miðvikudagur, janúar 03, 2007

Ghetto gospel


Dísús kræst, ég hef áður nefnt ribbaldana sem búa fyrir ofan mömmu og pabba, það var enn eitt lögregluútkallið á skítapésana í gærkvöldi (við kölluðum sko á lögguna) þau höfðu brotið ljós í ganginum, svo fór pabbi upp að spyrja hvað hefði gerst og þá byrjuðu þau með geðveikt attitude, einhver smápíka sem býr ekki einu sinni þarna að ibba sig og var að rífa kjaft við karl föður minn, þá sagði pabbi henni að þegja í smástund, þá byrjaði hún:”þú segir mér ekkert að þegja, það segir enginn mér að þegja” o.s.frv þá fauk í pabba og hann sagði henni að steinhalda kjafti, ég hef aldrei heyrt pabba segja neinum að halda kjafti! Hehe en þá sagði ég henni að slaka á, hvað hún héldi eiginlega að hún væri, þá byrjaði hún með sömu ræðuna á mig, það segði henni enginn að þegja, ég var fyrir neðan og labbaði upp eina tröppu í einu og talaði við hana í leiðinni hvað fengi hana til að halda að hún hefði rétt á að skemma eigur annara og rífa kjaft við fólkið í stigaganginum, og í hvert skipti sem ég tók eitt skref upp þá tók hún eitt skref afturábak, ég endaði á að hlæja að henni, að hún væri greinilega ekki þessi nagli sem hún spilaði sig. Hún fór inn og kom svo aftur: ”dísús, hvað ert þú 26 ára (ég var ekkert að leiðrétta hana með því að segja að ég væri að verða 28 ára eftir mánuð, 26 ára er fínn aldur;oþ) að segja 15 ára stelpu að þegja, áttu ekki að vita betur og vera þroskaðri” humm skyndilega orðin fórnarlamb, jájá rosa nagli. Sem betur fer var löggan komin en annar gaur, sem ég er viss um að hafi verið á einhverju, labbaði að pabba og byrjaði að hóta honum, var svona alveg oní honum, og svo sagðist hann ætla að kæra pabba. Ég sagði honum að löggan væri jú hérna, hvort hann vildi ekki leggja fram kæru,

hann:”jú ég kæri hann”

Ég:”já kærðu hann, löggan er hérna”

hann:”já ég ætla að kæra hann”

ég:”leggðu þá fram kæru, löggan er hérna og er að taka skýslu”

hann:”nei ég má ekkert kæra, ég er of ungur”

ég:”nei maður er aldrei of ungur til að kæra ef manni þykir maður vera beittur ofbeldi”

þá nennti hann ekki að tala meira við mig, og önnur löggan fór upp til þeirra og talaði við þá. Það er sko gaur sem býr þarna, eða mamma hans býr þarna, og hann má ekki einu sinni vera þarna nema að hann fer inn þegar hún er ekki heima og dregur þetta hyski með sér sem er stöðugt að skemma eitthvað (ég gruna þau t.d um að hafa brotist inní geymsluna og stolið öllum fermingarskartgripunum mínum), henda bjórflöskum af svölunum o.fl Vá hvað ég er komin með nóg af þessu pakki, og ef ég væri ekki með svona mikið jafnaðargeð þá hefði ég tekið litlu smápíkuna og danglað aðeins í hana! En útaf jafnaðargeðinu og gríðarlegum yfirburðum mínum í þroska þá gerði ég það ekki:o) Þvílíkt virðingarleysi hjá þessum krökkum, eru að rífa kjaft við fullorðið fólk í stigagangi sem þau búa ekki í! Ég var einhvers konar rebel þegar ég var unglingur, en ég var kórdrengur miðað við þetta pakk! Jæja skemmtileg saga, framhald af óeirðunum í gettóinum kemur pottþétt í framtíðinni! Hey já gaman að segja frá því að skipt var um læsingar í framhaldi af þessari uppákomu, eðlilegt að búa við þessar aðstæður! Enda er fólk farið að spá í að flytja út af þessu ástandi..!


Nóg af röfli í bili, í þessari færslu, fáið 2 færslur samtímis núna:o)

Engin ummæli: