þetta var þó tvísýn barátta, hann virtist vera hálf ringlaður á tímabili þegar hann sagðist halda með Liverpool United! En hann ákvað að fylgja uppáhalds frænku sinni og halda með Man U:o) Mig grunar reyndar að það sé af því að ég fer soldið oft með hann á skauta og þannig, en ef maður er uppáhalds þá er mér nokk sama um ástæðuna;oþ

Ætla að reyna að fara að lúlla, ekki frá því að ég sé orðin pínu þreytt, hey já ég setti líka saman stóran lampa sem ég keypti :o) Ok nú er ég hætt að monta mig! ;oþ Later...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað ætlar Dagur B. að kenna okkur?
Hann mun örugglega bara kenna mér um allt! :o(

Nafnlaus sagði...

Heheh held hann verði hreyfingafræðina. Held hann muni ekki kenna þér um allt, verður sennilega bara hræddur við þig eins og flestir samnemendur þínir! Passað bara að sýna enga tilburði eins og þú ætlir að tækla hann eða finta, þá ætti þetta að vera allt í lagi;oþ