þriðjudagur, janúar 09, 2007

Dóna-api!


Jæja annar skóladagurinn byrjaður, ég sá fram á að ég get ekki hætt alveg með einkaþjálfunina, hef einfaldlega ekki tök á því, en ákvað að hætta alveg á morgnana, og vá hvað munar miklu! T.d í morgun þurfti ég ekki að vakna fyrr en kl.8 í staðinn fyrir 5:15 og það breytist einhvern veginn allt, finnst miklu skemmtilegra í skólanum, var nebbla alltaf þreytt á síðustu önn og leið illa við tilhugsunina um að hreyfa mig í skólanum:-/ þannig að þessi önn leggst mikið betur í mig:o)

Hey ég og ein bekkjarsystir mín erum að fara að æfa fimleika!! :o) Vá hvað ég hlakka mikið til!! Förum í Gerplu, æfum tvisvar sinnum í viku, ég er búin að vera heavy spennt! Langar að geta gert flikk og svona aftur, er viss um að þetta verður algjör snilld! Vona að hnéið þoli þetta en þetta er pottþétt skárra en handboltinn þar sem ég er í engu kontakti og veit alltaf hvað ég er að fara að gera, og ef mér er illt þá sleppi ég bara æfingu án þess að það hafi áhrif á framtíð mína í íþróttinni:o)

Vá hef annars voða lítið að segja, hef það bara ótrúlega gott í lífinu þessa dagana, er búin að vera ótrúlega dugleg síðustu vikuna (sem þó hefur verið ein lengsta vika ævinnar!) að ganga frá hlutum sem þarf að ganga frá, íbúðin komin í toppstand og ég er meisegja með allt klárt fyrir skattskýrsluna mína:o)

Úr skólanum er það að frétta að Gulla, fyrrverandi konan mín, dömpaði mér sem hópmeðlim í gær, en svo sá hún í dag hvað ég er off to a good start og sá í hendi sér möguleika á góðum einkunnum með því að vera með mér í liði þannig að hún er búin að vera í því að sleikja mig upp í dag, sagði t.d að ég væri með stóran rass og eitthvað, en ég get þó huggað mig við það að ég er ekki með næstum því jafn stóran rass og hún!! Ok ok ég er reyndar með töluvert stærri rass, en ég vil meina að minn sé all muscle annað en svampurinn á henni!! ;oþ

Jæja tíminn að fara að byrja, later....

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú ert með miiiiiiklu stærri rass en ég !!!!!!!!! En ert náttla með eðeins meiri kynþokka sem vegur rassa stærðina upp !

Nafnlaus sagði...

aðeins meiri kynþokka? AÐEINS? I´M OOOOOOOOOOOOOZING af kynþokka!! sérstaklega núna, í joggaranum og ógreidd og fín;oþ

Hey eigum við að skíra barnið okkar Björn í höfuðið á Inga Þór sundkennarar?? :o)

Nafnlaus sagði...

OOOOOOZING af kynþokka segirðu? How might that go :D

Nafnlaus sagði...

Ég styð fullkomlega þessa krúttlegu-dýra-mynda-stefnu þína, en ég verð að segja að mér finnst þessi apamynd ekki vera að gera sig... mér finnst hann ekki nógu krúttlegur, hann lýtur út eins og feiti ljóti kallinn í Borat...

Nafnlaus sagði...

Hef það eftir "norskum heimildum" að það sé ekki hægt að sigra þig í keppni um stórann rass!!!!
Kv Sverrir

Nafnlaus sagði...

Hahahah ok ég veit ekki alveg hvort ég eigi að taka því sem hrósi eða einfaldlega lemja þig, en mér finnst þetta allavegna soldið fyndið, þannig að við tippum á hrósið;oþ