þriðjudagur, júlí 20, 2010

öppdeit



Ég ætla nú bara að fara hingað og þangað í þessu bloggi! Í fyrsta lagi þá elska ég hvað ávextir eru ferskir og ódýrir hérna! Er búin að borða ógrynni af allskyns berjum síðan ég kom, mmmmm elska allskyns ber! :-D Þessi mynd er af ávöxtunum sem ég var að maula á þegar ég var að taka próf sem ég þarf að taka til að fá að vinna sem einkaþjálfari hér (aðeins meiri kröfur en heima! Sem er gott sko), en ég stefni nottla á að rúlla því upp :-þ





Fór á hestbak áðan með tengdó, hún er sem sagt atvinnuknapi, á risastóran hest og keppir í að hoppa yfir allskyns hindranir og það eru sko ekki þessar litlu grindur sem maður sér í sjónvarpinu, þetta eru massív stökk og ansi erfið íþrótt! Ég á mögulega svölustu tengdamömmu í heiminum :-þ Að verða sextug en gefur yngri keppendum ekkert eftir! Er alveg snarofvirk sko (á góðan hátt :o)) En já, ég fór sem sagt á hestbak áðan,fékk lánaðan ljúfling á næsta bæ og vá hvað var gaman, ég ELSKA að fara á hestbak!




Við fáum íbúðina okkar 31.ágúst en erum byrjuð að sanka að okkur húsgögnum, þetta er borðstofuborðið okkar og sófinn, svona svo að þið fáið smá sýnishorn...





Og svo bara svona einhverjar myndir, kisurnar þeirra, Bengalkisur sem eru æði, en vá hvað ég sakna kisanna minna :-/ Svo er Hugo í nýja hlífðarsettinu sínu, ég er ótrúlega ánægð að hann ætlar að vera með hlífðarhjálm á hausnum og svo er hann með hlíf fyrir bringubeininu sem er aðeins viðkvæmara eftir hjartaaðgerðina (hann var með hjartagalla, man ekki hvort ég var búin að segja frá því.)En já, klárlega léttir að hann reyni að hlífa hausnum á sér aðeins í öllum þessum hamagangi..!

Ég var að fjárfesta í korti í gymminu, það er AÐEINS dýrara en heima, ca. 8000.- kall á mánuði! O_o Reyndar finnst mér alltaf jafn fyndið þegar fólk heima er að væla yfir að það sé dýrt að borga 4-6000.- kr á mánuði í ræktina. En svo vilja allir að allt sé hreint og tækin í toppstandi, eins og það kosti bara ekkert að viðhalda þessu. En já, mánaðarkort í ræktina heima kostar ca. jafn mikið og leigubílaferðin heim af djamminu (fyrir utan alla þúsundkallana sem fólk eyðir fyrir utan leigubílaferðirnar!)þannig að ég ákvað að sjá ekki eftir þeim peningum sem ég eyði í að lifa heilbrigðu lífi :o)

Ég er byrjuð að keyra!! Og er bara nokkuð góð þó að ég segi sjálf frá! ;o) Fyrir utan reyndar heilhveitis hringtorgin!! En Hux er algjör nasisti (á góðan hátt, eg það er hægt) og lætur mig keyra út um allt og í öllum aðstæðum! Fyrst var ég alltaf að berja hurðina hægra megin, leita að gírstönginni en þetta er allt að koma :o)

Það eru allir að spyrja mig um allt ljóta fólkið í Englandi, og ég hef bara eiginlega ekki séð neitt mjög mikið af ljótu fólki, við erum reyndar á svo ríku svæði, en ég fæ kannski að fara að skoða hjólhýsapakk bráðum :o) Hins vegar sé ég fullt af dýrum! Sá dádýr áðan í reiðtúrnum (búum eiginlega í sveit) og svo eru kanínur út um allt, er alveg að elska þetta sko :-D

humm, annars er ekkert meira að frétta, nema að Sveinn Ingi er að koma til okkar 17.september :-D Verður ótrúlega gaman að fá hann í heimsókn. Ég er ekki búin að vera hérna nema tæpar 2 vikur en mér líður eins og það séu komnir 2 mánuðir! Og þó að allt sé æði hérna þá sakna ég fjölskyldunnar minnar alveg ótrúlega mikið og finnst að þau eigi öll að koma í heimsókn sem fyrst ;-D Og auðvitað sakna ég vina minna líka ;o)

Jæja ætla að láta þetta duga að sinni, og takk fyrir kommentin enn og aftur, gaman að heyra frá ykkur <3

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta er greinilega heilmikið ævintýri hjá þér! Gangi þér vel í einkaþjálfaraprófinu. YÖK segir að þú eigir að passa þig á þessum hestum. Þeir séu bestir saltaðir í tunnu! kv. Anný og YÖK

Nafnlaus sagði...

En gaman að fá nýtt blogg frá þér :)
England á klárlega vel við þig þar sem þú lýtur voða vel út á myndunum.

Kv. Bjarney hin.

Bjarney hin hin sagði...

Takk takk bádar tvaer :-D

Já mér lídur voda vel hérna, hlakka samt til ad flytja í íbúdina okkar og fá hlutina í rútínu aftur, madur er ansi einhverfur med thessa blessudu rútínu sína..! O_o

Hulda sagði...

Hey hó flottar myndir. Var búin að sjá þær á hlaupum hjá mömmu. Heyrðu...Jónina kemur og aðstoðar okkar. hún mun hafa mjög gaman af því býst ég við, þannig að við verðum bara að eiga þig inni! Eða koma bara til ykkar og þú passar þar meðan við prufukeyrum velli i kring....hehehe...ætli maður kíki ekki á þig með einhverju hopp fargjaldi...hafa augu og eyru opin með manni! ;) Knús í bili. Söknum þín líka. Þetta er að malla inn...þ.e. að þú sért farin í alvöru! ...í bili allavega. Sis

Bjarney sagði...

Já þið eruð sko velkomin hvenær sem er og ég myndi glöð passa á meðan þið farið í golf, mér skilst að það séu mjöööööög góðir golfvellir uppí Henley ;o)

Bjarney sagði...

Já þið eruð sko velkomin hvenær sem er og ég myndi glöð passa á meðan þið farið í golf, mér skilst að það séu mjöööööög góðir golfvellir uppí Henley ;o)

Bjarney sagði...

Já þið eruð sko velkomin hvenær sem er og ég myndi glöð passa á meðan þið farið í golf, mér skilst að það séu mjöööööög góðir golfvellir uppí Henley ;o)

Bjarney sagði...

Já þið eruð sko velkomin hvenær sem er og ég myndi glöð passa á meðan þið farið í golf, mér skilst að það séu mjöööööög góðir golfvellir uppí Henley ;o)

Nafnlaus sagði...

Independent [url=http://www.COOLINVOICES.COM]make an invoice[/url] software, inventory software and billing software to beget professional invoices in before you can say 'jack robinson' while tracking your customers.