miðvikudagur, janúar 03, 2007

kanína að fela sig...


Jahérna, það er bara byrjað að reka á bloggi eftir 2 daga pásu! En ástæðan fyrir því að ég er ekki að blogga mjög mikið er að ég get ekki bloggað heima:-/

Þessi áramót tók ég ákvörðun um að vera erlendis eða uppí sveit næstu áramót, Íslendingar eru geðveikir þegar kemur að flugeldum!! Ég upplifði þetta hins vegar bara sem reykjarmökk og hávaða, sem segir mér að ég sé orðin gömul kona!! Hehe enda ekki nema rúmur mánuður í 28 ára afmælið, dísús, og alltaf líður mér eins og 22 ára! Sjálfsblekking?? Ja maður spyr sig...


Mér fannst áramótaskaupið hins vegar nokkuð fyndið, lá ekkert í kasti yfir því en gat alveg brosað, eldra fólk e-ð pissed yfir því heyrist mér, en ég held það sé bara af því að þau föttuðu það ekki, vita t.d sennilega ekki hver Brynja Börk er, en mér fannst þetta góð tilbreyting frá endalausu gríni um stjórnmálamenn. Og fyrir utan það þá er gamalt fólk oft ótrúlegir nöldrarar, sbr. fréttina um eldra fólkið um að þau lokuðu sig inná klósti útaf hávaða, vá hvað hlýtur að hafa verið mikil gúrkutíð í fréttum! Ég var ekki að fíla lætin en einmitt að maður hefði hringt í neyðarlínuna til að spyrja hvenær þetta væri búið (þetta er neyðarlínan , ekki skyggnilýsing ehf., hvernig áttu þeir að vita hvenær þessu myndi ljúka??) og enn síður að maður færi að nöldra í fréttatímanum, skil í alvörunni ekki að gerð hafi verið frétt um þetta! Ég vona að ég verði ekki leiðinleg gömul kona, leiðinlegt gamalt fólk er nebbla ekkert smá leiðinlegt!

Annars var ég að fá sms frá einni sem stakk af til Kanaríeyja í eina viku yfir jólin. Ég hefði ekki hatað að vera í sól og 25 stiga hita núna! Þau eru að fara að spila golf, ég hefði getað verið mjööööög góður caddy:o) Að öðru leyti kem ég ekki nálægt þessu golfhelvíti, ég er líkleg til að sýna tilburði til líkamsárásar við að reyna að koma þessum fjandans bolta oní þessa viðbjóðslegu litlu holu!!! Hljóma ég bitur?? Heheh já ég hef sko ekki góða reynslu af golfi, var eitt sinn heppin að myrða ekki tvo vini mína sem stóðu mér á hægri hönd síðast þegar ég reyndi að spila, kúlan átti sem sagt að fara beint en fór þess í stað beint til hægri! Suðvestanáttin var mér sennilega eitthvað óhagstæð þennan dag ;oþ Það kemur kannski ekki á óvart að ég varð caddy frá og með 2.holu! Reyndar var ég bara caddy fram að 7.holu, þá fór ég nebbla í fýlu, fannst þetta fullmikið labb! Ég settist í grasið og neitaði að fara lengra, þið haldið sennilega að ég hafi verið ca. 12 ára þegar þetta gerðist, og ég vildi eiginlega óska þess að ég hefði verið 12 ára svo að ég hefði afsökun! En ég var 21 eða 22 ára, mjög eðileg alltaf hreint.-/ En fýlan entist reyndar ekki mjög lengi, bara fram að 8.holu eða eitthvað, en já golf-ferilskráin mín er ekki mjög glæsileg, mjög skrýtið að maður hafi ekki lagt meiri stund við þetta helvíti..!

Jæja farin á brettið, setti líka inn æsispennandi færslu um dramatíkina í gettóinu, ákvað að hafa sér færslu svo að þið mynduð mögulega nenna að lesa aðra hvora:o) Later peepz...

5 ummæli:

Inga Lilý sagði...

Díses - þú ert ýmis vanvirkur eða ofvirkur bloggari!! :)

En annars er golf hin besta skemmtun og ég veit fátt þægilegra en að rölta ca 18 holur dragandi kerru fyrir einhvern annan því það er ekki séns að ég fari að sýna nokkrum manni hvað ég er í léleg î golfi! :)

Eva sagði...

Sæl skvís og gleðilegt ár!

Sammála þér með ofvirknina á flugeldum.... nældi mér í þetta rosa skemmtilega astmakast upp úr miðnætti sem ætlaði aldrei að taka stoppa.... endaði á því að fá heitt hungangsthe og mátti ekki liggja útaf til ég (og aðrir ;)) fengu svefnfrið!

Nafnlaus sagði...

Bíddu haa? ertu ekki 22? ;) en vá hvað ég er sammála þér með goldið...boltinn er bara fáránlega lítill plús það að það vantar allt action í þetta sport...!

Nafnlaus sagði...

hvað segirðu Bjarney...er gamalt leiðinlegt fólk leiðinlegt ???hahahaha lá í kasti yfir þessari setningu...þúrt náttla snillingur...langt síðan ég nefndi það við þig síðast :)

Nafnlaus sagði...

Já sko, sumt leiðinlegt fólk er bara leiðinlegt en maður umber það alveg, en GAMALT leiðinlegt fólk er óumberanlega leiðinlegt!! Sennilega af því að það heimtar virðingu manns bara fyrir það eitt að það sé gamalt, iss piss, ekki það auðvitað eiga allir virðingu skilið, en ég skil ekki af hverju á að leyfa gömlu fólki að ganga lengra í leiðindum af þeirri ástæðu einni að það nálgast grafarbakkann eins og óð fluga!!

Æ þú skilur hvað ég á við:o)

Þúrt líka snillingur, datt í hug að nefna það í framhjáhlaupi;o)