mánudagur, júlí 05, 2010

er að spá í að nota þessa bloggsíðu aftur...



Jæja ætla að prófa þessa síðu aftur, er komin með ógeð á að geta ekki sett inn myndir á hina síðuna...


En hérna er sem sagt myndin af Hugo og Sveini Inga þegar Sveinn Ingi gaf honum þessa mjög svo eðlilegu gjöf..!


Annars fór Hugo til Englands á laugardag, og ég get ekki beðið eftir að hann pikki mig uppá Heathrow eftir 8 daga! :-D Það er allt klárt fyrir utan að ég eftir að klára að pakka og verð svo í Kolaportinu næstu helgi að selja eitthvað af fötunum mínum og fleira. Frændi Hugos og konan hans eru að fara út á fimmtudag og ætla að taka fyrir mig töluvert af dóti og það er að redda mér BIG TIME! (Takk æðislega Svanhildur og Ranald, þið eruð bestust! :-*) Og svo ætla ég að sjá hvort ég þurfi að senda eitthvað með skipi, það er allavega ódýrara en yfirvigt...


En að öðru, áður en ég fer þá er ég að reyna að nýta tímann og hitta vini og vandamenn. Þórey María var hérna um helgina og hún er ótrúlega fyndin, nottla líka á fyndnum aldri, það sem hrekkur ekki út úr þeim, eins og t.d:"mér er ótrúlega illt í bakinu mínu á tánnum.." uh já og hvar er þá bágtið sem ég á að kyssa á?? Svo var ég að passa hana í morgun og litla gerpið ákvað að taka forskot á sæluna og bera á sig sólarvörn! (note to self: aldrei að skilja 3 ára barn eitt eftir með sólarvörn!) oh well, hárið á henni var allavega mjög vel varið í dag..! O_o


Svo var ég caddy hjá Óskari Degi á golfmóti í gær, hann sagðist ætla að velja mig ALLTAF til að vera caddyinn hans! Ég var ekkert að elska þetta í gær, veðrið hálf leiðinlegt og svo finnst mér golf afskaplega ofmetin íþrótt! Eeeeen mér finnst endalaust gaman að eyða tíma með honum og sjá hvað hann er orðinn góður þannig að ég hringdi í hann áðan og spurði hann hvort hann vildi að ég myndi draga fyrir hann á morgun, og hann brosti víst hringinn af gleði. Ég held að honum hafi þótt gaman að hafa mig af því að ég hef ekkert vit á þessu og er því aldrei að segja honum eitthvað til, bara að hvetja hann áfram og segja brandara! ;-þ En já, það þýðir að ég þarf að vakna kl.6, sækja litla gerpið kl.7 og við byrjum kl.7:40, þess vegna er ekkert spes að vera andvaka núna..!
Svo ætlar Þórunn, Sindri og Viktor Andri að koma í bæinn og ég mæti nottla galvösk til að hrella gengið og knúsa Viktor Andra í spað. Svo fer ég með Sindra og Óskari Degi í bíó annað kvöld, það er einmitt mjöööög erfitt að fá mig til að segja já við pössun þessa dagana! Uh já eða ekki, ætla sko að vera algjör ofurfrænka þessa síðustu vikuna mína á landinu :-D
Annars fór Hugo að skoða íbúðir í dag, ein sem honum leist rosa vel á, þannig að nú er bara að krossa fingur og vona að heppnin verði með okkur í þetta sinn! Svo er hann aðeins að skoða vinnumál og sonna, ég spurði hann hvort ég gæti ekki farið að vinna á dýraspítala eða eitthvað, og hann ranghvolfdi bara augunum og spurði hvort ég ætlaði mér núna að verða dýralæknir! Ég sagði ég gæti bara unnið í afgreiðslunni eða eitthvað og svo knúsað dýrin þess á milli, þá sagði hann:"Bjarney, ég sé þetta alveg fyrir mér, annan hvern dag muntu koma heim með (mjög líklega fatlað) dýr sem átti að svæfa, en þú gast bara ekki hugsað þér að láta svæfa það! Við myndum sennilega enda með mörgæs inná baðherbergi!" Þannig að ég held að hann hafi verið að gefa í skyn að ég ætti að fara að vinna við eitthvað annað...
Jæja ætla að reyna aftur við svefninn, þarf að vera ferskur caddy í fyrramálið fyrir litla, rauðhærða Tiger Woods-inn minn..!
Góða nótt peepZzzzz

Engin ummæli: