Ég gleymdi aða minnast á veðrið í síðasta bloggi, en þannig var mál með vexti að þegar ég var ennþá heima þá fékk ég reglulega að heyra það frá Hux að hann væri hérna í 30 stiga hita og sól, þannig að montaði mig nú ekki lítið við alla heima á klakanum af því að vera að fara út í þvílíka veðursæld! Einmitt! Daginn sem ég lenti var grenjandi rigning og búið að vera síðan ég kom og brakandi bongóblíða heima á klakanum! (note to self: monta mig aðeins minna næst..!) En sólin er sem betur fer farin að skína aftur, þannig að ég tek þessu ekki persónulega...
Annars er búið að vera brjálað að gera, búin að fara í 3 afmælisveislur síðan ég kom! Og það er búið að vera bara ansi gaman, ég var samt að hugsa um það að fyrir 7 mánuðum síðan þá var ég á laflausu og bjó á Íslandi með 2 kisum. Í gær var ég labbandi um í London, í Englandi þar sem ég bý núna, með kærastanum mínum sem ég er á pikkföstu með og tengdafjölskyldunni á leið í afmæli hjá systur tengdamömmu minnar! Skjótt skipast veður í lofti og allt það..! O_o
Annars er kellan bara að aðlagast nokkuð vel, er allavega farin að drekka te í gríð og erg sem mér skilst að crucial atriði :-þ
Sumum hlutum er ég að venjast betur en öðrum, t.d verðinu á ávöxtum og flestum matvælum! Ég get t.d keypt geðveikt djúsí ávaxtabakka á 1 pund (200 kall ca.)og flest annað er vel undir því verði sem ég þekki frá því á Íslandi. Vá talandi um það, þegar ég fór í bankann til að fá bankareikning þá var konan að spyrja eitthvað um Ísland og sonna, og við vorum að útskýra fyrir henni hvernig lánasystemið heima virkar (verðtryggingin) þá sagði hún:"humm,er það ekki ólöglegt?"
Hugo:"jú alls staðar nema á Íslandi!"
konan:"ah já ok, þannig að það tekur enginn lán á Íslandi?"
Ég (frekar skömmustuleg)":uh jú, það taka allir lán en það er nánast ómögulegt að losa sig undan þeim."
Bankakonan átti hreinlega ekki til orð yfir hvers kyns "loansharking" starfsemi væri í gangi á Íslandi, en svo sagði hún:"humm, það er kannski ekki skrýtið að allt hafi hrunið þarna..."
Já Ísland best í heimi og allt það...
En svo eru aðrir hlutir sem ég á erfiðara með að venjast, t.d mun meira af sjúkum hlutum sem maður les um í blöðunum á hverjum degi, og vá ég varð svoooo orðlaus þegar ég sá að þessi Raoul Moat átti sína eigin aðdáenda síðu á facebook, með 38.000 meðlimum! (svo var "rottu"-apríl hent út!!) Er fólk algjörlega siðlaust með enga heilastarfsemi?? Þessi maður var svo mikill viðbjóður, barnsmóðir hans sagði meira að segja "Guði sé lof að hann er dauður!" og börnin hans 3 felldu ekki eitt tár! Hann t.d drap hundinn þeirra með hafnaboltakylfu og skildi hræið eftir fyrir svefnherbergin þeirra í heilan dag! Þessi maður var holdgervingur hins illa og fólk er að votta honum aðdáun! Oh ég fæ bara illt í hjartað yfir að það sé svona mikið að illa gefnu og illa innrættu fólki til..!
Dísús, ég er að horfa á rugbyleik, þarf að læra reglurnar áður en ég fer á leik með Hux, en hins vegar finnst mér pínu scary að hann sé að spila þessa íþrótt! Hún er ansi brutal!! Og hann er varnarmaður þannig að hann er alltaf í einhverjum troðningi! O_o En ég get samt alveg horft á þessa íþrótt endalaust, rugbyleikmenn eru fáránlega heitir! Sérstaklega minn..! ;-þ

Jæja hef eiginlega ekkert meira að blogga um, enda sennilega meira en nóg í einni færslu! Takk fyrir kommentin Anný og Bjarney, alltaf gott að geta treyst á ykkur ;o) Heldur manni við efnið..! :-þ
Bið að heilsa heim, *kossar og knús* á línuna...
4 ummæli:
Við YÖK biðjum kærlega að heilsa. Erum að chilla í bústaðnum. Kv. Anný Lára
takk takk og bið að heilsa á móti :-D
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt skvís, gaman að fylgjast með fleirum sem eru að flytja af landi brott. Hlakka til að lesa bloggið áfram þar sem þú ert alveg ótrúlega skemmtilegur penni.
Sjokkið hjá okkur varðandi ávextina var samt akkúrat í hina áttina, 800 yen (ca 1100 ISK) fyrir 5 MANDARÍNUR! Og allt þar fram eftir götunum. Maður býr víst ekki í ódýrasta landi í heimi svo þú skalt njóta þess að hafa allt svona ódýrt. :)
Sælar
Gaman að fylgjast með hvað allt gengur vel.
kv Diana
Skrifa ummæli