miðvikudagur, janúar 10, 2007

Varðkettlingar...


Hey vó ég skil ekki hvernig ég gat gleymt að segja frá því að ég var að byrja aftur í nammiveðmáli og er ekki búin að borða nammi í 6 daga, sem bæri ekki í frásögur færandi nema að mig hefur ekki einu sinni langað í!! Er dugleg að taka vítamín og PGX trefjarnar, veit ekki hvort það sé að svínvirka svona en þetta er magnað, ég var nebbla farin að borða nammi á hverjum degi:-/ En ég var líka með geðveikan hausverk fyrst 3 dagana eftir að ég var sykurlaus, fáránlegt að fá fráhvörf frá sykrinum, úff bara eins og dópisti í afeitrun! hehe en ég er í nammibindindi til 10.feb, bara mánuður eftir:o)


Svo á ég líka varðkisu! Það er svartur unglingsköttur alltaf að tjilla fyrir utan hjá mér, kom meirsegja inn til mín um daginn, ég skildi hurðina eftir pínu opna, hún horfði ansi skringilega á mig þegar ég rak upp píkuskrækinn:-/ en varð samt ekkert hrædd, rölti bara út. Svo er gler í útihurðinni minni og ég sé hana rölta þar reglulega framhjá og svo er hún með bjöllu þannig að ég heyri alltaf í henni líka og veit að hún er soldið mikið fyrir utan. Hún var samt mest í sæt í morgun, ég kom út og þá var hún hálf snjóug, búin að vera að velta sér í snjónum, hún horfði á mig, rölti svo með mér og hoppaði upp á bílinn minn og eitthvað, eðlilegt að eiga kisuvinkonu, en það er gott að vita af varðkisunni fyrir utan á kvöldin og nóttunni, kemur í veg fyrir að óprúttnir einstaklingar brjótist inn til manns! Svo sá ég hana slást við aðra kisu áðan þannig að ég veit að hún er líka dugleg að æfa sig ef hún skyldi þurfa að ráðast á einhvern:o)


Vó ég er komin í helgarfrí!! Enginn skóli fyrr en á mánudag! Magnað:o) Ætlum reyndar að hittast í fyrramálið og gera tilraunaverkefni, og svo smá lærdómur sem ég ætla að kíkja yfir, og svo nottla vinna, en þetta er engu að síður sweeeeeeeeeeet:oD


Farin á æfingu, later...

Engin ummæli: